Stígandi - 01.10.1943, Side 66

Stígandi - 01.10.1943, Side 66
STÍGANDI UM BÆKUR Aldrei hefir bókaútg;ifa fyrr staðið með þvílíkum ltlóma hér á landi eins og síðastliðið ár, en allar líkur benda þó til, að þetta ár, scm nú er að líða, verði bókaútgáfa enn meiri. Nokkuð hefir að eðlilegum hætti kastazt milli tveggja skauta um gæði þessarar framleiðslu, eftir þvi hvort meiru hefir ráðið gróðafíkn útgefenda eða hugur á myndarlegu framlagi til menningar þjóðarinnar, og fleiri viðhorf hafa gripið inn í. Mál og menning. Það forlagið, sem tvímælalaust á heið- urinn af því að Iiafa gefið út beztu bókina nýverið, er félagið Mál og menning. Eg á þar við bókina íslenzk menning eftir Sigurð Nordal. Hafa allir skynbærir menn, sem um bók þá hafa getið, lokið upp einum munni um það, að þar væri um eiuhvern gagnmerkasta viðburð íslenzkrar bókmenningar að ræða. Þá hefir sama félag hafið útgáfu nýrrar mannkynssögu, og lofar byrjunin góðu. Aftur finnst þeim, er þetta ritar, tímarit félagsins í augljósri afturför. Mættu ýmsir þeir, sem i ritið skrifa, sýna meiri karlmennsku gagnvart ert- ingum daglegs lffs en þeir gera, án þess að ritið biði nokkurn hnekki. — Þá hefir Mál og menning sent frá sér kær- kominn gest flcstum, sem bókum unna. Er hér átt við Fagrar heyrði ég radd- irnar, safn íslenzkra þjóðkvæða og stefja, valið og búið til prentunar af Einari Ól. Sveinssyni, sem ritar prýði- legasta forspjall að bókinni. Safn þetta er í rauninni ekki ein af félagsbókum Máls og menningar, og kemur það reyndar dálítið spánskt fyrir, að þetta sé félagsbók og þó ekki, þegar þess er þá líka gætt, að félagið gaf ekki út nema tvær eiginlegar félagsbækur á síðastliðnu ári, Undir ráðstjórn og Tóníó Kröger. Til útgáfu Arfs íslcndinga hafa félags- menn orðið að greiða sérstakt gjald, og tímaritinu var upphaflega lofað auk þeirra sex bóka, sem ætlunin var að gefa út árlega. Vitað mál er það, að mjög hafa viðhorf breytzt, síðan þær áætlanir voru gerðar, en það er þó freistni, sem forðast ber, að skjóta sér uni of bak við þá afsökun. — Fagrar heyrði ég raddirnar hefir fengið mjög góða dóma, og raunar hefir verið gert meira veður af bókinni en eðlilegt má leljast, því að talsverður hluti efnisins verður að teljast bókmenntalegar „múmlur", ef svo mætti að orði komast, þótt auðvitað — og jiað gefur bókinni alltaf mikið gildi — sé þar margt dýr- mætt erfðasilfur. Frágangur bókarinnar svo og íslenzkrar menningar og mann- kvnssögunnar er hinn prýðilegasti og félaginu til mikils sóma. Síðasta bók Máls og mcnningar er fyrri hluti Þrúgna reiðinnar eftir ameríska rithöf- undinn John Steinbeck. Skáldsögu þessa hefir Stefán Bjarman íslenzkað og virðist hafa tekizt vel, sums staðar með ágætum, þótt nærsýnt fólk muni eflaust reka tærnar í smáhnjúska hér og þar. Mál hans er yfirleitt blæmikið og orð- ríkt, en j>ó virðist sums staðar bregða fyrir, að orð, sem notuð eru, eigi ekki heima í munni þess, sem látinn er nota

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.