Læknablaðið - 15.04.2001, Blaðsíða 105
Stofnað Félag íslenskra áfengis-
og vímuefnalækna
Nýverið var stofnað Félag íslenskra
áfengis- og vímuefnalækna (Icelandic Society of
Addiction Medicine). Tilgangur félagsins er
meðal annars að efla kennslu, þekkingu og
rannsóknir á sviði fíknisjúkdóma, vímuefnafræða
og vímuefnalækninga, ekki síst meðal lækna og
annarra heilbrigðisstétla.
Félagar geta orðið þeir íslenskir læknar sem
hafa eða hafa haft vímuefnalækningar og
meðferð að starfi eða hafa sérstakan áhuga á
málinu.
Sextán læknar hafa gerst stofnfélagar að
FÍÁV en ákveðið var á framhaldstofnfundi 27.
febrúar síðastliðinn að þeir sem gengju í
félagið á árinu 2001 teldust stofnfélagar.
Tengsl eru við alþjóðasamtökin ISAM,
International Society of Addiction Medicine.
Guðbjörn Björnsson er stjórnarmaður í ISAM
en árlegt þing samtakanna verður haldið hér á
landi árið 2002.
I stjórn félagsins voru kjörin: Þórarinn
Tyrfingsson formaður, Sveinn Rúnar
Hauksson ritari og Elín Hrefna Garðarsdóttir
gjaldkeri. Endurskoðendur eru Jóhannes
Bergsveinsson og Valur Júlíusson.
Staða kvenna í læknastétt á íslandi
Málþing 17. maí kl. 13.30-16.00 í Hlíðasmára 8
Um tæplega tveggja ára skeið hefur verið
starfandi Félag kvenna í læknastétt á íslandi -
FKLÍ. Félagið hefur ýmis stefnumál á dagskrá
sinni með megináherslu á stöðu kvenna innan
læknastéttarinnar, hvernig megi bæta hana og
efla. Nokkur kynning fór fram á félaginu,
markmiðum þess og væntingum félagskvenna í
febrúar- og marsheftum Læknablaðsins. Þar
kemur meðal annars fram að konur hafa á
undanförnum árum sótt í meira mæli í nám í
læknisfræði. Þær hafa einnig í auknum mæli
haldið af stað í sérnám og er vaxandi fjöldi
kvenna starfandi í flestum sérgreinum læknis-
fræðinnar hér á landi. En þegar litið er til
stöðuveitinga á stóru sjúkrahúsunum og innan
Háskóla íslands, einkum varðandi stjórnun og
kennslu, fæst ekki sama speglun.
Til þess að varpa nánara ljósi á stöðu
kvenna í læknastétt hér á landi, framgang
kvenna til starfa og hindranir á þeirri leið,
hyggst félagið efna til málþings undir yfir-
skriftinni Skref til framtíðar. Hvert stefnuni við í
jafnréttismálum? með þátttöku forsvarsmanna
lækna og stjórnenda í heilbrigðiskerfinu.
Málþingið verður haldið fimmtudaginn 17.
maí kl. 13.30-16.00 í húsakynnum Lækna-
félaganna í Hlíðasmára 8, Kópavogi.
Fundarstjóri verður Guðrún Agnarsdóttir
læknir og forstjóri Krabbameinsfélags íslands.
Skálholtsferð
Öldunagdeild LÍ boðar til ferðar að Skálholti laugardaginn 7. apríl næstkomandi. Farið
verður með áætlunarbifreið frá skrifstofum LÍ að Hlíðasmára 8, Kópavogi, kl. 10.00.
Áætluð heimkoma kl. 16.00.
Prófessor Pétur Pétursson mun fræða okkur um sögu staðarins og fjalla sérstaklega um
Þórð biskup Þorláksson (1674-1697).
Snæddur verður veislumatur að hætti Þorláks biskups helga. Nánari tilkynning um
ferðatilhögun mun berast félagsmönnum síðar.
Stjórnin
•H
FRUMLYF