Læknablaðið - 15.04.2001, Page 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐHORFSKÖNNUN GALLUPS
Könnunin sem varð að karpi
Að undanförnu hefur verið talsverð umfjöllun
í fjölmiðlum um viðhorfskönnun sem Islensk
erfðagreining lét gera nýverið og þeirra eftirmála
sem urðu eftir að könnunin var kynnt. Læknablaðið
mun að þessu sinni skyggnast á bak við tjöldin og
gefa lesendum sínum eins glögga mynd af atburða-
rásinni og unnt er og skoðunum nokkurra helstu
þátttakenda í þessari atburðarás. Einnig þótt rétt að
hafa samband við óháðan fulltrúa frá Háskóla
fslands og fá álit hans á nokkrum spurningum sem
vöknuðu í kjölfar könnunarinnar. í>á eru birt með
greininni nokkur helstu gögn sem málið varða með
leyfi viðkomandi aðila.
Kannanirnar
í raun var um tvær kannanir að ræða, önnur náði til
„Starfandi lækna á íslandi" en í hinni var 1200 manna
slembiúrtak úr þjóðskrá spurt. Spurningarnar sem
spurt var í könnun þeirri sem gerð var meðal lækna
9.-12. febrúar síðastliðinn voru eftirfarandi:
1. Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) uppbyggingu á
miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði effarið er
eftir öllum skilmálum alþjóðasamtaka lœkna og
vísindasamfélagsins?
Viðhorfsrannsókn
meðal lækna
íslensk erfðagreining
Febrúar2001
GALLUP ES3
yýrsld þeul og uxihj'jl henw er tlngonju lli tnninliúunou hji [m fyrkUihl eAa þeim elmUWIngi sem haivi
keypU. OUcpinberblrtlngeAadreillngeróheliniUnyintlegsleytuGeUupálslendi.
UmmeóferðicplýilngiumumarióurðaityrtrtvklgllddeftlifjianduegluiPeisóniMmdar:
Þeu ber varvjlega að g*ta. að fartð verði með upplyilngjr um þau f ynrtckl. sem tekln eru til samanburðar vlð
það fyrtrt*kl sem óskar ettlr konnui, sem uúnaðarmal, og að þ*r benst ekkl tll annarra aðUa en þeirra sem
óskaðhataetllrviðkomaniJlliónnui JatnframtertMfyrtnaeklóhelmlltaðbinaipptysingarum
samanbuðartyrtruekln á nokkum hált.
AUurrótturáskAlm: CGalkpa Islandi
Gallup a Islanði er aðili
að Gallup Internatlonal
2. Ertu sammála eða ósammála þeirri ákvörðun
stjórnar Lœknafélagsins að slíta viðrœðum við
Islenska erfðagreiningu um miðlœgan gagnagrunn á
heilbrigðissviði?
Svörin við fyrri spurningunni um gagnagrunn að
uppfylltum skilyrðum voru þessi (vikmörk +/- í
sviga):
Mjög fylgjandi 57,2% (4,3)
Fremur fylgjandi 26,7% (3,8)
Hvorki né 2,2% (1,3)
Fremur andvíg(ur) 2,2% (1,3)
Mjög andvíg(ur) 11,8% (2,8)
Fylgjandi alls 83,9% (3,2)
Hvorki né 2,2% (1,3)
Andvígir alls 13,9% (3,0)
Svörin við seinni spurningunni um viðræðuslitin
voru þessi:
Mjög sammála 44,4% (4,4)
Fremur sammála 12,3% (2,9)
Hvorki né 4,5% (1,8)
Fremur ósammála 10,5% (2,7)
Mjög ósammála 28,3% (4,0)
Sammála alls 56,7% (4,4)
Hvorki né 4,5% (1,8)
Osammála alls 38,8% (4,3)
Þýðið í könnuninni var 790 manns. Erlendis, veikir
eða látnir voru 11, endanlegt úrtak var því 779. Af
þeim neituðu 97 að svara og ekki náðist í 100. Fjöldi
svarenda var samtals 582, sem gefur 74,7% svarhlut-
fall.
Þýðið í könnuninni er skilgreint sem „Starfandi
læknar á Islandi“. Það byggist að stofni til á skrá frá
landlæknisembættinu um starfandi lækna á íslandi,
sem mun væntanlegt á vefsíðu embættisins innan
skamms. Á þeirri skrá sem nú er á vefsíðunni eru
tæplega 1600 nöfn en þar á meðal eru allar heilsu-
gæslustöðvar í landinu, læknar sem hafa hætt störfum
vegna aldurs og læknar sem starfa erlendis. Gallup
fór yfir skrá landlæknisembættisins þar sem læknar
eru taldir á níunda hundrað og eftir athugun þeirra
var niðurstaðan sú að þýðið væri rétt talið 790 manns.
Til samanburðar má geta þess að þeir læknar sem eru
Læknablaðið 2001/87 337