Læknablaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 66
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÓBAKSVARNIR
Stórverkefni í höndum lækna
Tóbaksvarnír
Læknar og tóbak er heiti nýrrar skýrslu sem
gefin hefur verið út á vegum rannsóknarstofnunar í
tóbaksvörnum (Tobacco Control Reseach Centre,
TCRC) sem hefur bækistöðvar í húsi breska lækna-
félagsins. Stofnunin starfar á vegum samtaka
evrópskra læknafélaga (EFMA) og í samstarfi við
Alþjóðaheilbrigðisstofnunina.
Skýrslunni hefur verið dreift til heilsugæslustöðva
og annarra heilbrigðisstofnana um allt land, en auk
þess er texti hennar í heild tiltækur á netinu, hjá
www.tobacco-control.org
f tilefni af reyklausum degi 31. maí síðastliðinn var
auk þess vakin athygli á skýrslunni með bréfi til allra
lækna og voru það samtökin Læknar gegn tóbaki sem
stóðu fyrir því. Ritið er mjög vandað að allri gerð og
er án efa fróðleiksbrunnur fyrir alla þá sem vilja efla
þátt lækna í tóbaksvörnum. Greint er frá reynslu
einstakra þjóða Evrópu af tóbaksvarnamálum og
meðal annars er sagt frá viðvörunarmiðum á íslensk-
um tóbaksumbúðum.
Medicine's Big Challenge
«_______________________-
Doctors and
Tobacco
Tobacco Control Resource Centre
Forsíða skýrslurmar.
Hefur þú kynnt þér
Lífeyrissjóð lækna?
■ Lífeyrisgreiðslur til æviloka
■ Góð makalífeyrisréttindi
■ Örorkutrygging við starfsorkumissi
■ Góð ávöxtun og hagkvæmur rekstur
■ Hagstæð lán til sjóðfélaga
■ Fjölmargar leiðir fyrir séreignasparnað
■ Dagleg yfirlit um innborganir og inneign
■ Ráðgjöf
... og margt fleira
Nánari upplýsingar eru á:
wwuu.llaekna.is
Rekstraraðili: íslandsbanki - Eignastýring, Kirkjusandi,
sími: 560 8900, myndsendir: 560 8910,
(SLANDSBANKI netfang: vib@vib.is, veffang: www.vib.is
LIFEYRISSJOÐUR LÆKNA
Kirkjusandi, 155 Reykjavík
Sími: 560 8970, Myndsendir: 56Q 8910
Netfang: ll@vib.is, Veffang: www.llaekna.is
662 Læknablaðið 2001/87