Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 82

Fréttablaðið - 20.09.2014, Side 82
20. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 Fyrir viku síðan hóf ég að segja á þessum vettvangi hina undar-legu sögu um hollenska Austur-Indíafarið Batavíu, en sagan snýst reyndar fyrst og fremst um það sem gerðist eftir að skipið fórst í júní 1629. Og þar lauk einmitt frásögninni fyrir viku að skipið var að liðast í sund- ur á strandstað sínum við smáeyju um 80 kílómetra undan ströndum Ástralíu. Skip- stjórinn Ariaen Jakobsz og leiðangursstjór- inn Francisco Pelsaert sigldu strax á brott á stærsta og best búna björgunarbáti Batav- íu og hugðust reyna að finna vatn og vistir á strönd Ástralíu en ef það tækist ekki, þá freista þess að sigla alla leiðina til eyjarinn- ar Jövu, þar sem voru aðalbækistöðvar Hol- lendinga, í borg sem hét einmitt líka Batavía en er nú Djakarta, höfuðborg Indónesíu. Það var hins vegar langa leið að fara og um að mestu ókannað hafsvæði svo þeir tæplega 200 skipverjar og farþegar sem eftir urðu á eyjunni gátu ekki gert sér neinar sérstakar vonir um að þeim yrði bjargað á næstunni. Í raun var um nokkrar lágar smáeyjar að ræða og fremur grunn sund voru milli þeirra. Mikið var af fugli á eyjunum og skipbrotsmenn höfðu bjargað þó nokkrum matarbirgðum úr skipsflakinu, svo hung- ur vofði ekki yfir þeim fyrstu vikurnar, en hins vegar fundust í fyrstu engar vatns- uppsprettur svo ljóst var að þorstinn yrði erfiður. Ungur kaupmaður að nafni Jeron- imus Cornelisz hafði verið aðstoðarmaður Pelsaert leiðangursstjóra og hann tók sér því vald yfir skipbrotsmönnunum. Eitt af fyrstu verkum hans var að senda hóp dugmikilla hermanna, sem höfðu verið um borð í Batav- íu, yfir á nálæga eyju til að leita að vatni. Voru þeir fluttir þangað á lítilli skektu undir forystu Wiebbe nokkurs Hayes. Furðulegt og ógnarlegt tímabil En það bjó ýmislegt undir þeirri sendiferð af hálfu Cornelisz. Í huga kaupmannsins unga bjó hið ægilega smit valdasýkinnar og hann hafði gert sér grein fyrir að Hayes væri svo röskur maður að ef hann yrði um kyrrt á aðaleyjunni myndi hann verða Cornelisz hættulegur keppinautur um „völdin“ í samfélagi skipbrotsmannanna. Og þótt þeir hírðust þarna við hörmulegar aðstæður lengst úti í ballarhafi og lang- líklegast að allir myndu deyja úr vosbúð og þorsta áður en lyki, þá var baráttan um völdin Cornelisz samt efst í huga. En fleira kom líka til. Eins og ég sagði stuttlega frá fyrir viku, þá höfðu Jacobsz skipstjóri og Cornelisz haft í undirbúningi uppreisn gegn Pelsaert og höfðu þeir ætlað að taka yfir skipið og leggjast síðan í sjórán. Sú uppreisn var í þann veginn að brjótast út þegar Batavía strandaði, og Pelsaert áttaði sig áreiðanlega á því hvað í vændum var, þótt hann vissi reyndar ekki af hlutdeild skipstjórans. Cornelisz hlaut hins vegar að ganga út frá því að ef leiðangursstjórinn kæmist lifandi til byggða myndi Jacobsz benda á sig sem vitorðsmann og hann þyrfti ekki að kemba hærurnar. Sama yrði upp á teningnum ef Wiebbe Hayes tæki völdin á eyjunni. Hann myndi þá komast að því fyrr eða síðar að Cornelisz hefði ætlað að gera uppreisn og segja frá öllu saman ef þeim yrði einhvern tíma bjargað. Þess vegna voru Hayes og hinir hermenn- irnir sendir burt; Cornelisz ætlaðist til þess að þeir dræpust úr þorsta á eyjunni sem þeir voru sendir til. Eftir að þeir voru farnir hófst furðulegt og ógnarlegt tímabil á aðaleyjunni. Cornel- isz gerðist einræðisherra yfir skipbrots- mönnunum og naut aðstoðar þeirra skip- verja af Batavíu sem höfðu ætlað að taka þátt í uppreisninni með honum. Þeir höfðu ráð annarra skipbrotsmanna í hendi sér af því þeir höfðu undir höndum þau vopn sem Wiebbe Hayes og hermenn hans höfðu verið taldir á að skilja eftir þegar þeir héldu brott. Skemmst er frá því að segja að á örfáum vikum varð lífið á eyjunni að hreinu helvíti fyrir alla aðra en Cornelisz og hyski hans. Þegar matarbirgðir fóru minnkandi fóru þeir félagar að myrða aðra skipbrotsmenn svo þeir hefðu örugglega sjálfir nóg að bíta og brenna, fyrst voru morðin framin í laumi en svo var farið að drepa fólk fyrir allra augum. Og ekki einungis í því skyni að spara matarbirgðir, heldur gat fólk átt á hættu að vera drepið út af hvaða tylliástæðu sem var – eða hreinlega af því Cornelisz og menn hans voru í vondu skapi. Og þeir þyrmdu engum. Það höfðu þó nokkur börn verið meðal farþega á Batavíu og þau voru drepin alveg jafnt og fullorðnir. Reynar var konum þyrmt en það var aðeins vegna þess að þær voru hnepptar í kynlífsþrældóm fyrir Corn- elisz og menn hans. Ein þeirra, hin fagra Lucretía, sem hafði verið svívirt svo illa um borð í Batavíu sem átti að „hrista saman“ hóp uppreisnarmanna, hún var þó frátekin fyrir Cornelisz einan. Og Cornelisz fór brátt að skipuleggja að láta krýna sig til konungs yfir eyjunni. Valdapot og kúgun Þetta hljómar allt svo fáránlega að lesend- um fyrirgefst þótt þeir skelli upp úr yfir vitleysunni – að standa í svo grimmilegu valdapoti og kúgun yfir aðframkomnum skipbrotsmönnum á eyðieyju. En þetta var ekkert fyndið. Það sem Cornelisz og menn tóku upp á var margt svo viðurstyggilegt að engin leið er að segja frá því í virðulegu blaði eins og Fréttablaðinu. Á tveim mánuð- ÓGEÐSVERK Á EYÐIEYJU Skemmst er frá því að segja að á örfáum vikum varð lífið á eyjunni að hreinu helvíti fyrir alla aðra en Cornelisz og hyski hans. Þegar matar- birgðir fóru minnkandi fóru þeir félagar að myrða aðra skipbrots- menn. um drápu þeir um 120 manns. Mörgum tókst að flýja yfir á litlu eyjuna þar sem hinn knái Wiebbe Hayes og dátar hans höfðu reyndar fundið vatn og stýrðu þaðan andstöðu gegn kúgunarstjórn Cornelisz. Tveimur mánuð- um eftir strandið kom Pelsaert hins vegar siglandi öllum að óvörum, hann hafði náð alla leið til Batavíu á Jövu og fékk þar skip til að fara og bjarga skipbrotsmönnum. Og nú fengu Cornelisz og menn hans vissu- lega makleg málagjöld og flestir teknir af lífi. Það voru til dæmis höggnar af honum hendurnar með hamri og meitli og hann svo hengdur. Jacobsz var pyntaður grimmi- lega en játaði enga aðild að hinni fyrirhug- uðu uppreisn og ekki er ljóst hvað af honum varð. Lucretía var ákærð fyrir að hafa tekið þátt í grimmdarverkum, þar á meðal morðum, meðan hún var tilneydd fylgi- skona Corn elisz en virðist hafa verið sýknuð. Pelsaert slapp ekki heldur. Hann var sakað- ur um lélega stjórn á leiðangrinum og bæri því vissa sök á því hvernig fór. Hann var dæmdur frá eigum sínum og dó ári seinna, niðurbrotinn maður. Grimmdarmennska En verst af öllu var orðspor mannsins leikið með þessu. Verst af öllu var nefnilega ekki Cornelisz sjálfur, hans líkar leynast víða í mannkynssögunni, bæði stórir og smáir, heldur er dapurlegast að horfast í augu við að menn hans skyldu leiðast svo skjótt og örugglega út í að taka þátt í morðum, nauðg- unum og grimmdarverkum – bara af því þeir höfðu tækifæri til og hann atti þeim áfram. Þeir voru áreiðanlega upp til hópa engu meiri illmenni eða samviskulausari en fólk er flest, en allir létu sig hafa það að taka þátt í þessum ógeðsverkum. Það sem þarna gerðist var í rauninni nákvæmlega það sama og gerðist til dæmis í Þýskalandi á tímum nasista, þótt í smærri stíl væri: meira og minna venjulegir menn fóru á skelfilega skömmum tíma að líta á það sem eðlilegan og sjálfsagðan hlut að murka lífið úr sam- borgurum sínum og svívirða þá á alla lund, bara af því þeir gátu það. Og af því yfir- völdin – annars vegar nasistastjórnin, hins vegar Cornelisz – brutu markvisst og vís- vitandi niður alla þá viðteknu samfélags- og siðferðismúra sem ansi margir þurfa greinilega á að halda til að missa sig ekki út í einhverja grimmdarmennsku. En haldi nú einhver að góðan guð hafi vantað á eyjuna og því hafi allt leiðst út í þessar hörmungar, þá er það misskilningur – Jeronimus Cornel- isz var einmitt sérlega trúaður maður, hann kunni Biblíuvers í bak og fyrir og var jafn sannfærður um það og hver kristinn maður annar að hann gengi á miðjum guðs vegum. HELVÍTI Á JÖRÐ Hollensk trérista sem á að sýna villimennskuna á eyðieyjunni þar sem Batavía strandaði. FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson heldur áfram að segja sögu um hollenska austurindía- farið Batavíu. Af þeirri sögu má draga ýmsa lær- dóma – og flesta ófagra. Strandstaðurinn Indlandshaf Java Hollensku Austur-Indíur Batavía/ Djakarta Malajaskagi Súmatra Borneó ÁSTRALÍA ✖ SÖGUSVIÐIÐ F A S TU S _E _1 7. 08 .1 3 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00 Hakkavélin frá Sirman er alvöru tæki sem afkastar 25kg/10mín. Úrbeiningahnífarnir frá Granton eru heldur ekkert lamb að leika sér við. Harðjaxlar í eldhúsið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.