Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 98

Fréttablaðið - 20.09.2014, Page 98
20. september 2014 LAUGARDAGUR | MENNING | 58 LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER Kringlan | Smáralind /#galleri17/gallerisautjan /ntc.is/ 5 litir í boði Nýtt kortatímabil... HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Tónleikar 16.00 Raggi Bjarna spilar ástæl lög sín í Hörpu í dag. Miðaverð er 5.990 krónur. 20.00 Bat Out of Hell - Meat Loaf tribute-tónleikar verða í HOF Culture Center á Strandgötu 12 í Akureyri í kvöld. 7.900 krónur inn. 21.00 Tónlistarmennirnir Snorri Helga- son og Magnús Trygvason Eliassen eru gamlir vinir. Þeir dýrka hvor annan. Þeir eru búnir að spila saman tónlist síðan þeir voru 18 ára og þeir eru ennþá að vinna saman. Þeir ætla að spila saman alls konar tónlist í Mengi í kvöld. 21.00 Boogie Trouble heldur tónleika með miklum elegans á Kexi Hosteli laugardagskvöldið 20. september kl. 21 og er aðgangur með öllu ókeypis. Diskó- boltarnir í Boogie Trouble hafa vakið mikla lukku hvar sem þau hafa komið við undangengin misseri með dans- vænni, fjörugri og ferskri popptónlist í diskódressi. 22.00 Stebbi og Eyfi flytja öll sín þekktustu lög í bland við dægurperlur Simons & Garfunkels. Þeir munu einnig spjalla við tónleikagesti á léttu nótunum og segja óborganlegar sögur úr bransanum og einkalífinu. Þeir spila á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. 22.00 FM Belfast spila fyrir dansi á Húrra í kvöld. Svo verður partí alla nótt með DJ Solaris Sun Glaze. Miða- verð er 2.000 krónur. 23.00 Rokksveit Jonna Ólafs heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka- stíg 8, í kvöld. Aðgangur er ókeypis. Leiklist 20.00 Í kvöld verður einleikurinn Lík mitt eftir pólska leikskáldið og leikararann Boguslav Kierc flutt í Gaflaraleikhúsinu. Verkið er byggt á ljóðum stórskáldsins Adam Mickie- wicz. Það verður flutt með íslenskum texta og sjónlýsingu fyrir blinda og sjónskerta. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Panta þarf sæti tímanlega. Sýningar 14.00 Í dag er opnun sýningar í tilefni 10 ára afmælis litháíska sunnudagaskólans í Kringlusafni, Kringlunni. Allir velkomnir. Síðustu forvöð 20.00 Seinasta kvöld af sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur er í Kunstschlag- er á Rauðarárstíg 1 í kvöld. Íþróttir 11.30 Í dag fara fram tvær keppnir á kvartmílubrautinni. Þriðja umferð íslandsmótsins í kvartmílu og King of the Street. Tímatökur fyrir báðar keppnirnar hefjast kl. 11.30. Keppni í íslandsmótinu hefst svo kl. 13.15 og í King of the Street mun keppnin hefjast um klukkustund síðar eða um 14.15. Miðaverð er aðeins 1.000 kr. og frítt fyrir 12 ára og yngri. 13.00 Um helgina er ein erfiðasta keppnin í rallíkrossi sem haldin er ár hvert af rallíkrossdeild AÍH. Hún er haldin 20. og 21. september á Akst- ursíþróttasvæði AÍH í Kaphelluhrauni í Hafnarfirði. Miðaverð er 1.000 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri. 17.00 KexReið 2014 er hjólreiða- keppni Kex Hostels og Kríu Cycles og verður hún haldin að öðru sinni í dag. KexReið er haldin í Skugga- hverfinu um braut sem liggur um Skúlagötu og Hverfisgötu og er um að ræða 30 kílómetra leið og verða keppendur ræstir kl. 17 við almenn- ingsgarð Kex Hostels sem flestir þekkja nú sem Vitagarð. Hámarks- fjöldi keppenda í KexReiðinni í ár er eitt hundrað og fer skráning fram í gegnum www.kexland.is og er þátt- tökugjald 2.500 kr. Söngskemmtun 20.00 Í kvöld verður opið og ókeypis karókíkvöld á Kaffi- og ölstofu Tjarn- arbíós frá klukkan átta. Tilvalið fyrir alla sem syngja í sturtu, í bílnum eða bara hvar sem er. Pub Quiz 20.00 Heimdallur býður í pub quiz næsta laugardagskvöld í Valhöll á Háaleitisbraut 1. Spurningarnar verða fjölbreyttar og skemmtilegar. Nóg af bjór er í boði fyrir bæði þá sem vita allt og hina sem vita aðeins minna. Málþing 14.00 Málþing um íslensku lopa- peysuna verður haldið í Bókasafni Mosfellsbæjar l í dag frá kl. 14-16. Tilgangurinn með málþinginu er að kalla eftir upplýsingum frá almenn- ingi. Það væri gagnlegt að fá að sjá peysur, munstur, greinar og nöfn prjónakvenna. Gestir sem koma á málþingið eru hvattir til að koma með upplýsingar, ljósmyndir, peysur og annað fróðlegt sem gæti gagnast rannsóknarverkefninu. Dans 22.00 Dansa meira með Má og Nielsen verður haldið á Kaffibarnum í kvöld. Tónlist 20.00 Trúbadorarnir Alexander & Guðmann / Ellert spila á English Pub í kvöld. 21.00 DJ Logi Pedro spilar á Prikinu í kvöld. 21.00 DJ Smutty Smiff byrjar á Lebowski Bar í kvöld og síðan tekur DJ Anna Brá við. 21.00 DJ Benson is fantastic spilar fyrir dansi á Palóma í kvöld. 21.00 DJ Dong spilar óskilgreinda dongtónlist á Frederiksen Ale House í kvöld. 21.00 KSF spilar á Palóma og svo verður leyniplötusnúður. Myndlist 12.00 Einn helsti graffari Svíþjóðar, Jonathan Josefsson sýnir gröffuð teppi sín í Norræna húsinu í dag. Listamaðurinn verður viðstaddur á opnunardeginum og spjallar við gesti og gangandi frá kl. 12-17. 14.00 Curver Thoroddsen er með síðustu sýninguna í núverandi rými ÞOKU og er róf gráskalans meðal viðfangsefna. Curver sýnir vídeó- gjörning sem hann vann sérstaklega fyrir þessa sýningu og tók upp í gall- eríinu. Á húmorískan, einfaldan og einlægan hátt leikur hann sér með gráskalann og andstæða póla hans, svartan og hvítan, nema að hann gerir það í lit. 14.00 Kristín Pálmadóttir opnar sýninguna Hlýnun laugardaginn 20. september í sýningarsal félagsins Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu hafnarmegin. Meginviðfangsefni Kristínar síðustu árin hefur verið ljósmyndaæting og málun. Myndefni í báðum miðlum tengjast náttúrunni, krafti hennar og breytingum. Hvaða áhrif hefur hlýnun jarðar á umhverfi okkar. Sýningin stendur til 5. október 2014 og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14-18. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Tónleikar 18.30 Í kvöld efna Breytendur - Change- maker Iceland til pönktónleika í Hell- inum úti á Granda (Hólmaslóð 3) til að mótmæla olíuvinnslu við Íslandsstrendur. Aðgangseyrir eru litlar 500 krónur en hljómsveitirnar Buxnaskjónar, Börn, Kælan mikla og Caterpillarmen koma fram. 22.00 Ábreiðuhljómsveitin Goðsögn spilar klassískt rokk á Hressó í kvöld. Sýningar 14.00 Trúðleikur, drepfyndin og hjart- næm fjölskyldusýning fyrir alla fjölskyld- una sem hefur fengið frábærar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda verður sýnd í Tjarnarbíói í dag. Kvikmyndir 15.00 Í dag verður sýnd í MÍR, Hverfis- götu 105, leikin kvikmynd byggð á ævi- sögu eins frægasta ballettdansara allra tíma, Vaslavs Nizhinskíj. Á fyrstu árum síðustu aldar var hann talinn fremstur allra karldansara og dáður um heim allan, en hann glímdi lengi við þungbær geðræn veikindi. Aðgangur ókeypis. Málþing 17.00 Málstofa FAAS, Félags aðstand- enda alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma heldur málstofu um forvarnir og heilabilun á Grand Hóteli, Hvammi í dag á milli 17 og 19. Ljósmyndasýningar 12.00 Sýning Marks Chester, Twosomes, opnuð í dag. Hún er afrakstur af því að listamaðurinn ferðaðist með myndavél á sér í meira en 40 ár. Leiðsögn 14.00 Halldór Björn Runólfsson, safn- stjóri Listasafns Íslands, leiðir gesti um sýninguna Í ljósaskiptunum. Sýningin tekur mið af þeim magnaða hluta sólar- hringsins, sem hvorki er dagur né nótt heldur bil milli beggja. Verk sýningarinnar eru öll eftir íslenska listamenn úr safneign Listasafns Íslands, og spanna tímabilið frá 1900 til 2013. 15.00 Í dag tekur Sólveig Aðalsteins- dóttir myndlistarmaður þátt í leiðsögn og ræðir við gesti um verk sín á sýningunni Rás, sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Sýningarstjóri Rásar er Helga Þórsdóttir menningarfræðingur en hugmynd hennar að þessari sýningu var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu 2014 í Hafnarborg. Rás er fjórða sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar en nú er kallað eftir tillögum að sýningu í safninu haustið 2015. Dansleikir 20.00 Dansað verður í Félagsheimili eldri borgara í Reykjavík í Stangarhyl 4 á sunnudagskvöld frá kl. 20 til 23. Hljóm- sveitin Klassik leikur fyrir dansi. Félagar taki með sér gesti. Aðgangseyrir er 1.800 krónur en 1.500 krónur gegn framvísun félagsskírteinis. Myndlist 00.00 Breski myndlistarmaðurinn S. Mark Gubb sýnir verk sitt Pura Vida á Gallerý Skilti sem er utan á húsinu að Dugguvogi 3, 104 Reykjavík (á horni Dugguvogs og Kænuvogs). 11.00 Sýning listamannsins Hrafnkels Sigurðssonar verður opnuð í dag í i8 Gallery, Tryggvagötu 16. Opið til 17. Stendur til 4. október. Samkoma 14.00 Almenningur mun fylkja liði víðs vegar um heim til að krefjast þess að gripið verði til aðgerða til að hefta útblástur gróðurhúsalofttegunda. Til þess að undirstrika kröfur um að stjórnvöld axli ábyrgð, taki ógnina sem felst í lofts- lagsbreytingum alvarlega og grípi til aðgerða, munu gestir taka þátt í þessum alheimsviðburði með kröfugöngu og úti- fundi í Reykjavík. Safnast verður saman við hið svokallaða Drekasvæði sem stað- sett er á horni Njálsgötu, Frakkastígs og Kárastígs og labbað sem leið liggur niður á Austurvöll. 15.00 Á sunnudaginn verða Bókaverðlaun barnanna veitt við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15. Þá kemur í ljós hvaða tvær barnabækur, af þeim bókum sem gefnar voru út á síðasta ári, eru bestar að mati barna á aldrinum sex til tólf ára. Valið á bókunum fór að venju fram á heimasíðu Borgarbókasafns og í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is 20. SEPTEMBER Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Frá kr. 69.900 9. október í 4 nætur Frábær 4 nátta helgarferð – allra síðustu sætin! Frá kr. 69.900 Netverð á mann, m.v gistingu í tvíbýli á Hotel Ilf í 4 nætur með morgunmat. Sértilboð 9. október. Prag ð v e ð v e ð ve ð v e ð v e ð v e ð v e ð v e ð ve ðððð g e g e gggggggggggggggggggg rð g ð g rð gggggggggg rð g ð g rð g rð g rð g rð g rð g tu r b ur re ys t r á Ót rúl eg t v erð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.