Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 9
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN Er botnlangataka með kviðsjá betri en hefðbundin, opin botnlangataka? Tómas Guðbjartsson Höfundur er sérfræðingur í skurðlækningum og starfar á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi, Svíþjóð. Netfang: tomas.gudbjartsson@lund. mail.telia.com Botnlangataka er á meðal algengustu skurðaðgerða og eina viðurkennda meðferðin við botnlangabólgu í dag. Rúm öld er síðan McBurney lýsti fyrstu botn- langatökunni og síðan hefur aðgerðin sáralítið breyst (1). Opin botnlangataka er örugg með skurðdauða undir 0,1% en fylgikvillar sjást þó í 10-20% tilfella þar sem sárasýkingar eru fremstar í flokki (2,3). Síðkomnir fylgikvillar eins og garnastífla, langvinnir kviðverkir og ófrjósemi hjá konum eru einnig vel þekkt vandamál eftir opna botnlangatöku og geta valdið sjúklingnum miklum óþægindum (4,5). Fylgikvillar geta allt eins gert vart við sig eftir aðgerð þar sem botnlanginn reynist óbólginn en rétt greining hjá sjúklingum, sem grunur leikur á að hafi botn- langabólgu, er stórt vandamál sem sést best á því að 25-30% botnlanga hjá konum á frjósemiskeiði eru óbólgnir við aðgerð (5,6). Oft er þá um aðra sjúk- dóma að ræða sem skýra verki sjúklings, til dæmis rofnar blöðrur á eggjastokk eða eggjaleiðarabólgu. Slíka sjúkdóma getur verið erfitt að greina í gegnum þröngan botnlangaskurð. Af ofanskráðu er ljóst að hefðbundin, opin botlangataka er langt frá því að vera hin fullkomna aðgerð. Fyrstu botnlangatökunni með kviðsjá var lýst þegar árið 1983 og var aðgerðin framkvæmd með eldri gerð kviðsjár (7). Upp úr miðjum níunda áratugnum urðu stórstígar framfarir í tækjabúnaði til kviðsjáraðgerða með tilkomu kviðsjár sem hægt var að tengja myndavél. Þessi nýja tækni gerði kleift að framkvæma flóknari skurðaðgerðir með kviðsjá en áður þekktist. I fyrstu beindist athyglin aðallega að gallblöðrutöku en smám saman jókst áhugi á öðrum kviðarholsaðgerðum með aðstoð kviðsjár, þar á meðal botnlangatöku. I fyrstu var árangur kviðsjáraðgerða misjafn. Síðan hafa birst á annað hundrað rannsóknir þar sem kviðsjáraðgerð er borin saman við hefðbundna botnlangatöku. Langflestar þessara rannsókna, sem fæstar eru slembaðar, eru kviðsjáraðgerðum í hag, þar sem sýnt er fram á styttri sjúkrahúslegu, minni verki, ör og fylgikvilla (skurðsýkingar) en eftir opna aðgerð. Nýrri rannsóknir hafa þó ekki getað staðfest yfirburði kviðsjáraðgerða og því vaknar eðlilega sú spurning hvor aðgerðin sé betri (8,9). I dag hefur birst á þriðja tug slembaðra rannsókna þar sem kviðsjáraðgerð er borin saman við opna botnlangatöku. Þessar rannsóknir eru mjög misjafnar að gæðum, sérstaklega hvað varðar fjölda sjúklinga (styrk) og eftirlit eftir aðgerð. Nýlega hafa birst greinar þar sem farið er kerfisbundið í gegnum slembuðu rannsóknirnar (10-12). í þeirri stærstu uppfylltu aðeins 12 rannsóknanna skilyrði höfunda um vandaða slembirannsókn (10). Rannsóknirnar voru metnar hver fyrir sig og töldust sex þeirra vera kviðsjáraðgerð í hag og í hinum sex var munurinn á aðgerðunum talinn óverulegur. Niðurstaða höfunda var sú að ekki væri hægt að sýna fram á umtalsverða yfirburði kviðsjáraðgerðar í þessum 12 rannsóknum. Verkir voru þó minni eftir kviðsjáragerð og í flestum þeirra voru sjúklingarnir fljótari að ná fullri færni eftir aðgerð. Lengd sjúkrahúsdvalar var hins vegar sambærileg í báðum hópunum, eða tveir dagar. Fylgikvillar reyndust einnig sambærilegir enda þótt skurðsýkingar væru ívið fleiri í opna hópnum og djúpar sýkingar í kviðsjárhópnum. I annarri sambærilegri rannsókn (11), sem náði til 10 slembaðra rannsókna, var komist að sömu niður- stöðu og sama á við um þá þriðju sem reyndar var meta-analysis (safngreining) og náði til átta af áðurnefndum 12 rannsóknum (12). Þó sást ekki munur á tíðni djúpra sýkinga en húðsýkingar reynd- ust marktækt fleiri eftir opnu aðgerðirnar. I flestum þessara slembuðu rannsókna eru sjúk- lingar tiltölulega fáir og það veikir þær. A síðustu árum hafa hins vegar birst tvær stórar skandínavískar rannsóknir með rúmlega 500 sjúklinga hvor (13,14). Niðurstöður beggja eru mjög í anda rannsóknanna sem áður voru nefndar, það er sjúklingarnir hafa minni verki og eru fljótari að ná sér eftir kviðsjáraðgerð. I sænsku rannsókninni (KLAPP- studien) munaði heilli viku á hópunum, kviðsjárað- gerð í vil, en rétt er að hafa í huga að um var að ræða huglægt mat sjúklingsins sjálfs á því hvenær hann taldi sig hafa náð fullri færni og getur það skekkt niðurstöðuna. Þannig reyndist ekki marktækur munur á fjarvistum frá vinnu, sjúkrahúsdvöl og fylgi- kvillum eftir aðgerð (13). Þegar niðurstöður rannsóknanna hér á undan eru hafðar til hliðsjónar er óhætt að fullyrða að munur á botnlangatöku með kviðsjá og opinni aðgerð er ekki eins mikill og oft hefur verið haldið fram. Kviðsjár- aðgerð hefur ákveðna kosti umfram opna botnlanga- Læknablaðid 2001/87 605
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.