Stígandi - 01.10.1943, Side 63
STÍGANDI
LEYNDARDÓMAR TILVERUNNAR
125
óvinnanleg borg. Fræðimennirnir
dáðust að kenningunni og frægðu
höfund hennar, en hversu margir
munu þeir hafa verið, sem skildu
hvers virði uppgötvunin var, og
hverjir gerðu tilraunir til að sanna
gildi hennar? Gerðu þeir það, sem
lofuðu hana mest?
Vegna þess að kenning Einsteins
er torskilin fjölda manna, viljum
vér stinga upp á, að þeir, sem þetta
lesa, vilji ljá því óskipta athygli og
reyna að einbeita hugsun sinni mál-
inu til skilnings, en til að öðlast
skilning á hinni fjórðu stærð, skul-
um við fyrst athuga fyrstu, aðra
og þriðju stærð.
Orðið Dimension, sem notað er
í ýmsum tungumálum, er komið úr
latínu og er dregið af orðinu Di-
mensio, en það þýðir mál eða mæl-
ing, — en hér verður það þýtt með
orðinu stærð, þykir þýðanda það
ná betur því, sem um verður rætt —
heldur en orðið vídd, er einnig hefir
verið notað í íslenzku máli um hug-
takið Dimension. — Menn hafa frá
ómuna tíð viljað vita stærð og lög-
un þeirra hluta og líkama, sem þeir
hafa komizt í kynni við. Hin fyrsta
og einfaldasta mæling er bein lína
milli tveggja punkta. Þessi beina
lína svarar til þess, er hér verður
nefnd fyrsta stærð, en hún er einnig
hin fyrsta frumhreyfing í rúminu og
stefnir í eina átt. Vitund þeirrar
veru, sem lifir lífi sínu í fyrstu
stærð, er sambærileg við jarðar-
orminn, sem Iiggur blindur, beinn
og hreyfingarlaus í moldinni. Vit-
und fyrstu stærðar hefir enga hug-
mynd um rúmið, nema á fleti, sem
hefir hvorki breidd né þykkt, og
hreyfing þeirrar vitundar yrði að-
eins í eina átt, og kæmi fram í
fyrstu frumhvöt: að hreyfast (í eina
átt): áfram.
Aðra stærð finnum við, ef dregin
er lína þvert út frá fyrstu stærðar-
linu, þannig að myndist kross, fer-
hyrningur eða þríhyrningur, þá hefir
einnig skapazt hreyfing í tvær áttir.
— Það, sem úrslitum ræður um
myndun annarrar stærðar, eru áhrif
þau er skapast, er tvær ólíkar stefn-
ur skerast, eða tveir ólíkir straum-
ar mætast og renna saman, og
blandast til fullnustu. I báðum til-
fellum skapast samloðun, því að
hún er nauðsynleg til viðnáms, svo
að önnur stærð geti neytt armarrar
frumhvatar lífsins, en þ. e. aðdrátt-
ar og samloðunar.
Málarar og aðrir dráttlistamenn
starfa á sviði annarrar stærðar, eða
á sléttum fleti, en list þeirra liggur
í því að sýna þriggja stærða rúm, en
notast þó eingöngu við tveggja
stærða.
Loks þegar full samloðun og að-
dráttur hefir myndazt utan um mið-
punkt eða kjarna einhvers hlutar
eða líkama, getur sá miðpunkts-
kjarni dregið að sér eða hrundið frá
sér í allar áttir, og er þá lífið ekki
lengur háð takmörkuðum fleti og
getur myndað fasta hluti og líkami.
Þetta er hin þriðja stærð; en hún er
þríátta, þ. e. hefir lengd, breidd og
þykkt. Það er á sviði hinnar þriðju
stærðar, sem myndhöggvarinn
starfar.
Ef bilið frá miðkjarna einhvers
líkama er hið sama út til yfirborðs-
ins í allar áttir, þá nefnum við
líkamann hnött eða kúlu. Það er
því ekki fyrr en í þriðju stærð, sem
boglínan skapast, og henni fylgir
hreyfing sú, er við nefnum snúning.
Hnattlíkaminn getur hreyfzt eða
snúizt í hvaða átt, er vera skal.
Þriðja stærðin — sem felur í sér
fyrstu og aðra stærð — tekur yfir
alla hluti og hræringar í hinum
líkamlega eða efnislega heimi. Það
er af lögmáli hennar, sem hnettirnir