Læknablaðið - 15.04.2002, Blaðsíða 50
Nú hefur Neurontin frá Pfizer fengið ábendingarnar „meðferð á taugahvot í kjölfar
herpessýkingar (postherpetic neuralgia) og sársaukafullum sykursýkitaugakvilla“.
Neurontin er áhrifaríkt taugaverkjalyf þar sem:
■ Sjúklingurinn fær bættan svefn strax eftir 1 viku "
■ Marktæk svörun við verkjum fæst strax eftir 2 vikur "
Neurontin hefur engar frábendingar og engar milliverkanir með klíníska þýðingu31
Heim: 1. Backonja M. etal. JAMA 1993:280:1831-36. 2. Rowbotham M. etal. JAMA 1998:1837-42. 3. Sértytjaskrá 2002.
NEURONTIN
VIÐ TAUGAVERKJUM
Neurontin, Pfizer ApS, HYLKI, hörð; N03AX12RE Hvert hylki inniheldur: Gabapentinum INN 100 mg, 300 mg eða 400 mg. TÖFLUR, fílmuhúðaðar; N03 AX 12 RO. Hvert tafla inniheldur: Gabapentinum INN 600 mg eða 800
mg Ábendingar. Viðbótarmeðferð við allar tegundir flogaveiki þegar viðunandi árangur fæst ekki með hefðbundinni meðferð. Meðferð á taugahvot í kjölfar herpessýkingar (postherpetic neuralgia) og sársaukafullum
sykursýkitaugakvilla. Skammtar og lyfjagjöf: Meðferð á að vera undir stjóm læknis með reynslu í flogaveikimeðferð eða í samráði við slíkan lækni. Flogaveiki: Venjulegur skammtur er 1.200-2.400 mg/sólarhríng skipt í þrjá
skammta. Hjá sumum sjúklingum geta læknanleg áhrífþó náðst með 900 mg/sólarhríng. Ekki eiga að líöa meira en 12 klst. á milli síðasta skammts að kvöldi og fyrsta skammts að morgni. Lyfið má taka inn með mat eða án. Þegar
meðferð með gabapentin er hætt eða þegar byrjað er að nota annað flogaveikityf samtimis verður það að gerast smám saman á a.m.k. viku. Komið hefur í Ijós hjá hluta þeirra sjúklinga sem fengið hafa gabapentín sem
viðbótarmeðferð, þegar tilskilinn árangur hefur ekki náðst með fyrrí lyfjum, að betri stjóm hefur náðst á krömpum. Náist viðunandi árangur ekki, þrátt fyrír skammtaaðlögun á að hætta meðferð með lyfinu smám saman. Fullorðnir
og börn eldri en 12 ára: Upphafsskammti 900 mg/sólarhring eða minni er skipt i 3 skammta og hann aukinn um 300-600 mg/sólarhríng þar til besta viðhaldsskammti er náð. Við mesta upphafsskammt og þegar skammtur er
aukinn hratt eykst hætta á svima á skammtaaðlögunartímabilinu. Meðferðinni á að stjórna og aðlaga samkvæmt klínískri svörun. Ekki er nauðsynlegt að fylgjast með þéttni í plasma til að ákveða hámarksskammt. Taugrænir verkir:
Viðhaldsskammtur við meðferð á taugahvot í kjölfar herpessýkingar og sársaukafullum sykursýkitaugakvilla á að vera byggður á svörun sjúklings og aukinn smám saman i hámarksskammt sem er 3600mg/sólarhring. Fullorðnir
(eldri en 18 ára): Til að fá fram virkan skammt er skammtur aukinn á nokkrum dögum með því aö gefa 300 mg að kvöldi fyrsta dags, 600 mg skipt i tvo skammta næsta dag og 900 mg skipt i þrjá skammta á degi 3. Siðan má
auka skammtinn um 300 mg á sólarhríng þar til æskilegum viðhaldsskammti er náð. Ekki eiga að líða meira en 12 klukkustundir á milli síðasta skammts að kvöldi og fyrsta skammts að morgni. Neurontin má taka með mat eða án.
Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi/aldraðir: Sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi á að gefa minni skammta. Sjúklingar í blóðskilun: Upphafsskammtur er 200-400 mg og síðan 100-300 mg Neurontin eftir fjögurra klst.
blóðskilun. Skammtastærðir handa börnum: Litil sem engin reynsla er af notkun lyfsins hjá bömum yngrí en 12 ára. Frábendingar: Engarþekktar.Varnaðarorð og varúðarreglur: Skert nýrnastarfsemi. Ef notkun flogaveikilyfja er
hætt of snögglega er hætta á aukinni tíðni floga eða jafnvel flogafári. Reynsla af meðferö við flogaveiki hjá bömum yngri en 12 ára er ekki fyrir hendi.Milliverkanir: Samtímis gjöf sýrubindandi lyfja minnkar nýtingu lyfsins um 24%.
Þess vegna á ekki að taka lyfið fyrr en a.m.k 2 klst. eftir töku sýrubindandi lyfja. Engar milliverkanir eru á milli gabapentíns og fenóbarbítals, fenýtóíns, valpróínsýru, karbamazepins eða getnaðan/arnalyfja (noretísterón og/eða
etínýlestradíól). Gabapentín hefur ekki heldur áhrif á lyfjahvörf þessara lyfja við stöðuga þéttni. Próbenecíd hefur ekki áhrif á útskilnað gabapentins. Aukaverkanir: Aukaverkanir, einkum sljóleiki og skortur á einbeitingu ásamt
ósamhæfðum vöövahreyiingum, eru algengar (allt að 50%) við flogaveikimeðferð. Oftast hverfa aukaverkanirnar eftir 2 vikna meðferð. Algengar (>1%): Almennt: Svefnhöfgi, deyfð, þreyta, svimi, höfuðverkur, svefnleysi,
þyngdaraukning, lystarleysi. Miðtaugakerfi: Ósamhæfðar hreyfingar, augntin (nystagmus), skjálfti, minnistruflanir, taltruflanir, náladofi. Meltingarfæri: Meltingartruflanir, ógleði og/eða uppköst. Geð: Taugaóstyrkur. Augu: Tvísýni,
sjónskerðing. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennt: Bjúgur á útlimum. Blóð: Hvitfrumnafæö. Húð: Kláði. Geð: Depurð. Hjá örfáum sjúklingum hefur komið í Ijós aukin tiðni floga, sem hugsanlega er skammtaháð og
einnig aukning á þéttum flogum, sem í einstaka tilvikum hafa varað i sólarhring. Pakkningar og verð 1. mars 2002: Hylki 300 mg, 100 stk. 10.790 kr.; hylki 400 mg, 100 stk. 13.985 kr.; töflur 600 mg,
100 stk. 15.518 kr.; töflur 800 mg, 100 stk. 19.899 kr. Nánari uppl. um lyfið er að finna í Sérlyfjaskrá.
Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco hf. Hörgatún 2, 210 Garðabær S: 535-7000