Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 10

Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 10
20. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 STJÓRNSÝSLA Tvær auðar bygg- ingarlóðir sem Reykjavíkurborg á við Einarsnes 61 og Þrastargötu 1 verða ekki seldar hæstbjóðanda. Borgarráð hefur þess í stað heimil- að skrifstofu eigna og atvinnuþró- unar að ráðstafa lóðunum. Lóðirnar eru báðar merktar undir svokölluð flutningshús og er talið erfitt að bjóða þær út því það auki „mjög flækjustig við ráðstöfun lóðanna ef sá sem býður í lóð verður hæstbjóðandi en hefur ekki hentugt hús í skipu- lagslegu tilliti,“ segir í greinar- gerð eignaskrifstofunnar sem áætlar verðmæti lóðanna á bilinu 20 til 30 milljónir króna. - gar Auðar byggingar verða ekki seldar hæstbjóðanda: Handvelja kaupendur RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Of flókið er að bjóða út tvær lóðir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Við lánum 1.500.000 kr. aukalega til þeirra sem eru að kaupa sér húsnæði í fyrsta skipti.* Að kaupa húsnæði er stór ákvörðun og því um að gera að vega og meta alla kosti í stöðunni. Húsnæðislána- ráðgjafarnir okkar hafa víðtæka reynslu og góðan skilning á aðstæðum ungra fasteignakaupenda og geta því gefið þér góð ráð. Ræddu við húsnæðislánaráðgjafa í næsta útibúi. *Heildarlánveiting bankans að meðtöldu viðbótarláni er þó að hámarki 90% af kaupverði. Lántakandi þarf að standast greiðslumat og uppfylla aðrar útlánareglur bankans. Veittur er helmingsafsláttur af lántökugjöldum til þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Lántakandi þarf að greiða kostnað við greiðslumat, skjalagerðargjald, þinglýsingargjald og, ef við á, kostnað við veðbanda- og lánayfirlit. Á www.islandsbanki.is getur þú reiknað mánaðarlegar afborganir, árlega hlutfallstölu kostnaðar og heildarkostnað. islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook Ertu að hugsa um að kaupa þína fyrstu fasteign? Húsnæðislán 50% afsláttur af lántökugjöldum við kaup á fyrstu eign er veittur til áramóta E N N E M M / S ÍA / N M 6 3 9 4 4 STJÓRNSÝSLA Samþykkt var af öllum borgarfulltrúum borgarstjórnar Reykjavík- ur að gera sérstakt átak og skoða gagngert hvern- ig bregðast megi við háum kostnaði vegna veikinda starfsmanna á velferðar- sviði. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar síðast- liðinn þriðjudag en eins og Frétta- blaðið hefur greint frá er talið að kostnaður vegna veikinda starfs- manna á velferðarsviði geti numið um 150 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Að sögn Lóu Birnu Birgisdóttur, mannauðs- stjóra á velferðarsviði, verður mikil áhersla á viðverustjórnun á velferðarsviði sem og á öðrum sviðum borgar- innar á næstu misserum. Lóa nefnir að heildarveik- indahlutfall velferðarsviðs fyrstu sex mánuði ársins hafi verið 6,11 prósent en til samanburðar má nefna að fjarvistahlutfall sviðsins var 6,8 prósent 2013. Meðalveikindahlutfall velferð- arsviðs árið 2009 var 5,8 prósent. Veikindahlutfall sviðsins hafi því hækkað aðeins en Lóa Birna segir starfsemi sviðsins hafa breyst mikið á þessum árum, meðal ann- ars vegna yfirfærslu á málaflokkum frá ríki til sveitarfélags. - hó Borgarfulltrúar samþykkja athugun á kostnaði: Rannsaka veikindi hjá starfsmönnum LÓA BIRNA BIRGISDÓTTIR DÝRALÍF „Þetta eru yrðlingarn- ir sem eru að fara af stað núna,“ segir Þráinn Svansson mein- dýraeyðir um minkana sem sjást í borgarlandinu þessa dagana. Hann segir ekki meira um mink nú en áður í Reykjavík. Það sé hins vegar algengara að það sjá- ist til minka á haustin en á öðrum árstímum. Læðurnar, sem eignast yfir- leitt fimm til níu yrðlinga, skilja við tvo og tvo í einu þegar þær eru búnar að kenna þeim að veiða, að því er Þráinn greinir frá. „Ef einn stakur verður eftir fylgir hann henni. Hinir eru á ferðinni á dag- inn áður en þeir eru búnir að læra að passa sig og verða varari um sig.“ Minkar fara með ströndinni og fylgja ám og vötnum þar sem þeir eru ekki aufúsugestir. „Þeir geta auðvitað rambað inn í borg- ina eins og önnur villt dýr. Maður hefur lent í þeim uppi í Breiðholti þegar þeir hafa þvælst þangað frá Elliðaánum eða vatnsvernd- arsvæðinu við Elliðavatn,“ segir Þráinn. „Það er allt gert til að halda minknum niðri og það eru settar upp gildrur við Elliðaárnar. Það er erfitt að veiða hann þar sem eru gjótur og hraun og það þýðir ekki að fara með hunda til að ná honum vegna katta sem eru á ferð. Hund- arnir myndu bara drepa kettina.“ Að sögn Þráins hefur minkum fækkað í Reykjavík undanfarin ár en undanfarið hafa veiðst 30 til 40 dýr á ári. ibs@frettabladid.is Minkar eru á kreiki í borginni á haustin Töluvert af minkum hefur sést í Reykjavík undanfarið. Þegar minkalæður skilja yrðlinga eftir eru þeir á ferð áður en þeir læra að verða varir um sig. MINKAR Dýrin fara með ströndinni og fylgja ám og vötnum. NORDICPHOTOS/AFP 30-40 Fjöldi minka sem hafa veiðst í Reykjavík á ári.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.