Læknablaðið - 15.04.2001, Qupperneq 97
S MAS JAI N
Fréttir frá félögunum
Danmörk: Fulltrúar greindu frá nýjum lögum
um heilbrigðisþjónustu sem gefa yfirvöldum
möguleika á enn nánara eftirliti með læknum
og möguleika á aðgerðum svo sem að
tilkynna opinberlega um lækna sem ekki
þykja standa sig. Þeir greindu einnig frá
athugun sem Vinnueftirlitið danska hefur
verið að gera á vinnuaðstöðu lækna sem í ljós
kom að var víða bágborin. í kjölfarið hafa
nokkrar heilbrigðisstofnanir fengið tilmæli
um úrbætur.
Svíþjóð: Verið er að ganga frá samningum
og verða þeir meira staðbundnir en áður.
Greint var frá starfi vinnuhóps sem skoðar
starfsaðstæður lækna á kerfisbundinn hátt og
reynir að koma á úrbótum í kjölfarið. Vegna
læknaskorts hefur verið unnið að innflutningi
lækna frá Evrópubandalagslöndunum og
hafa þeir einkum komið frá Spáni og
Þýskalandi, en einnig hefur verið nokkuð um
innflutning frá Póllandi. Verið er að setja á
laggirnar sérstaka endurmenntunarstofnun
(Institut för lakarnas professionella utveck-
ling), en ekki var nánar greint frá hlutverki
hennar.
Finnland: Verið er að undirbúa verkfall
sem að óbreyttu skellur á eftir fimm daga,
þegar þetta er skrifað. Mikill undirbúningur
hefur átt sér stað og verkfallið er skipulagt í
smáatriðum þar sem sjúkrahús, heilsugæslu-
stöðvar og einstakar deildir skiptast á.
Fulltrúar greindu frá því að aðgerðirnar
hefðu töluverðan stuðning í samfélaginu.
Takmarkið er að hækka grunnlaun til
samræmis við það sem gerist f Skandinavíu
en það þýðir hækkun um 20%. Við-
semjendur eru tilbúnir að hækka laun um
5,5% sem er sambærilegt og aðrir hafa verið
að fá nema á finnska þinginu þar sem menn
hækkuðu laun sín um 20%!
Island: Sagt var frá nýjum lögum um
sjúklingatryggingar og hvernig þau snerta
lækna. Sagt frá lögum um persónuvernd.
Lesnar voru upp þakkir stjórnar LÍ til
Anders Milton fyrir stuðning hans við
sjónarmið LÍ gagnvart stjórnvöldum í gagna-
grunnsmálinu.
Noregur: Sagt var frá skipulagsmálum
sjúkrahúsanna þar sem þau eru nú að færast
til ríkisins en jafnframt eru þau gerð að
sjálfseignarstofnunum. Margir líta á það sem
upphaf að einkavæðingu. Norska lækna-
félagið styður þessar fyrirætlanir.
Næsti fundur verður haldinn í Reykjavík
27. og 28. ágúst næstkomandi.
Jón Snædal
Margrét Aðalsteinsdóttir
Fosshótel
Ódýrar en margur heldur
í upplýsingabæklingi orlofsnefndar LÍ, sem út kom fyrir skemmstu,
er meðal annars fjallað um samkomulag það sem náðist við Foss-
hótel um möguleg kaup félagsmanna LÍ á gistimiðum.
Rétt er að benda sérstaklega á að uppgefið verð á gistimiða, kr.
6.100 fyrir nóttina með morgunverði, gildir fyrir tvo í tveggja
manna herbergi.
Sá skilningur hefur komið upp að gistinóttin kosti 6.100 kr. fyrir
einstaklinginn, en boðið er sem sagt enn betra!
Sala gistimiða fer fram á aðalskrifstofu Fosshótela að Skipholti
50c, Reykjavík gegn framvísun félagsskírteinis LÍ. Sími á skrif-
stofunni er 562 4000, en sameiginlegt bókunarnúmer fyrir öll
Fosshótelin er 562 3355.
Að öðru leyti vísast til upplýsingabæklings orlofsnefndar.
Norræn samtök um
læknaskop. Opin
öllum íslenskum
læknum
Sá leiði misskilningur mun hafa risið,
að Norræn samtök um læknaskop
(Nordisk Selskap for Medisinsk
Humor, NSMH) séu lokaður félags-
skapur nokkurra sérvitra hláturbelgja
og Noregsvina, sem haldi að þeir séu
fyndnir!
Hið rétta er, að samtökin eru
opin öllum íslenskum læknum án
tillits til kynferðis, aldurs, tungu-
máls, litarháttar, vaxtarlags, fjölda
höfuðhára eða skóstærðar. Kímni-
gáfa hefur ekkert með inntöku-
skilyrði að gera, en hún telst þó ekki
til persónugalla.
Þeir kollegar sem hafa áhuga á
að verða félagar í NSMH og þá um
leið félagar í Fróndeild samtakanna
geta haft samband við undirritaðan.
Þeir hinir sömu ættu ekki að búast
við því að aðild að samtökunum hafi
í för með sér almenn leiðindi.
Árgjald fyrir árið 2001 er 200
krónur (íslenskar, sic!).
Með broskveðju,
Bjarni Jónasson, varaforseti NSMH
og forstöðumaður Fróndeildar.
Sími: 520 1800; netfang:
bjarni.jonasson@hg.is
Læknablaðid 2001/87 369