Stígandi - 01.10.1943, Síða 45
STÍGANDI
FERÐASÖGUBROT
107
Foto. Edv. Sigurgeirsson.
Stuðlaberg við Svartafoss.
Má þar af mörgu nefna Dverghamra, Foss á Síðu, Kirkjugólfið
fræga, Systrastapa o. m. fl., að ógleymdu Eldhrauninu mikla og
sögufræga, sem vegurinn liggur um.
Hugurinn hvarflar aftur í tímann. Hver okkar sér sína mynd
á skuggatjaldi fortíðarinnar, og oflangt yrði að lýsa þeim hér. En
eitt dettur okkur sameiginlega í hug: Prófasturinn á Prestbakka,
séra Jón Steingrímsson. Hér barðist hann, ásamt samtíð sinni,
við eldinn, hraunflóðið, hungrið og vonleysið — og sigraði.
Við komum að Múlakoti um kvöldið. Höfðum við ráðgert að
fara þaðan inn á Þórsmörk, en hestar reyndust ófáanlegir sökum
heyanna.
Við fórum inn að Bleiksárgljúfri og skoðuðum þetta merkilega
náttúrufyrirbrigði og sjaldgæfa á margan hátt.
Þar sem ekkert varð af Þórsmerkurferðinni í þetta sinn,
sem áður segir, ákváðum við að litast um í hinni sögufrægu Fljóts-
hlíð, en halda síðan til Þjórsárdals. Sunt nöfn segja okkur langa
sögu. Fljótshlíð er eitt þeirra. Það segir okkur kafla úr sögu ís-
lands. Einmitt þann kaflann, sem bezt hefir lýst ást íslendinga