Læknablaðið - 15.07.2001, Side 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT ÚR LÆKNADEILD
Móttaka nýkandídata
Sigurbjörn Sveinsson
ávarpar nýkandídala.
Ljósm.: Bára.
PANN 23. JÚNÍ SÍÐASTLIÐINN ÚTSKRIFUÐUST 34
kandídatar úr læknadeild Háskóla íslands að loknu
embættisprófi í læknisfræði. Læknafélag Islands bauð
kandídötum ásamt fleiri gestum til móttöku þann 22.
júní. Samkvæmt hefð undirrituðu kandídatar Heit-
orð lækna. Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ
ávarpaði kandídata og fer ávarp hans hér á eftir:
Ávarp Sigurbjörns Sveinssonar
„Kæru kandídatar í læknisfræði, forseti læknadeildar
og aðrir gestir. Verið öll velkomin til þessarar
samveru, sem Læknafélag fslands býður enn á ný til
til að fagna útskrift nýrra lækna frá Háskóla íslands
og til að gefa ykkur, kandídatar, kost á að gefa með
nafni ykkar undir hinn forna eiðstaf lækna heit um að
virða skyldur þær, sem læknisstarfið leggur ykkur á
herðar.
Ég hef verið að reyna að rifja það upp, hvernig
mér var innanbrjósts þessa daga fyrir 23 árum og ég
held að tilfinningunni verði best lýst með orðunum:
feginn, ólýsanlegur feginleiki. Þetta segi ég ekki
læknadeildinni til hnjóðs né kennurum hennar á
þeim tíma, sem margir hverjir eru enn við kennslu,
heldur tel ég þetta vera alveg eðlilega tilfinningu þess
einstaklings sem í sex til átta ár hefur lagt á sig
misáhugavert nám til að ná því marki, sem hann setti
sér um tvítugt eða fyrr.
í annan stað fannst mér ég vera kallaður til
ábyrgðar. Að vísu hafði ég tekið við héraði lil næstu
Þrjátíu og fjögur luku
embættisprófi í læknisfræði
Anna Guðmundsdóttir
Anna Björg Jónsdóttir
Arndís Vala Arnfinnsdóttir
Berglind Gerða Libungan
Brynja Ragnarsdóttir
Brynja Kristín Þórarinsdóttir
Daði Þór Vilhjálmsson
Einar Þór Þórarinsson
Elín Bjarnadóttir
Halla Fróðadóttir
Hans Tómas Björnsson
Hildur Björg Ingólfsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Hjálmar Þorsteinsson
Hrólfur Einarsson
Hrönn Garðarsdóttir
Inga Sif Ólafsdóttir
Ingólfur Rögnvaldsson
Jón Asgeir Bjarnason
Karl Reynir Einarsson
Katrín Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Magnús Hjaltalín Jónsson
Meredith Jane Cricco
Oddur Steinarsson
Steinarr Björnsson
Sturla Björn Johnsen
Sverre Bergh
Sædís Sævarsdóttir
Torfi Þorkell Höskuldsson
Tómas Þór Agústsson
Þórður Hjalti Þorvarðarson
Þórhildur Kristinsdóttir
Þórný Una Ólafsdóttir
15 mánaða, þar sem mikið stóð til og verkefnin mörg.
Og ég spurði mig oft út í hvaða fen ég hefði álpast.
Ábyrgðina var erfitt að bera. En allt lánaðist þetta
vel eins og gera vill og þannig mun eflaust fara um
ykkur, þegar þið hefjið störf á eigin ábyrgð. Enginn
þarf að kikna undan þessari ábyrgð. Sú regla, sem
reyndist mér best við þessar aðstæður, og æ síðan og
allt fram á þennan dag, var sú að vera ætíð frjáls að
því að leita mér ráða og aðstoðar annarra kollega,
þegar á móti blés bæði í ljósi ytri aðstæðna og innri
hvata. Ég tel, að þeim læknum, sem heiðra þessa
reglu og þjálfa með sér þann hæfileika að lúta
lögmálum hennar farnist best og þar með sinni þeir
og skyldum sínum við sjúklinga sína.
Ekkert okkar veit ævina fyrr en öll er og eru það
gömul sannindi og ný. Og enginn getur spáð fyrir á
þessum degi hvernig hvert og eitt ykkar muni nýta
menntun sína í þágu fræðigreinarinnar annars vegar
og fólksins hins vegar. Vaxandi tjöldi lækna leggur
fyrir sig rannsóknir og er það vel. Við megum hins
vegar ekki gleyma því, hverjum þessar rannsóknir
eiga að þjóna og í þágu hverra er unnið. Sagt hefur
verið, að hæfilegt sé að þriðjungur lækna leggi stund
á rannsóknir en tveir þriðju sinni í meginatriðum
klínískri grasrótarvinnu. Ekki skal ég leggja mat á
það, en hitt veit ég, að umtalsverður þrýstingur er á
aukin vísindastörf lækna og áhugi ungra lækna
stendur í þá átt. Og þá er því líka haldið fram að
samfélagslegar skyldur vegi þyngra en hagsmunir
þeirra einstaklinga, sem þið hafið tekið að ykkur að
þjóna sem læknar.
Þessi heimspeki er varasöm. Með hana voru
gerðar tilraunir á síðustu öld með hroðalegum
afleiðingum. Spámenn þessara sjónarmiða hafa verið
fleiri en mannkynið hefur þurft á að halda.
Niðurstaða nútímamannsins hlýtur að verða sú, að
hagsmunum samfélagsins verði best borgið með því
að hefja virðingu og rétt einstaklingsins til vegs.
Örn Bjarnason afhendir Meredith Jane Cricco verðlaun
Hollvinafélags læknadeildar fyrir hœstu einkunn á
kandídatsprófi. Ljósm.: Bára.
640 Læknablaðið 2001/87