Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 24

Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 24
20. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Við sitjum alltof mikið og lengi Hingað til hafa sérfræðingar sagt að regluleg hreyfing sé nóg til að viðhalda góðri heilsu. Nýjar rannsóknir sýna að svo er ekki. Því lengur sem þú situr, því verri verður heilsan. Þó að þú hreyfir þig reglulega og sért í góðu formi, því regluleg hreyfing dugir hreinlega ekki til. Ef þú vinnur við tölvu og þarft að eyða þar mörgum stundum, taktu þá hlé reglulega, gakktu um, náðu í blöð í prentarann og heilsaðu upp á samstarfsfólkið. Kyrrseta eykur líkur á hjartasjúkdómum, sykursýki og jafn- vel krabbameini. Það hægist á líkamsstarfseminni og dregur úr virkni vöðva. Kyrrsetan getur jafnvel ýtt undir þunglyndi. Heilbrigður einstaklingur eyðir meirihluta sólarhringsins sitjandi 60% AF VÖKUTÍMA SITJANDI Rannsóknir sýna að það að sitja of lengi eða almennt hreyfingar-leysi eykur hættuna á að fá hjarta- og æða-sjúkdóma. Þá aukast líkur á offituvanda og þar með sykursýki hjá þeim sem eiga slíkt á hættu út frá ofþyngd og erfðum. Líkurnar á að þróa með sér krabbamein eru eins og með alla aðra sjúkdóma mikið háð erfðum, umhverfisþáttum sem og lífsstíl hvers og eins. Það má því segja að sá sem hefur áhættu- þætti fyrir því að þróa með sér sjúkdóm geti aukið líkurnar með kyrrsetu. Brjósta- og ristilkrabbamein Við getum tekið ristilkrabba- mein sem dæmi. Rætt hefur verið um að tregða og erfiðleikar við hægðir geti verið einn af þeim þáttum sem ýti undir ristilkrabba- mein. Við vitum í dag að hreyf- ing er nauðsynleg sem partur af eðlilegri starfsemi ristilsins. Þau krabbamein sem hafa verið helst tengd við kyrrsetu eru brjósta- og ristilmein, en einnig hefur verið bent á lungna- og blöðruháls- kirtilsmein sem eru öll með þeim algengustu sem við sjáum í dag. Ýmsir hafa reynt að skilja hvernig þessu er háttað og er það ekki fyllilega vitað ennþá og spila líklega margir þættir inn í þessa jöfnu. Þó treystu menn sér til þess að nefna tölur í Bandaríkj- unum um það hversu mörg mein væri hægt að koma í veg fyrir og voru það hundruð þúsunda með því einu saman að auka hreyfingu. Þá er helst verið að tala um stutta reglubundna hreyfingu, jafn- vel bara 1-2 mínútur á hverjum klukkutíma, það hefur jákvæð áhrif á mittismál, insúlínviðnám og lækkar bólgusvar sem eru allt hlutir sem skipta máli við þróun sjúkdóma. Eykur fjarveru frá vinnu Í mínu starfi sem læknir koma óneitanlega svona mál inn á borð til mín. Það sem við sjáum einna helst er að töluvert er um bólgur í herðum og hálsi við skrifstofu- vinnu og almenna spennu, vöðva- bólgu og stoðkerfisverki. Þreyta og einbeitingarleysi er einnig þekkt og þá aukin streita. Þessu getur fylgt hækkaður blóðþrýst- ingur, verri stjórnun efnaskipta og þar með blóðsykurs en einnig kvíði. Þá má ekki gleyma áhrif- um á ónæmiskerfið með aukinni tíðni á pestum og smávægilegum veikindum sem auka fjarveru frá vinnu. Það sem við gerum er að fá fólk til að vera meðvitað um hreyf- ingu sína, gera hléæfingar, standa reglubundið upp frá skrifborði og ganga um, vinna standandi sé það mögulegt við hækkanleg skrif- borð sem ættu að vera staðlaður búnaður á skrifstofum. Við höfum aðstoðað við að stilla stóla, borð og vinnustöðvar til að draga úr líkum á stoðkerfisvanda. Fræðsla og námskeið um líkamsbeitingu, en einnig heilsufarsmat getur skipt máli til að ná athygli einstaklings- ins um þessi mál. Taktu stigann Það er einnig til hugbúnaður sem hvetur fólk sem situr við skjái til að standa á fætur reglubundið. Gott er að hafa prentara í fjar- lægð frá vinnustöð, fundir ættu að fara fram utandyra, jafnvel sem göngutúr eða hreinlega standandi í rými þar sem ekki eru stólar og hafa þá stutta en markvissa. Mikilvægt er að ýta undir heilsu- samlegra líferni og hvetja starfs- menn til hreyfingar reglubundið, til dæmis með því að taka stigann í staðinn fyrir lyftuna, sameigin- legar æfingar, ýta undir að fólk hjóli til vinnu eða gangi, veita samgöngustyrki þeim sem geta nýtt sér almenningssamgöngur og þar fram eftir götunum. Í stuttu máli þarf að fá fólk til að standa upp og hreyfa sig sem oft- ast til viðbótar við þá reglubundnu hreyfingu sem einstaklingar fá í sínum frítíma. Það eykur þrótt og vellíðan og kemur líklega í veg fyrir þróun sjúkdóma.“ EKKI SITJA LENGI Teitur Guðmundsson hvetur fólk til að standa upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 1 Hægt er að stafla kössum, bókum eða öðru nærtæku ofan á skrifborðið sitt og setja tölvuna ofan á. 2 Hægt er að kaupa staka, djúpa hillu í IKEA og hengja upp á vegg, í réttri hæð. 3 Ef þú átt bókahillu, sem er til þess fallin, er hægt að losa allt úr einni hillu og nota sem skrifborð. ÓDÝRAR OG EINFALDAR LEIÐIR TIL AÐ BÚA TIL STANDANDI SKRIFBORÐ 3 111 57 210 4 6 VINNA Sest við tölvuna VINNA Sest við tölvuna á ný KAFFITÍMI SOFNAR SEST Í BÍLINN Nær í börnin, kemur við í verslun og keyrir svo heim KVÖLDVERÐUR Sest við matarborðið VIÐ TÖLVUNA Sest við tölvuna SJÓNVARPSÁHORF Sest í sófann og horfir á sjónvarp 17 15 18 20 13 14 16 21 22 23 24 12 HÁDEGIS- VERÐUR Sest við matarborðið 9 VINNA HEFSTSest við tölvu 8 SEST Í BÍLINN Keyrir börn í dagvistun og keyrir til vinnu 19 VAKNAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.