Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT ÚR LÆKNADEILD Móttaka nýkandídata Sigurbjörn Sveinsson ávarpar nýkandídala. Ljósm.: Bára. PANN 23. JÚNÍ SÍÐASTLIÐINN ÚTSKRIFUÐUST 34 kandídatar úr læknadeild Háskóla íslands að loknu embættisprófi í læknisfræði. Læknafélag Islands bauð kandídötum ásamt fleiri gestum til móttöku þann 22. júní. Samkvæmt hefð undirrituðu kandídatar Heit- orð lækna. Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ ávarpaði kandídata og fer ávarp hans hér á eftir: Ávarp Sigurbjörns Sveinssonar „Kæru kandídatar í læknisfræði, forseti læknadeildar og aðrir gestir. Verið öll velkomin til þessarar samveru, sem Læknafélag fslands býður enn á ný til til að fagna útskrift nýrra lækna frá Háskóla íslands og til að gefa ykkur, kandídatar, kost á að gefa með nafni ykkar undir hinn forna eiðstaf lækna heit um að virða skyldur þær, sem læknisstarfið leggur ykkur á herðar. Ég hef verið að reyna að rifja það upp, hvernig mér var innanbrjósts þessa daga fyrir 23 árum og ég held að tilfinningunni verði best lýst með orðunum: feginn, ólýsanlegur feginleiki. Þetta segi ég ekki læknadeildinni til hnjóðs né kennurum hennar á þeim tíma, sem margir hverjir eru enn við kennslu, heldur tel ég þetta vera alveg eðlilega tilfinningu þess einstaklings sem í sex til átta ár hefur lagt á sig misáhugavert nám til að ná því marki, sem hann setti sér um tvítugt eða fyrr. í annan stað fannst mér ég vera kallaður til ábyrgðar. Að vísu hafði ég tekið við héraði lil næstu Þrjátíu og fjögur luku embættisprófi í læknisfræði Anna Guðmundsdóttir Anna Björg Jónsdóttir Arndís Vala Arnfinnsdóttir Berglind Gerða Libungan Brynja Ragnarsdóttir Brynja Kristín Þórarinsdóttir Daði Þór Vilhjálmsson Einar Þór Þórarinsson Elín Bjarnadóttir Halla Fróðadóttir Hans Tómas Björnsson Hildur Björg Ingólfsdóttir Hjalti Már Þórisson Hjálmar Þorsteinsson Hrólfur Einarsson Hrönn Garðarsdóttir Inga Sif Ólafsdóttir Ingólfur Rögnvaldsson Jón Asgeir Bjarnason Karl Reynir Einarsson Katrín Kristjánsdóttir Lára Guðrún Sigurðardóttir Magnús Hjaltalín Jónsson Meredith Jane Cricco Oddur Steinarsson Steinarr Björnsson Sturla Björn Johnsen Sverre Bergh Sædís Sævarsdóttir Torfi Þorkell Höskuldsson Tómas Þór Agústsson Þórður Hjalti Þorvarðarson Þórhildur Kristinsdóttir Þórný Una Ólafsdóttir 15 mánaða, þar sem mikið stóð til og verkefnin mörg. Og ég spurði mig oft út í hvaða fen ég hefði álpast. Ábyrgðina var erfitt að bera. En allt lánaðist þetta vel eins og gera vill og þannig mun eflaust fara um ykkur, þegar þið hefjið störf á eigin ábyrgð. Enginn þarf að kikna undan þessari ábyrgð. Sú regla, sem reyndist mér best við þessar aðstæður, og æ síðan og allt fram á þennan dag, var sú að vera ætíð frjáls að því að leita mér ráða og aðstoðar annarra kollega, þegar á móti blés bæði í ljósi ytri aðstæðna og innri hvata. Ég tel, að þeim læknum, sem heiðra þessa reglu og þjálfa með sér þann hæfileika að lúta lögmálum hennar farnist best og þar með sinni þeir og skyldum sínum við sjúklinga sína. Ekkert okkar veit ævina fyrr en öll er og eru það gömul sannindi og ný. Og enginn getur spáð fyrir á þessum degi hvernig hvert og eitt ykkar muni nýta menntun sína í þágu fræðigreinarinnar annars vegar og fólksins hins vegar. Vaxandi tjöldi lækna leggur fyrir sig rannsóknir og er það vel. Við megum hins vegar ekki gleyma því, hverjum þessar rannsóknir eiga að þjóna og í þágu hverra er unnið. Sagt hefur verið, að hæfilegt sé að þriðjungur lækna leggi stund á rannsóknir en tveir þriðju sinni í meginatriðum klínískri grasrótarvinnu. Ekki skal ég leggja mat á það, en hitt veit ég, að umtalsverður þrýstingur er á aukin vísindastörf lækna og áhugi ungra lækna stendur í þá átt. Og þá er því líka haldið fram að samfélagslegar skyldur vegi þyngra en hagsmunir þeirra einstaklinga, sem þið hafið tekið að ykkur að þjóna sem læknar. Þessi heimspeki er varasöm. Með hana voru gerðar tilraunir á síðustu öld með hroðalegum afleiðingum. Spámenn þessara sjónarmiða hafa verið fleiri en mannkynið hefur þurft á að halda. Niðurstaða nútímamannsins hlýtur að verða sú, að hagsmunum samfélagsins verði best borgið með því að hefja virðingu og rétt einstaklingsins til vegs. Örn Bjarnason afhendir Meredith Jane Cricco verðlaun Hollvinafélags læknadeildar fyrir hœstu einkunn á kandídatsprófi. Ljósm.: Bára. 640 Læknablaðið 2001/87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.