Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2001, Síða 101

Læknablaðið - 15.04.2001, Síða 101
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 6 Faraldsfræði í dag Áhætta María Heimisdóttir Netfang: mariah@decode.is Áhætta (risk) er mælikvarði á tilurð nýrra sjúkdómstilfella í þýðinu og er skilgreind sem það hlutfall „heilbrigðra“ einstaklinga sem fá sjúkdóminn á tilteknu tímabili. Lykilatriðin í þessari skilgreiningu eru þrjú. í fyrsta lagi: um er að ræða ný tilfelli (incident cases). í öðru lagi: áhættan er skilgreind með tilliti til ákveðins tímabils, ekki er hægt að vísa til til dæmis tvöfaldrar áhættu án þess að taka fram að átt sé við tiltekið tímabil. Síðast en ekki síst: hlutfall „heilbrigðra“ einstaklinga sem fá sjúkdóminn byggist eingöngu á þeim hluta þýðisins sem á raunverulega á hættu að fá tiltekinn sjúkdóm, það er áhættuþýði (population at risk). Þannig er áhætta á legkrabba- meini reiknuð út frá hlutfallinu milli fjölda heilbrigðra kvenna sem fá sjúkdóminn og fjölda heilbrigðra kvenna almennt, en ekki sem hlutfall af öllu þýðinu, þar sem um það bil helmingur þess á alls ekki á hættu að fá legkrabbamein. Áhætta hefur engar einingar en miðast við skýr tímamörk, talað er um að áhættan sé til dæmis 10% á 10 árum. Vegna skírskotunar til fjölda tilfella á tilteknu tímabili er áhætta einnig nefnd heildarnýgengi (cumulative incidence) þar sem um er að ræða safntölu nýgengis yfir ákveðið tímaskeið. Nýgengi, það er fjöldi nýrra tilfella á ákveðnu tímabili í skilgreindum hluta áhættuþýðisins, er einnig mælikvarði á áhættu en hefur tiltekinn fjölda einstaklinga sem einingu, til dæmis er talað um nýgengi á einu ári meðal 100.000 einstaklinga. Áhætta, eins og hún er skilgreind að ofan, endurspeglar áhrif allra orsakaþátta sjúkdómsins, jafnt áhættuþátta sem vemdandi þátta, en er ekki mælikvarði á áhrif einstakra áhættuþátta. Um er að ræða þá áhættu sem á við um allt áhættuþýðið að meðaltali en vísar ekki sérstaklega til einstaklinga innan þýðisins. Á ensku hefur slík meðaláhætta verið nefnd background risk. TIl að meta áhættuna sem tengist einstökum áhættuþáttum, og þar með skapa möguleika til að meta áhættu einstaklinga, er notuð hlutfallsleg áhætta (relative risk, risk ratio). Þá er fyrst reiknuð áhætta meðal þeirra sem hafa tiltekinn áhættuþátt og síðan meðal þeirra sem ekki hafa þennan áhættuþátt. Hlutfallsleg áhætta er hlutfallið á milli þessara tveggja stærða eða hlutfall heildamýgengis milli þessara tveggja hópa, henni fylgir engin eining. Hlutfallsleg áhætta lýsir styrk tengslanna á milli áhættuþáttar og sjúkdóms, hún er afleiða af áhættu og því gilda um hana sömu lykilatriði og lýst var að ofan. Rétt er að leggja sérstaka áherslu á mikilvægi tíma við mat á áhættu eða hlutfallslegri áhættu. í báðum tilfellum verður að miða við vel skilgreint tímabil og áhættan getur verið mjög mismikil eftir lengd tímabilsins. Þetta verður best skýrt með dæmi. Setjum sem svo að meta eigi áhrif áhættuþáttar X á almenna dánartíðni með því að bera saman dánartíðni tveggja hópa þar sem annar hefur áhættuþáttinn en hinn ekki. Óháð dánartíðni meðal einstakra aldurshópa verður dánartíðnin augljóslega hin sama (100%) fyrir báða hópana, hvað sem áhættuþættinum líður, ef við fylgjumst með þeim nægilega lengi. Áhrif X á dánartíðnina eru greini- legust til skemmri tíma litið og munu dvína eftir því sem eftirlitstímabilið lengist, hlutfallslega áhættan mun stefna á 1,0. Lengd tímabilsins sem áhættumatið á við um er aðeins einn af mörgum tímatengdum (temporal) þáttum sem hafa þarf í huga við mat og túlkun á áhættu. Áhætta getur augljóslega vaxið eða dvínað eftir því sem lengra líður frá áreiti. Jafnframt getur tiltekið áreiti haft í för með sér mjög mismikla áhættu eftir aldri og þroska einstaklings sem fyrir því verður. Þannig verður túlkun á áhættu að byggjast á full- komnum upplýsingum um alla þá tímatengdu þætti, og auðvitað ýmsa aðra þætti, sem mikilvægir eru í hverju tilviki. Þar sem áhætta og hlutfallsleg áhætta byggjast á nýgengi, en ekki algengi, er almennt aðeins unnt að reikna þessar stærðir út frá rannsóknum þar sem fylgst er með einstaklingum yfir tiltekið tímaskeið. Þannig má reikna áhættuhlutfall í ferilrannsókn þar sem fylgst er með nýgengi sjúkdóms meðal einstak- linga með og án tiltekins áhættuþáttar. Eins má nota gögn úr sjúklingasamanburðarrannsókn (case- control study) að tilteknum skilyrðum uppfylltum (sjá nánar síðar). Almennt er ekki unnt að meta áhættu eða hlutfallslega áhættu í þverskurðar- rannsóknum (cross-sectional studies) þar sem rann- sóknin fer fram á ákveðnum tímapunkti og einstak- lingunum er ekki fylgt eftir í tíma til að finna ný tilfelli. Læknablaðið 2001/87 373 L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.