Læknablaðið - 15.04.2001, Side 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐHORFSKÖNNUN GALLUPS
Hárrétt ákvörðun að slíta viðræðum
SlGURBJÖRN SVEINSSON, FORMAÐUR LÆKNAFÉLAGS
íslands, hefur þurft að svara ýmsum spurningum
fjölmiðla varðandi skoðanakönnun Gallups fyrir ís-
lenska erfðagreiningu. Hann var í sjálfu sér ekkert
sérlega undrandi á því að skoðanakönnunin væri
gerð. Hver er ástæða þess að könnunin kom honum
lítið á óvart:
„Ég lét þau orð falla á fundi á Akureyri að ég
teldi að meirihluti lækna væri sammála stjórn
Læknafélagsins urn meginatriðin í gagnagrunns-
málinu. Ég var spurður úr hvaða gagnagrunni ég
hefði þá niðurstöðu. Ég benti á höfuðið og sagði:
„Þessum hérna“. Skömmu síðar var könnunin
gerð.
Við, sem í viðræðunum stóðum, vorum með
fingurinn á púlsinum og þurftum auðvitað að bera
ábyrgð á þessari ákvörðun og gera það sem okkur
fannst vera rétt í stöðunni. Auðvitað urðu margir
fyrir vonbrigðum þegar við slitum viðræðunum,
vonuðu að þessu máli myndi ljúka í friði. Þegar
blaðamannafundur íslenskrar erfðargreiningar
var haldinn án þess að kynna niðurstöðuna úr
þeim hluta könnunarinnar sem varðaði viðræðu-
slitin, þá lýsti ég eftir svarinu í útvarpsviðtali. Ég
hugsaði með mér, að ef svo kynni að fara að
niðurstaðan væri stjórn Læknafélagsins í óhag, þá
væri eins gott að taka slaginn strax. íslensk
erfðagreining lýsti því síðar yfir að þessi spurning
hafi ekki átt heima með hinni fyrri. Skýringarnar á
því hvers vegna niðurstöðurnar voru ekki birtar
eru ruglingslegar og mér finnst þar hvað rekast á
annars horn. Ég skal alveg viðurkenna að ég hef
ekki alveg skilið þær ennþá.
En auðvitað er ég ánægður með niðurstöðuna
og bara þakklátur fyrir þessa skoðanakönnun, því
ég álít að hún hafi ekki gert annað en að endurnýja
það umboð sem við höfðum frá aðalfundi
Læknafélags íslands í haust. Eftir því sem tíminn
líður sannfærist ég æ betur um um að þessi
ákvörðun hafi verið hárrétt.“
Hvað fannst þér um að fyrirtœki úti í bœ vœri að
spyrja umbjóðendur ykkar álits?
„Það leynist ekki nokkrum manni að þessi
skoðanakönnun er gerð í áróðursskyni, í þeirri
von að hægt yrði að einangra stjórn Lækna-
félagsins frá öðrum félögum í Læknafélaginu og
skapa sér þannig betri vígstöðu. Það mistókst.
Það er í rauninni tvennt sem hefur verið reynt
að gera, annars vegar að einangra stjórn Lækna-
félagsins frá félögum þess og hins vegar að reka sigurbjörn Sveinsson,
fleyg á milli Læknafélags íslands og Alþjóðafélags formaður Lœknafélags
lækna. Hvort tveggja hefur mistekist. Tíminn er íslands.
þeirrar náttúru að hann vinnur með þeim sem
hefur góðan málstað að verja.“
Alþjóðafélag lœkna hefur talsvert verið í
sviðsljósinu vegna þessa máls og Kári Stefánsson
forstjóri íslenskrar erfðargreiningar hefur látið
nokkur orð falla um samskipti ykkar og félagsins.
Hvernig snýr það mál að þér?
„Kári Stefánsson gaf í skyn í blaðaviðtali 27.2.
að við Tómas Zoega gætum stýrt Alþjóðafélagi
lækna með símhringingum. Það er auðvitað alveg
út í hött. Framkvæmdastjóri Alþjóðafélags lækna,
doktor Delon Human, hefur bæði í bréfi til mín og
í samtali við Morgunblaðið leiðrétt ýmislegt af því
sem Kári hefur sagt í fjölmiðlum. En það sem
hann gerir er auðvitað alveg hans eigin ákvörðun.
í bréfinu sem hann sendi til mín áréttaði hann að
reglurnar um gagnagrunna væru enn í vinnslu og
þar af leiðandi væri það óeðlilegt ef íslensk
erfðagreining byggði á einhvern hátt stefnu sína á
þeim drögum sem nú eru í vinnslu. Hann ítrekar
einnig í bréfinu að allt tal um að Læknafélag
Islands og Alþjóðafélag lækna séu ósamstíga sé út
í hött og ég megi ekki láta neinn komast upp með
að reyna að halda því fram. Alþjóðafélag lækna
hefur ávallt stutt baráttu Læknafélagsins fyrir því
að sjúklingum sé sýndur trúnaður og að upplýst
samþykki sjúklings þurfi til að upplýsingar um
hann séu vistaðar í gagnagrunni. Félögin hafa líka
talað einum rómi um rétt sjúklings til að draga
Læknablaðið 2001/87 341