Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2001, Side 84

Læknablaðið - 15.07.2001, Side 84
OKKAR A MILLI Mynda- brengl í SÍÐASTA TÖLUBLAÐI LÆKNA- blaðsins birtist greinin Gjald- skrárkerfl sem stýringartæki heil- brigðisyfirvalda eftir Guðmund Pálsson sérfræðing í heimilis- lækningum í Noregi (Lækna- blaðið 2001; 87: 567-8). Ekki vildi betur til en svo að með greininni birtist mynd af alnafna hans, sem reyndar er einnig sérfræðingur í heimilislækningum en starfar hér á landi. Um leið og birt er rétt mynd af Guðmundi Pálssyni í Noregi eru þeir nafnar báðir beðnir af- sökunar. Félag íslenskra landsbyggðarlækna Ályktun aðalfundar AÐALFUNDUR FÉLAGS ÍSLENSKRA LANDSBYGGÐARLÆKNA, haldinn í Borgarnesi 12. maí 2001 vekur athygli stjórnvalda á því ófremdarástandi sem ríkir í heilbrigðisþjónustu landsbyggðar- innar. Um nokkurra ára skeið hafa 15-20 læknisstöður á landsbyggðinni verið ómannaðar eða setnar læknum um stundar sakir. Astandið hefur versnað og er nú svo komið að í sumum héruðum er brostinn á flótti þar sem álag og starfsskilyrði eru algerlega óviðunandi. Fyrirsjáanlegt er að verði ekki gripið inn í þessa atburðarás með róttækum hætti muni þeim læknishéruðum fjölga sem sjá að baki læknum sínum til annarra starfa. Aðalfundurinn telur að hefðbundin úrræði dugi ekki lengur, því verði stjórnvöld að grípa til nýrra og róttækra úrræða til lausnar vandans. Seretide Diskus GlaxoSmithKline, R 03 AK 06 R.B Innúðaduft (duft i afmældum skömmtum til innúðunar með Diskus- tæki). Hver afmældur skammtur inniheldur: Salmeterolum INN, xínafóat 72,5 mikróg samsvarandi Salmeterolum INN 50 míkróg og Fluticasonum INN, própiónat 100 mikróg, 250 mikróg eöa 500 mikróg. Ábendingar: Seretide er ætlaö til samfelldrar meðferðar gegn teppu í öndunarvegi, sem getur gengið til baka, þ.m.t. astma hjá börnum og fullorðnum, þar sem samsett meðferö (berkjuvíkkandi lyfs og barkstera til innöndunar) á viö s.s.: Hjá sjúklingum sem svara viðhaldsmeðferð með langvirkandi berkjuvikkandi lyfjum og barksterum til innöndunar. Hjá sjúklingum sem hafa einkenni þrátt fyrir að nota barkstera til innöndunar. Hjá sjúklingum á berkjuvikkandi meðferö, sem þurfa barkstera til innöndunar. Skammtar og lyfjagjöf: Lyfiö er eingöngu ætlað til innöndunar um munn. Ráölagöirskammtar fyrir fulloröna og börn eldri en 12 ára: Einn skammtur (50 míkróg+100 míkróg, 50 mikróg+250 míkróg eða 50 míkróg+500 mikróg) tvisvar á dag. Sérstakirsjúklingahópar. Ekki þarf að breyta skömmtum hjá öldruðum eða sjúklingum með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi. Skammtastœröir handa börnum 4 ára og ddri: Einn skammtur (50 míkróg salmeteról og 100 mikróg flútíkasónprópiónat) tvisvar á dag. Ekki eru til upplýsingar um notkun lyfsins hjá börnum yngri en 4 ára. Frábendingar: Þekkt ofnæmi gegn einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Varnaöarorð og varúðarreglur: Meðferð á teppu í öndunarvegi, sem getur gengið til baka, ætti venjulega að fylgja áfangaáætlun og svörun sjúklings ætti að meta út frá klinískum einkennum og lungnaprófum. Lyfiö er ekki ætlað til meðhöndlunar á bráðum einkennum. I slikum tilfellum ætti að nota stuttverkandi berkjuvikkandi lyf (t.d. salbútamól) sem sjúklingar ættu ávallt að hafa við höndina. Milliverkanir: Jafnvel þótt lítiö finnist af lyfinu i blóði er ekki hægt að útiloka milliverkanir við önnur efni sem bindast CYP 3A4. Foröast ber notkun bæði sérhæföra og ósérhæfðra betablokka hjá sjúklingum með teppu í öndunarvegi, sem getur gengið til baka, nema að þörfin fyrir þá sé mjög brýn. Meðganga og brjóstagjöf: Notkun lyfja hjá þunguðum konum og hjá konum með barn á brjósti ætti einungis að íhuga þegar væntanlegur hagur fyrir móður er meiri en hugsanleg áhætta fyrir fóstur eöa barn. Það er takmörkuö reynsla af notkun á salmeterólxinafóati og flútikasónprópiónati á meögöngu og við brjóstagjöf hjá konum. Viö notkun hjá þunguðum konum skal ávallt nota minnsta virka skammt. Aukaverkanir: Þar sem lyfið inniheldur salmeteról og flútikasónprópiónat má búast viö aukaverkunum af sömu gerð og vægi og af hvoru lyfinu fyrir sig. Ekki eru nein tilfelli frekari aukaverkana þegar lyfin eru gefin samtímis. Hæsi/raddtruflun, erting í hálsi, höfuöverkur, sveppasýking í munni og hálsi og hjartsláttarónot sáust hjá 1 -2% sjúklinga viö klinískar rannsóknir. Eftirtaldar aukaverkanir hafa veriö tengdar notkun salmeteróls eða flútikasón- própiónats: Salmeteról: Lyfjafræðilegar aukaverkanir beta-2-örvandi efna, svo sem skjálfti, hjartsláttarónot og höfuöverkur hafa komiö fram, en hafa yfirleitt verið timabundnar og minnkaö viö áframhaldandi meðferð. Algengar (>1%): Hjarta- og œöakerfi: Hjartsláttarónot, hraötaktur. Miötaugakerfi: Höfuöverkjur. Stoökerfi: Skjálfti, vöðvakrampi. Sjaldgæfar(<0,1 %): Almennar: Ofnæmisviðbrögð, þ.m.t., bjúgur og ofsabjúgur (angioedema). Hjarta-og œöakerfi: Hjartsláttaróregla t.d. gáttatif (atrial fibrillation), gáttahraötaktur og aukaslög. Húð/Ofsakláði, útbrot. ffnosk/W:Kaliumskortur i blóöi. Stoðke/f/: Liðverkjir, vöðvaþrautir. Flútikasónprópiónat Algengar(>1%): Almennar. Hæsi og sveppasýking í munni og hálsi. Sjaldgæfar(<0,1%): Húö: Ofnæmisviðbrögðum i húð. Öndunarvegur. Berkjukrampi. Hægt er að minnka líkurnar á hæsi og sveppasýkingum með því aö skola munninn með vatni eftir notkun lyfsins. Einkenni sveppasýkingar er hægt að meðhöndla með staðbundinni sveppalyfjameöferö samtimis notkun innöndunarlyfsins. Eins og hjá öðrum innöndunarlyfjum getur óvæntur berkjusamdráttur átt sér stað með skyndilega auknu surgi eftir innöndun lyfsins. Þetta þarf að meöhöndla strax með skjót- og stuttverkandi berkjuvíkkandi lyfi til innöndunar. Hætta verður notkun strax, ástand sjúklings skal metiö og hefja aðra meöferö, ef þörf krefur. Pakkningar og verð: Diskus - tæki. Innúðaduft 50 mikróg + 100 mikróg/skammt: 60 skammtarx 1, 60 skammtar x 3. Innúðaduft 50 mikróg + 250 mikróg/skammt: 60 skammtar x 1, 60 skammtar x 3. Innúðaduft 50 mikróg + 500 mikróg/skammt: 60 skammtar x 1, 60 skammtar x 3. Seretide 50/100: 6.008 krónur, Seretide 50/250: 7.532 krónur, Seretide 50/500:10.045 krónur. 19.03.01 Tilvitnun 1: KR Chapman, N Ringdal £t al. Can. Respir. J. 1999; 6 (1): 45-51. Tilvitnun 2: G Shapiro 8t al., Am. J, Respir. CriLCare Med. 2000; 161:527-534. ^ SERETIDE / ciaxoSmithKtine Þverholti 14 • 105 Reykjavik • Simi 530 3700 • www.gsk.is 680 Læknablaðið 2001/87

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.