Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 16

Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 16
20. september 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ Hafi íslenskir stjórn-málaflokkar einhverja stefnu í málefnum inn-flytjenda er sjaldnast mikill munur á því hvernig sú stefna er sett fram. Stefna Sjálfstæðisflokksins: „Sjálfstæðisflokkurinn vill búa vel að innflytjendum og sjá til þess að þeir njóti jafnra tækifæra á við aðra þjóðfélagsþegna og gera þeim þannig kleift að verða hluti af samfélaginu.“ Stefna Framsóknarflokksins: „Mikilvægt er að innflytjendum sé gert kleift að aðlagast íslensku þjóð- félagi og þeir geti nýtt hæfi- leika sína til fullrar þátttöku í samfélaginu, en kunnátta í íslensku er lyk- illinn að því.“ Stefna Samfylkingarinnar: „Samfylkingin hefur skýra fram- tíðarsýn um fjölmenningar- legt samfélag á Íslandi þar sem aðfluttir Íslendingar og afkom- endur þeirra eiga ríkan þátt í því að á Íslandi þróist gott og gjöfult samfélag á 21. öldinni.“ Miðað við allt þetta mætti halda að Ísland væri tiltölulega opið land þar sem gerðar væru einhverjar almennar, sanngjarn- ar kröfur á aðlögun þeirra sem hingað flytja. Staðreyndin er hins vegar sú að sjoppan er svo gott sem lokuð öðrum en þeim sem alþjóðasamningar (EES- eða flóttamannasamningar) skipa okkur að afgreiða. Keppt um besta fólkið Margir þeirra sem telja sig frjálslynda breyt-ast í riddara ómöguleik- ans þegar ræða á leiðir til að fá til landsins hæft og duglegt fólk. Segjum að einhver komist að því að það vanti fólk með tæknimennt- un inn á íslenskan vinnumarkað og vilji búa til sérstök atvinnu- leyfi fyrir það fólk. Innan hálfrar mínútu mun einhver stynja út úr sér setningunni: „Já, á nú að fara að mismuna fólki eftir menntun?“ Ef einhver vill gefa íþrótta- mönnum sérstakt dvalarleyfi þá verður að því hæðst og látið eins og sú hæðni sé sett fram með hagsmuni annarra útlendinga, sem ekki eru góðir í fótbolta, í huga. Ef einhver leggur til að listamönnum sé veitt dvalarleyfi, þá mun fólk spyrja: „Hvernig eigum við að meta hver er lista- maður?“ Verði einhver svo nógu sturl- aður til að leggja til að fólk geti komið til landsins ef það hefur með sér nógu mikið af pening- um þá munu hinir réttsýnu hrista hausinn uns hann skrúfast af. „Þetta er nú öll mannúðin! Á fólk að geta keypt sig inn í landið? Á fólk að geta keypt sig fram fyrir röðina?“ Það er bara einn vandi: Það er eiginlega engin röð. Fyrir fólk utan Evrópu eru einungis tveir meginflokkar dvalarleyfa sem veita rétt til að setjast varanlega að á Íslandi. Annars vegar geta menn fengið dvalarleyfi vegna „starfs sem krefst sérþekkingar“. Hins vegar er það mannúðar- og flóttamannaleiðin. Aðrar leiðir eru ekki í boði. Læst í nafni jafnræðis En það er auðvelt að væla. Hér eru einfaldar lagabreytingar sem myndu leiða til betri inn- flytjendastefnu. Engin er furðu- legri en það sem ríki eins og Nor- egur og Kanada hafa þegar reynt og margt svipað þessu var raunar í gildi fyrir tveimur áratugum, áður en við byrjuðum að loka á fólk utan Evrópu. Fyrsti punktur: Í dag geta menn utan Evrópu fengið dvalarleyfi sem námsmenn. Það dvalarleyfi getur þó „ekki verið grundvöllur búsetuleyfis“. Því ætti að breyta. Fólk sem hefur verið hér í námi ætti ekki að þurfa að fara heim um leið og það útskrifast. Annar punktur: Íþróttamenn frá löndum utan Evrópu geta feng- ið dvalarleyfi en, getið þið hvað, það dvalarleyfi getur „ekki verið grundvöllur búsetuleyfis“. Fólk sem hefur spilað fótbolta en hættir því ætti ekki að þurfa að fara heim eða lenda í vandræðum ef það vill fara að vinna við annað. Þriðji punktur: Það þarf að slaka á kröfunum um sérþekkingu í þeim tilfellum þegar fólk hefur fundið vinnu áður en það kemur til landsins. Fjórði punktur: Það vantar dval- arleyfisflokk fyrir fólk sem vill koma til landsins í því skyni að stofna hér fyrirtæki og fjárfesta. Núverandi flokkar gera í raun- inni aðeins ráð fyrir að háverðug- ir íslenskir atvinnurekendur geti boðið einhverjum heppnum útlend- ingum vinnu, ekki öfugt. Fimmti punktur: Það vant- ar almennari dvalarleyfi fyrir fólk sem er nýútskrifað eða með ákveðna menntun og er í atvinnu- leit. Það má hafa þau tímabundin og gera kröfur um framfærslu á meðan á atvinnuleitinni stendur. Þegar landið opnaðist EES-borg- urum var því lokað fyrir öðrum. Umræðan um innflytjendur snýst mikið um flóttamenn og þörfina til að „taka vel á móti fólki“. En þar ætti fókusinn ekki að vera. Fókus- inn ætti að vera á það hvernig við ætlum að vinna samkeppnina um besta fólkið. Fimm hugmyndir MÍN SKOÐUN: PAWEL BARTOSZEK Þ að er vel í látið þegar við framleiðum tvöfalt það magn af lambakjöti sem við höfum magamál fyrir. Af þeim níu þúsund tonnum sem við framleiddum í fyrra átum við aðeins fjögur þúsund, eigum tvö þúsund tonn á lager og seldum, með óljósum ávinningi, hálft þriðja þúsund tonn til útlanda. Og hvers vegna ætli þetta gerist? Og verður það sama uppi á teningnum að ári, að enn bætist þúsundir tonna við á lambakjötslager íslensku þjóðarinnar? Ástæða þess að við framleiðum meira en við þurfum er sú, að landbúnaðurinn er eina atvinnu- greinin sem starfar við „… víð- tæk innflutningsbönn, ofurtolla en jafnframt umtalsverða ríkis- styrki er landbúnaðurinn“. Þetta skrifaði Þröstur Ólafs- son hagfræðingur hér í blaðið fyrir fáum dögum. Bændur eru ekki háðir markaðinum fyrir kjötið. Þeir hafa samning við ráðherra, hverju sinni, samning sem tryggir þeim tekjur af því sem þeir framleiða, hvort sem eftir- spurn eða þörf er fyrir vöruna. Kjötið er niðurgreitt. Ísland er ekki eina landið þar sem landbúnaður er varinn, hann styrktur og framleiðslan er niðurgreidd. Og það er líka alkunna að allar þjóðir kjósa að framleiða sem mest af eigin mat; stuðla að öryggi matvæla. Það er eitt, hitt er annað, að það hlýtur að vera vafasamt, þó ekki sé meira sagt, að framleiða tvöfalt það sem við þurfum. Hvað varðar allt það kjöt sem við flytjum út, segir Þröstur Ólafsson meðal annars í grein sinni, sem vitnað var til hér að ofan: „Haft var eftir einum forystumanna bænda að útflutningur á kindakjöti væri þjóðhagslega hagkvæmur. Sú hagþvæla, að örlítið brot af heildarkostnaði sem skili sér í gjaldeyri, réttlæti útflutninginn, er aumkunarverð. Meinleg er sú manngæska að niðurgreiða mat ofan í útlendinga á meðan 12.500 Íslendingar eiga hvorki til hnífs né skeiðar. 2.500 íslensk börn fá ekki nægju sína að borða, en okkur er svo hlýtt til stöndugra útlendinga að við eyðum stórfé til að gefa þeim ódýrt kjöt. Þetta hefði einhvern tíma verið kölluð rangsnúin mannúð.“ Hafi Þröstur rétt fyrir sér, sem er ekki ástæða til að efast um, er merkilegt að við veljum frekar að framleiða langt umfram þörf, og þurfum jafnvel að leita allra leiða til þess að þurfa ekki að urða kjötið, kjötið sem við framleiðum án þess að hafa magapláss til að geta borðað það sjálf. Það var þekkt hér áður að talsvert mikið kjöt var urðað á öskuhaugum, allt vegna þess að við framleiddum of mikið. Aftur að því hvers vegna þetta gerist aftur og aftur. Þröstur segir í greininni að íslenska landbúnaðarkerfið sé mikil ógagnsæ flækja, hönnuð í anda gamla sovéska hagkerfisins. Megininntak sé að framleiða sem mest, óháð afkomu eða eftir- spurn. „Starfsumhverfi íslenska bóndans er sovéskt, því hann ber enga ábyrgð á eigin framleiðslu. Afkoma hans ákvarðast á skrif- stofum í Reykjavík. Það skiptir einstaka bændur litlu máli, þótt allir markaðir séu yfirmettir. Lögmál framboðs og eftirspurnar eru að engu höfð. Sovétmenn þóttust hafa afsannað hin „kapítal- ísku“ lögmál um framboð og eftirspurn, en gáfust að lokum upp nær örendir. Íslenska bændaforystan og stjórnmálaflokkar hennar þybbast við og lofsyngja þetta örláta sóunarkerfi. Þá er ótalin sú jarðvegseyðing sem stóraukið beitarálag veldur hrjóstr- ugum úthaganum.“ Þetta má kalla íslenska, og vonda, kjötsúpu. Stundum ofbeit í ríkissjóði og úthögum: Íslensk kjötsúpa Sigurjón Magnús Egilsson sme@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.