Fréttablaðið - 20.09.2014, Síða 53

Fréttablaðið - 20.09.2014, Síða 53
| ATVINNA | Stálsmiðir - Rennismiðir Við leitum að mönnum vönum smíði úr ryðfríu stáli. Einnig Rennismið í hálft eða fullt starf. Umsóknir óskast sendar á mesa@mesa.is eða sima 863-2548. Á. M. Sigurðsson ehf. - Hvaleyrarbraut 2 - 220 Hafnarfjörður Vaktavinna - Bónstöð Einstaklingur með Jákvætt og drífandi viðmót óskast í vinnu á bílaþvottastöð löðurs Fiskisslóð. Starfið felst í því að afgreiða viðskiptavini, forþvo bíla og halda aðstöðu hreinni. Handlaginn einstaklingur er kostur. Góð laun í boði fyrir réttan einstakling. Bílpróf og stundvísi skilyrði. Umsóknir sendist á netfangið lodur@lodur.is Löður ehf. ÍS LE N SK A SI A .I S IC E 7 06 60 09 /1 4 KOMDU TIL LIÐS VIÐ OKKUR SÉRFRÆÐINGUR Í VEFUMSJÓN Á SÖLU- OG MARKAÐSSVIÐI Laust er til umsóknar starf sérfræðings í vefteymi dreifikerfadeildar á sölu- og markaðssviði. Helsta hlutverk deildarinnar er að annast rekstur á viðamikilli vefsölu Icelandair á 20 vefsvæðum á 11 tungumálum. Starfsmaður vinnur náið með stjórnendum í stöðugri þróun vefsvæða Icelandair. Lögð er áhersla á vönduð og sjálfstæð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna í hóp. Við leitum að áhugasömum einstaklingi sem hefur jákvætt hugarfar, ríka þjónustulund og gott viðmót. Við bjóðum spennandi og krefjandi starf í tæknilegu og síbreytilegu starfsumhverfi þar sem öryggi, áreiðanleiki og hágæðavinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember 2014. Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 30. september 2014. STARFSSVIÐ: Dagleg umsjón, efnisinnsetning, textavinna og uppfærsla vefsöluherferða og myndefnis Aðstoð við þróun og samþættingu á vefjum með það að markmiði að efla og bæta notendaviðmót og hönnun Unnið er í VYRE CMS vefumsjónarkerfi Icelandair Vinnsla myndefnis og hönnunar, eins og til dæmis í Photoshop Samskipti við erlend sölusvæði Icelandair, teymisvinna og samvinna bæði innan fyrirtækis og utan Önnur tilfallandi verkefni er tengjast deildinni HÆFNISKRÖFUR: Háskólapróf sem nýtist í starfi Góð fagleg þekking á vefmálum er nauðsynleg Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á vefumsjónarkerfum, HTML (5), CSS og JavaScript Kunnátta og reynsla af vef- og útlitshönnun sem og þekking á hugbúnaðarþróun Reynsla af innleiðingu nýjunga í vefþróun er æskileg Góð íslensku- og enskukunnátta sem og færni í að vinna með texta á íslensku og ensku Nánari upplýsingar veita: Árni Sigurðsson I arni@icelandair.is Pétur Ómar Ágústsson I starf@icelandair.is Viltu ganga til liðs við Valitor? Valitor óskar að ráða til sín fulltrúa á svið Áhættustýringar, fjármála og mannauðs Starfssvið: // Sjá um daglegar greiðslur til innlendra og erlendra aðila // Aðstoða við uppgjör og afstemmingar // Halda utan um bankareikninga // Samskipti við erlendar og innlendar fjármálastofnanir Menntunar- og hæfnikröfur: // Stúdentspróf // Reynsla af erlendum greiðslum er skilyrði // Góð bókhaldsþekking og tölvukunnátta // Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt // Nákvæm og öguð vinnubrögð // Mjög gott vald á íslensku og ensku // Jákvætt hugarfar og hæfni í mannlegum samskiptum Upplýsingar veitir: Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is, s: 520 4700 Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Hagvangs, www.hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2014 Valitor er traust og alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem er stöðugt að skapa nýjar lausnir fyrir viðskiptavini sína. Gildin okkar, frumkvæði, traust og samvinna, knýja samhentan og metnaðarfullan starfshóp áfram í stöðugri viðleitni til að bæta þjónustuna. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 4 -2 1 2 3 Háskólatorgi, 3. hæð Sæmundargötu 4 Sími 570 0700 fs@fs.is www.fs.is FJÖLBREYTT STARF FYRIR FJÖLHÆFAN IÐNAÐARMANN Í SKEMMTILEGU STARFSUMHVERFI Félagsstofnun stúdenta auglýsir eftir starfsmanni í fullt starf hjá Umsjón fasteigna á Stúdentagörðum. Í starfinu felst afgreiðsla erinda, þjónusta við íbúa, smávægileg viðhaldsverkefni o.fl. Vinnutími kl. 8 - 16 virka daga. Iðnmenntun, tölvu- og enskukunnátta, hæfni í mannlegum samskiptum og mikil þjónustulund skilyrði. Áhugasamir sendi umsókn á starf@fs.is fyrir 6. október 2014. Félagsstofnun stúdenta á og rekur Stúdenta- garða fyrir stúdenta við Háskóla Íslands og fjölskyldur þeirra. Stúdentagarðarnir eru staðsettir á háskólalóðinni, við Lindargötu og í Fossvogi. Íbúar eru um 1.800 talsins. Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun með sjálfstæða fjárhagsábyrgð. Hlutverk hennar er að veita stúdentum ódýra og fjölbreytta þjónustu. Að henni standa stúdentar við Háskóla Íslands, HÍ og menntamálaráðuneytið. FS rekur Kaffistofur stúdenta, Hámu, Kaupfélag stúdenta, Leikskóla stúdenta, Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallarann, Bókakaffi stúdenta, Stúdentagarða og Stúdentamiðlun. Starfsmenn FS eru um 150 talsins. LAUGARDAGUR 20. september 2014 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.