Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 42

Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 42
Talsverð vakning hefur orðið hjá vínframleiðendum varðandi kassavínin síðustu ár. Áður var enginn sér-stakur stimpill á þessum kassavínum en menn hafa gert sér grein fyrir að í þeim liggja mikil markaðstækifæri og leggja meiri metnað í vínin en áður,“ segir Jóhann Marel Viðarsson, þjónn og kennari hjá Vínskóla Ölgerðarinnar. Hann segir hráefnið í kassavínunum ekki hafa verið af miklum gæðum hér áður fyrr. „Þegar verið er að pressa vínber, stilka og steina er ákveðinn djús sem er ekki æskilegur í fínni vínum og þá var hann frekar notaður í kassavínin. Í dag er hins vegar verið að nota betri djús í kassavínin auk þess sem fleiri flottir framleiðendur hafa farið inn á þennan markað,“ segir Jó- hann og bætir við að einnig hafi orðið vakning í umbúðahönn- un. „Sumir kassanna sóma sér mjög vel uppi á borði.“ Kassarnir hafa marga kosti fram yfir hinar hefðbundnu flösk- ur. „Í fyrsta lagi er mun hagkvæmara að kaupa vín í kassa. Það má segja að fólk sé að fá fjórar flöskur á verði þriggja. Þá geym- ist vínið mun lengur. Gera má ráð fyrir að vín í kassa geymist í allt að fjórar til sex vikur eftir opnun, við rétt geymsluskilyrði. Vín í flösku lifir ekki lengur en í þrjá til fjóra daga frá opnun,“ útskýrir Jóhann en ástæðan fyrir löngu geymsluþoli kassavín- anna er að pokarnir sem vínið er geymt í eru lofttæmdir. HENTUG Í FERÐALAGIÐ Inntur eftir því hvar kassavínin eiga best við svarar Jóhann glaðlega: „Í raun við öll tækifæri þar sem á að gleðja sálina. En vissulega eiga þau einna best við í ferðalagið, til dæmis í bústaðinn,“ segir Jóhann. Helstu kostir kassanna í ferðalaginu eru auðvitað þeir að þeir brotna ekki og auðvelt er að stafla þeim upp í bílnum. Jóhann nefnir einnig að kassavínin séu hagkvæmur kostur í brúðkaup. „Þá mætti til dæmis hella víninu yfir í karöflur.“ En á hann sér uppáhaldsvín? „Já, ég er mjög hrifinn af Lindemans-vínunum. Svo eru Giacondi-vínin alveg sér- staklega fersk. Ég tók þátt í að smakka þau þegar þau komu fyrst til landsins og þau náðu mér strax í byrjun, en það er ekki alltaf þannig með kassavínin.“ KASSAVÍNIN ERU SNILLD VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI HANDHÆG Í FERÐALAGIÐ Mikil framför hefur orðið í þróun kassavína undanfarin ár. Þau þykja nærri því að vera á pari við flösku- vínin en eru hagkvæmari kostur auk þess sem þau smellpassa í ferðalög, bústaðarferðir og í raun við hvaða tækifæri sem er. PICCANTI ROSSO DI TOSCANA ÍTALÍA – 5.799 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, lyngtónar. Hentar vel með svínakjöti, alifuglakjöti sem og smáréttum. MONTALTO NERO D‘AVOLA MERLOT – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – SIKILEY – 5.999 KR. Vín sem hentar vel með alifgula- kjöti, pastaréttum, einnig flott með reyktu kjöti. MASI MODELLO ROSSO – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – VENETO – 6.650 KR. Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt, fersk sýra, mild tannín. Dökk ber, krydd, blómlegt. Smellpassar með pasta, grænmetisrétt- um sem og smáréttum. PICCANTI ROSSO DI TOSCANA ITALÍA – 5.799 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsu- ber, lyngtónar. Hentar vel með svína- kjöti, alifuglakjöti sem og smáréttum. LINDEMANS SHIRAZ / CABERNET – 3 LÍTRAR ÁSTRALÍA - 6.799 KR. Kirsuberjarautt. Meðalfylling, hálfþurrt, fersk sýra, mild tannín. Kirsuber, dökk ber, plóma, minta. Þetta vín hentar vel með alifuglakjöti, svínakjöti og grillmat. LINDEMANS CHARDONNAY – 3 LÍTRAR ÁSTRALÍA – 6.799 KR. Ljóssítrónugult. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra. Suðrænn ávöxtur, ferskja. Flott vín sem hentar með fiski og skelfiskrétt- um alifgulakjöti og smárréttum. M Y N D /D A N ÍEL Miklar framfarir Jóhann Marel Viðarsson, þjónn og kennari í Vínskóla Öl- gerðarinnar, segir miklar framfarir hafa orðið í gæðum kassavína. GIACONDI CABERNET – 3 LÍTRAR ITALÍA – 5.770 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, plómur, laukfkrydd, jörð. Smellpassar með nauta- og svínakjöti sem og gott með ostum. PICCINI LÍFRÆNT RÆKTAÐ RAUÐVÍN – 2 LÍTRAR ÍTALÍA – TOSKANA – 4.499 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra, mild tannín. Kirsuber, laufkrydd, sólbakað. Tveggja lítra pakkning, Lífrænt ræktað vín, passar vel með svína- og lambakjöti, einnig flott með grillmat sem og smáréttum. GIACONDI PINOT GRIGIO – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – VENETO – 5.999 KR. Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, mild sýra. Ljós ávöxtur, stjörnuávöxtur, krydd. Vín sem passar sem fordrykkur með fiskréttum og einnig grænmetisréttum. GATO NERO CHARDONNAY – 3 LÍTRAR CHILE – 5.799 KR. Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra. Epli, eplakjarni, sítrus. Þetta vín hentar sem fordrykkur, einnig flott með fiski sem og skel- fisk-réttum. GATO NEGRO CABERNET SAUVIGNON – 3 LÍTRAR CHILE – 5.600 KR. Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt, mild sýra, mild tannín. Sæt- kenndur rauður ávöxtur, berjaríkt. Vín sem flott er að neyta með lambakjöti, grillréttum, ostum sem og pastaréttum. IL BARONE ROSSO – 3 LÍTRAR ÍTALÍA – 4.899 KR. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, smásætt, mild sýra, lítil tannín. Kirsuber, jarðarber, lyng .Flott vín með léttri villibráð, alifugla- sem og svínakjöti og smáréttum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.