Læknablaðið - 15.04.2001, Side 104
Norvasc
Pfizer, 880133. TÖFLUR; C 08 C A 01 R B. Hver lafla inniheldur: Amlodipinum INN, besýlat, samsvarandi Amlodipinum INN 5 mg eða 10 mg. Eiginleikar: Kalsíumblokkari,
díhýdrópýrídínafbrigði með löngum helmingunartíma. Minnkar innflæði kalsíumjóna i frumur hjartavöðvans og sléttra vöðva I æðum. Lækkar blóðþrýsting, vegna beinna slakandi áhrifa
á slétta vöðva I ædum. Útvikkun á slagæðum og kransæðum dregur úr hjartaöng. Mesta blóðþéttni er eftir 6-12 klst. Helmingunartími er 35-50 klst. Fullnægjandi blóðþéttni fæst með
einni gjöf daglega og jöfn þéttni eftir 7-8 daga. 10% útskilst óbreytt og 60% sem niðurbrotsefni I þvagi. Ábendingar: Háþrýstingur, hjartaöng. Frábendingar: Olnæmi fyrir lyfinu og
skyldum lyfjum. Meðganga og brjóstagjöf. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun lyfsins er vægur ökklabjúgur sem er háður skömmtum (3% við 5 mg/dag og 11% við 10 mg/dag).
Algengar (>1%): Almennar: Ókklabjúgur, höfuðverkur, svimi, roði og hiti i andliti, þróltleysi. Hjarta: Hjartsláttarónot. Miðtaugakerfi: Vöðvakrampar. Meltingarfæri: Ögleði, magaverkir.
Öndunarfæri: Andþrengsli. Sjaldgælar (0,1-1%): Hjarta og blóðrás: Blóðþrýstingsfall, hraðtaktur, brjóstverkir. Húð: Útbrot, kláði. Stodlcerf/: Verkir í vöðvum og liðum. Geð: Svefntruflanir.
Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Hjarta: Aukaslög. Meltingarfæri: Ofvöxtur I tannholdi. Húð: Ofsakláði, regnbogaroðsótt. Lilur: Aukið magn lifrarenzýma i blóði. Geð: Rugl. Umbrot: Hækkun
blóðsykurs. Milliverkanir: Ekki þekktar. Eiturverkanir: Varast skal að hefja meðferð hjá eldra fólki með háum skammti, en viðhaldsskammtur er svipaður I öllum aldurshópum. Helmingunartíminn
lengist hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Ofskömmtun getur valdið of lágum blóðþrýstingi. Skammtastærðir handa fullorðnum: 5 mg einu sinni á dag. Má auka í 10 mg á dag.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar og verð (1. mars 2001): Töflur 5 mg: 30 stk. (þynnupakkað) kr. 2.901
Töflur 5 mg: 100 stk. (þynnupakkað) kr. 7.346
Töflur 10 mg: 30 stk. (þynnupakkað) kr. 4.143
Töflur 10 mg: 100 stk. (þynnupakkað) kr. 11.584
Samningur Pfizer við lyfsala í landinu gerir þeim kleift að selja Norvasc® á viðmiðunarverði.
Umboðsaðili á Islandi: Pharmaco hf.