Læknablaðið - 15.04.2002, Blaðsíða 96
RÁÐSTEFNUR / ÞING
XV. þing
Félags íslenskra lyflækna
ísafirði 7.-9. júní
XV. þing Félags íslenskra lyflækna veröur haldiö á ísafirði dagana 7.-9. júní. Þingið mun fara fram í húsnæöi Menntaskólans en
veggspjaldasýning og sýning fyrirtækja í (þróttahúsi ísfiröinga sem er steinsnar frá skólahúsnæðinu.
Frjáls erindaflutningur verður í minna mæli en verið hefur og stærri hluti vísindarannsókna kynntur með veggspjöldum. Að auki
verða skipulögð fleiri málþing og gestafyrirlestrar. Boðið verður upp á tölvuskjávarpa (windows stýrikerfi) og skyggnuvél við
flutning erinda.
Skilafrestur ágripa rann út 1. apríl.
Vísindanefnd Félags íslenskra lyflækna áskilur sér rétt til þess að hafna innsendum ágripum og eins að meta hvort kynnt verði
með erindi eða veggspjaldi. Þau ágrip sem vísindanefnd Félags íslenskra lyflækna samþykkir verða birt í Fylgiriti Læknablaðs-
ins sem kemur út í byrjun júní.
Staðfesting
Þátttakendur munu fá staðfestingu á því að ágrip hafi verið samþykkt og tímasetningu á kynningu.
Verðlaun
í þinglok verða veitt verðlaun fyrir erindi unglæknis, erindi læknanema og veggspjald.
Veggspjöld
Stærð veggspjalda er 90x120 cm. Flöfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Skráning
Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig timanlega, einkum með tilliti til tryggrar gistingar. Framkvæmdastjóri tekur við skráningu,
sjá neðst á síðunni.
Þingsetning og þinggögn
Þingið verður sett föstudaginn 7. júní kl. 13.20 og því lýkur sunnudaginn 9. júní kl. 12.30. Afhending þinggagna og greiðsla
þátttökugjalda hefst kl. 12.30 á föstudegi.
Þátttökugjald
Þátttökugjald er kr. 11.000, kr. 7.500 fyrir unglækna, læknanemar greiða ekkert. Þátttökugjald greiðist við skráningu á þing-
stað. Ekki er tekið við greiðslukortum, en hraðbankar eru á staðnum.
Hádegis- og kvöldverðir
Boðið er í léttan hádegisverð á laugardag og til kvöldverðar bæði föstudags- og laugardagskvöld.
Gisting og verð, ein nótt
Staður Eins manns
Hótel ísafjörður, með baðherbergi kr. 9.500
Sumarhótelið, sameiginleg baðherbergi 5.100
Gamla gistihúsið, sameiginlegt bað 3.200
Gistiheimili Áslaugar, sameiginlegt bað 5.100
Einbýlishús í Súðavík, sameiginlegt bað 4.400
Morgunverður er innifalinn nema í Súðavík. Þangað er um 15 mínútna
að fá betra verðtilboð í gistingu í Súðavík.
Pöntun á gistingu
Framkvæmdastjóri tekur við pöntunum á gistingu frá og með 8. apríl. Pöntun er bindandi. Nauðsynlegt er að panta gistingu
sem fyrst þar sem ekki verður hægt að tryggja gistingu ef pantað er eftir 20. maí.
Flug
Flogið er með Flugfélagi íslands, frá Reykjavík (aukavél) vestur kl. 10:30 á föstudagsmorgni (að auki er áætlun um morgun og
kvöld) og suður kl. 13.35 á sunnudegi. Verð kr. 13.830 fram og til baka. Sama verð frá Akureyri fram og til baka. Flugfar pantar
hver fyrir sig hjá Vesturferðum, sími: 456 5111, netfang: vesturferdir@vesturferdir.is Taka skal fram að um sé að ræða þátttak-
endur á þing Félags íslenskra lyflækna.
Framkvæmdastjóri
Birna Þórðardóttir framkvæmdastjóri þingsins veitir nánari upplýsingar og tekur við pöntunum á gistingu. Símar: 862 8031/
552 1570, netfang: birna@birna.is
Tveggja manna
kr. 11.500
7.300
6.400
7.300
6.200
akstur. Fyrir fjölskyldur verður að öllum líkindum hægt
364 Læknablaðið 2002/88