Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 84

Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 84
20. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 44 TEIKNAR ÞÚ FLOTTAR MYNDIR? Sendu okkur myndina þína í pósti til Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is Flöskustútur Teikningar og texti: Bragi Halldórsson 114 „Hvað skyldi þetta nú vera,“ sagði Konráð og tók upp pappírsblað með tölustöfum og undarlegum táknum sem hann sá liggja á jörðinni. „Mér sýnist þetta vera stærðfræðiþraut,“ sagði Lísaloppa. „En þessi þarna þessi þrjú tákn standa, svo þessi fjögur dæmi gangi upp,“ bætti hún við. svo dæmin gangi upp? Hrafnhildur Klara 6 ára teiknaði þessa fallegu mynd og sendi Fréttablaðinu. Það sem þarf til er ein tóm hálfs lítra gosflaska. Allir sitja í hring á gólfinu nema einn sem er inni í hringnum. Hann snýr nú flöskunni og segir: „Sá sem flöskustútur lendir á á að syngja „Gamla Nóa“. Svo snýr hann flöskunni og sá sem flöskustúturinn lendir á verður þá að syngja lagið. Þegar hann er búinn að því fer hann inn í hringinn og endurtekur leikinn. Auðvitað getur sá sem er inni í hringnum fundið upp á hverju sem er til að láta hinn gera. En þið verðið bara að muna að það verður að vera eitt- hvað sem allir geta gert. Hvenær byrjaðir þú í fótbolta? „Ég byrjaði að æfa fimm ára í 8. flokki.“ Í hvaða íþróttafélagi ertu og í hvaða flokki ertu núna? „Ég er í Breiðabliki og á að vera í 5. flokki miðað við aldur en æfi og keppi með 4. flokki, hinir strákarnir þar eru 13 og 14 ára.“ Hversu oft hefur þú orðið Íslandsmeistari með þínum flokkum og hvenær? „Ég hef orðið Íslands- meistari fjórum sinnum. Fyrst með 6. flokki A 2011, með 5. flokki A 2012 með 5. flokki A 2013 og svo núna með 4. flokki A 2014. Hefurðu spilað fótbolta víða um landið? „Já, ég hef farið á mjög marga staði víða um landið að keppa. Það var rosalega gaman á Shell-mótinu í Vestmannaeyjum. Þar fórum við í alls konar ferðir og ég var valinn til að spila með landsliðinu. Það var líka rosalega gaman í sumar að fá að spila á aðalvellinum hjá Þór á Akureyri. Ég hef til dæmis aldrei fengið að spila á Kópavogs- velli.“ Hvað æfir þú oft í viku með félaginu? „Fjórum sinnum.“ Hefurðu gott svæði til að leika þér á nálægt heimilinu þínu? „Já, í Kópavogi eru mörg mjög góð svæði til að æfa sig á í fótbolta. Ég er með fótboltavöll beint fyrir framan húsið mitt í Sala- hverfi og svo er líka sparkvöllur við skólann.“ Hvað ertu búinn að skjóta niður margar ljósa- krónur heima hjá þér?! „Ha, ha, ég hef verið svo heppinn að hafa aldrei hitt í ljósin en hef nú örugglega brotið eitthvað annað.“ Ertu alltaf með boltann á tánum eða áttu fleiri áhugamál? „Að spila fótbolta er það skemmtileg- asta sem ég geri en mér finnst líka fínt að fara í golf, á motorcross-hjól og á fimleikaæfingu með Eyþóri Erni bróður mínum.“ Hvert er þitt átrúnaðargoð í boltanum? „Ég held upp á marga eins og Ronaldinho, Iniesta, Ronaldo, Messi, Xavi og Di Maria. Svo held ég líka upp á íslenska leikmenn eins og Gylfa Sig, Kolbein Sig- þórs og Alfreð Finnboga.“ Meða hvaða erlenda liði heldurðu? „Manchester United og Barcelona eru mín lið, en mér finnst líka mjög gaman að fylgjast með Dortmund og Real Madrid.“ Í hvaða skóla ertu og og hver er eftirlætisnáms- greinin þín? „Ég er í Salaskóla og mér finnst skemmtilegast í íþróttum og svo er stundum gaman í stærðfræði.“ Hlustarðu á tónlist? „Já, ég hlusta mjög mikið á tónlist, en það er enginn einn tónlistarmaður eða -kona sem er uppáhalds.“ Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Atvinnumaður í fótbolta, ekki spurning.“ Íslandsmeistari í fót- bolta fj órum sinnum Andri Fannar Baldursson er tólf ára strákur í Kópavogi með óbilandi áhuga á fótbolta. Hann varð nýlega Íslandsmeistari í fj órða skipti með sínum fl okki. FÓTBOLTA- STJARNA Andri Fannar kveðst aldrei hafa skotið boltanum í ljósin heima hjá sér en örugglega brotið eitthvað annað! FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.