Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 40

Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 40
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Íslenska hljómsveitin Fufanu mun hita upp fyrir tónlistar-manninn heimsfræga Damon Albarn í Royal Albert Hall í Lond- on í nóvember. Damon Albarn, sem er ein skærasta poppstjarna heims síðustu tveggja áratuga, er þekktastur sem söngvari Blur og aðalforsprakki hljómsveitar- innar Gorillaz sem selt hefur yfir 17 milljónir platna undanfarin ár. Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson, söngvari og trompetleikari Fuf- anu, kom auk þess að upptök- um á fyrstu sólóplötu Damons Albarn sem kom út fyrr á árinu og spilaði á trompet með hljóm- sveit hans á stóru tónleikaferða- lagi í sumar. Hann segir þá félaga hlakka mikið til tónleikanna og þeir séu alls ekkert stressaðir enda hafi orðið mikið spennufall hjá þeim eftir að Damon tilkynnti fréttina á Facebook-síðu sinni á miðvikudag. „Tónleikarnir verða stórt tækifæri fyrir okkur og þar sem við erum á sviðinu í Royal Albert Hall verður auðvitað öll athyglin á okkur. Það labbar enginn út úr salnum þannig að vonandi verðum við ekki allt of leiðinlegir. Við fáum um 30 mín- útur og ætlum að reyna að nýta þær eins vel og við getum.“ Auk Hrafnkels skipa hljómsveitina Guðlaugur Einarsson gítarleikari, en þeir eru báðir á 22. aldursári, og Frosti Gnarr Jónsson tommu- leikari sem er á 28. aldursári. Það vekur óneitanlega athygli þegar 22 ára trompetleikari frá Íslandi kemur að gerð fyrstu sólóplötu svo stórrar popp- stjörnu sem Damon Albarn er. Faðir Hrafnkels, Einar Örn Benediktsson, sem lék í Sykur- molunum á sínum tíma og í Ghostigital undanfarin ár, er góður vinur Damons og því hefur Hrafnkell þekkt hann nánast alla ævi. „Damon er mikill vinur fjöl- skyldunnar og hefur stutt mig alla tíð í tónlistariðkun minni. Hann treysti mér því fullkomlega fyrir þessu stóra verkefni og til að taka þátt í tónleikaferðinni með honum í sumar.“ Eftir að Hrafnkell hafði spilað hin nýju lög Fufanu fyrir Damon í tón- leikarútunni í sumar bauð hann hljómsveitinni að hita upp fyrir sig um haustið. SKRAUTLEGT SUMAR Það var ekki síður mikil upp- lifun fyrir Hrafnkel að vera á tónleikaferðalagi með Damon og sveit hans í sumar. „Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið skemmtilegur tími. Ég hef náttúrulega alist upp við tónlist hans, meðal annars Blur, Gorillaz, The Good, the Bad & the Queen og Rocket Juice & the Moon. Hann er auk þess stór partur af Africa Express-hópnum sem tengir saman tónlistarmenn frá Vesturlöndum og Afríku. Í sumar varð maður svo partur af þessu ævintýri.“ Hrafnkell var hluti af 30 manna hljómsveit sem innihélt meðal annars sex manna kór og rappara. „Það var óneitan- lega sérstök tilfinning að spila trompetsólóið í laginu End of the Century sem Blur gerði svo frægt á sínum tíma. Við spiluðum á mörgum tónlistarhátíðum og tón- leikum og stundum fyrir jafnvel tugi þúsunda áhorfenda. Damon sjálfur er magnaður listamaður og sjálfsagt á enginn núlifandi tónlistarmaður jafn fjölbreyttan feril og hann.“ Meðlimir Fufanu eru að leggja lokahönd á fyrstu breiðskífuna sem kemur vonandi út í lok árs að sögn Hrafnkels. „Við erum komnir á samning hjá One Little Indian í London en það fyrir- tæki hefur löngum verið duglegt að semja við íslenska tónlistar- menn. Þetta er stórt tækifæri fyrir okkur en það veltur svolítið á þeim hver næstu skref verða.“ Nánari upplýsingar um Fufanu og tóndæmi má finna á Facebook- síðu sveitarinnar. ■ starri@365.is STÓRT TÆKIFÆRI ÆVINTÝRI Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson, 22 ára söngvari og trompetleik- ari Fufanu, hefur þekkt Damon Albarn frá unga aldri. Hrafnkell kom að upp- tökum fyrstu sólóplötu Albarns og túraði með hljómsveit hans um Evrópu í sumar. Fufanu hitar upp fyrir tónlistarmanninn í London í nóvember. EKKERT STRESS „Við fáum um 30 mínútur og ætlum að reyna að nýta þær eins vel og við getum,“ segir Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson sem er lengst til vinstri. Fyrir miðju er Frosti Gnarr Jónsson og til hægri er Guð- laugur Einarsson. MYND/ERNIR Útsölustaðir: Hagkaup lífræna deildin, Fjarðarkaup - Fræið heilsuhornið, Heilsuhúsið, Blómaval – heilsuhornið, Lifandi markaður Borgartúni www.icecare.is - Netverslun Pana Chocolate Súkkulaði sem er gott fyrir þig… • Náttúruleg ofurfæða • Enginn unninn sykur! • Framleitt við lágan hita til að viðhalda miklu magni næringaefna • Inniheldur hrá lífræn- og náttúruleg innihaldsefni Allt okkar súkkulaði er bæði hand- gert og innpakkað Inniheldur lífrænt kakó sem er með mikið magn af andoxunarefnum, vítamínum og steinefnum. Ferðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466 Meðal námsefnis: Mannleg samskipti. Helstu áfangastaðir erlendis í máli og myndum. Mismunandi trúarbrögð. Saga landsins, menning og listir. Frumbyggjar og saga staðarins. Þjóðlegir siðir og hefðir. Leiðsögutækni og ræðumennska. Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan. Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra í leiðsögn á erlendri grund. Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson, Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson, Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason. Fararstjórn erlendis Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður og fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursso fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í. , Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.