Læknablaðið - 15.04.2002, Blaðsíða 8
ACTOS
ein tafla á dag
bætir stjórn blóðsykurs
og samsetningu blóðfitu
Insúlín viðnám
kemur líkamanum úr jafnvægi
pioglitazone HCI
Actos* töflur innihalda pioglitazón 15 mg
og 30 mg.
Ábendingar: Pioglitazón er eingöngu
ætlað til samhliða meðferðar með sykur-
sýkilyfjum til inntöku við sykursýki af
tegund 2, þegar ekki er unnt að stjórna
blóðsykri, þrátt fyrir að sjúklingur hafi
fengið hæstu skammta sem hann þoldi af
annað hvort metformíni eða súlfónýlúrea
sykursýkilyfjum til inntöku. Fyrir feita
sjúklinga skal einungis nota lyfið með
metformíni. Lyfið skal nota samhliða
súlfónýlúrea, eingöngu fyrir sjúklinga
sem hafa óþol fyrir metformíni eða mega
ekki nota metformín vegna frábendinga
við notkun þess.
Skammtar og lyfjagjöf: Pioglitazón töflur
eru til inntöku einu sinni á dag án tillits til
máltíða.
Samhliða metformíni: Gefa má 15 mg eða
30 mg einu sinni á dag af pioglitazóni
samhliða metformíni. Skammtar
metformíns geta verið óbreyttir þegar
pioglitazóni er bætt við meðferðina.
Samhliða súlfónýlúrea: Gefa má 15 mg
eða 30 mg einu sinni á dag af pioglitazóni
samhliða súlfónýlúrealyfi. Skammtar af
súlfónýlúrealyfi geta verið óbreyttir þegar
pioglitazóni er bætt við meðferðina. Ef
sjúklingur lýsir blóðsykursfalli, skal lækka
skammtinn af súlfónýlúrealyfinu.
Frábendingar: Pioglitazón má ekki gefa
sjúklingum með: Ofnæmi fyrir pioglitazóni
eða einhverju hjálparefnanna ítöflunni.
Hjartabilun eða sögu um hjartabilun
(NYHA stig l-IV). Skerta lifrarstarfsemi.
Pioglitazón má ekki gefa samhliða insúlíni.
Varnaðarorð og varúðarreglur:
Engin klínísk reynsla er af notkun
pioglitazóns í þriggja lyfja meðferð með
öðrum sykursýkilyfjum til inntöku.
Pioglitazón ætti ekki að nota eitt sér.
Pioglitazón getur valdið vökvasöfnun sem
getur aukið eða framkallað hjartabilun.
Lýst hefur verið sjaldgæfum truflunum á
lifrarstarfsemi. Því er mælt með að fylgst
sé reglulega með lifrarensímum sjúklinga
sem eru meðhöndlaðir með pioglitazóni.
Lifrarensím skulu mæld hjá öllum sjúkling-
um áður en meðferð er hafin með
pioglitazóni. Dæmi eru um þyngdaraukn-
ingu í klínískum rannsóknum með
pioglitazón, því skal fylgst náið með
þyngd. Dæmi eru um væga lækkun
hemoglóbíns og hematokritar á meðferð-
artíma með pioglitazóni. Engin þekkt áhrif
eru á hæfni til aksturs eða notkunar véla.
Ekki ætti að nota pioglitazón á meðgöngu
eða hjá konum með barn á brjósti.
Milliverkanir: Rannsóknir á milliverkun-
um hafa sýnt að pioglitazón hefur engin
marktæk áhrif hvorki á lyfhrif né lyfjahvörf
digoxíns, warfaríns, phenprocoumon og
metformíns. Samhliða gjöf pioglitazóns
með súlfónýlúrealyfjum virðist ekki hafa
áhrif á lyfjahvörf þeirra. Rannsóknir á
mönnum benda ekki til virkjunar á aðal
örvanlegum sýtókrómum P450,1A, 2C8/9
og 3A4. Ekki er að vænta milliverkana við
efni sem eru umbrotin af þessum ensím-
um, t.d. getnaðarvarnartöflur, ciclosporin
kalsíumgangalokar og HMGCoA reductasa
hemlar.
Aukaverkanir: Pioglitazón gefið samhliða
metformíni: Algengar (< 1 %): Blóðleysi,
þyngdaraukning, höfuðverkur, óeðlileg
sjón, liðverkir, blóð í þvagi, getuleysi.
Sjaldgæfar (0,1-1%): Uppþemba.
Pioglitazón gefið samhliða súlfónýlúrea:
Algengar (< 1 %): Pyngdaraukning, sundl,
uppþemba.
Sjaldgæfar (0,1-1%): Þreyta, sykur í þvagi,
blóðsykurslækkun, hækkaður mjólkursýru
dehýdrógenasi (LDH), aukin matarlyst,
höfuðverkur, svimi, óeðlileg sjón, aukin
svitamyndun, prótein í þvagi.
Pakkningar og verð nóvember 2001:
Töflur 15 mg: 28 stk. 5.799 kr. - 98 stk.
17.913 kr. Töflur 30 mg: 28 stk. 8.548kr.
- 98 stk. 26.745kr. Töflunum er pakkað í
álþynnur. Lyfið er lyíseðilsskylt og er
greitt að fullu af TR.
Markaðsleyfishafi: Takeda Europe R&D
Centre Limited.
Umboðsmaður á íslandi: A. Karlsson hf.
200113