Læknablaðið - 15.04.2002, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREINAR / AUKA- OG MILLIVERKANIR NÁTTÚRULYFJA
Aukaverkanir og milliverkanir náttúrulyfja,
náttúruvara og fæðubótarefna
Ólöf
Þórhallsdóttir1
Kristín
Ingólfsdóttir'
Magnús
Jóhannsson2
'Lyfjafræðideild Háskóla
íslands, :Læknadeild Háskóla
Islands.
Bréfaskipti og fyrirspurnir:
Ólöf Þórhallsdóttir, Skerja-
braut 5a, 170 Seltjarnarnesi.
Símar 551 1549,894 1004,
olof@omega.is
Lykilorð: aukaverkanir,
milliverkanir, náttúruefni.
fœðubótarefni.
Ágrip
Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna
fjölda aukaverkana og milliverkana sem rekja má til
neyslu náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna
hér á landi. Markmiðið var jafnframt að kanna við-
horf lækna á íslandi til þessara efna.
Aðferðin Spurningalisti var sendur til allra lækna
á landinu, alls 1083. Spurt var hvort viðkomandi
læknir hafi orðið/hugsanlega orðið var við auka- eða
milliverkanir sem rekja mætti til neyslu náttúrulyfja,
náttúruvara eða fæðubótarefna hér á landi. Einnig
var spurt um viðhorf til efnanna. Þar sem ekki finnast
sérstök skráningarnúmer fyrir sjúkdómsgreiningar
þar sem þátt eiga náttúrulyf, náttúruvörur eða fæðu-
bótarefni í skráningarkerfum Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss, var leit gerð í tölvukerfum sjúkrahússins
eftir skráningamúmerum sem þóttu líkleg til að sýna
innlagnir vegna neyslu náttúruefna. Jafnframt var
fylgst daglega með bráðamóttökum sjúkrahússins í
einn mánuð, fyrirspurnir vegna náttúruefna til
Eitrunarmiðstöðvar voru skoðaðar og að lokum at-
hugað hvort tilkynningar hefðu borist Lyfjastofnun
eða Landlæknisembættinu.
Niðurstöður: Spurningalistanum svöruðu 410
læknar. Þar af höfðu 134 orðið varir/hugsanlega orð-
ið varir við fyrrgreindar aukaverkanir og 25 við milli-
verkanir. Upplýsingar komu fram um 253 aukaverk-
anir og 13 milliverkanir. Innlögn á sjúkrahús var talin
afleiðing 38 tilvika og í 14 tilvikum var talið að auka-
verkun hafi stofnað lífi sjúklings í hættu. Af þeim
læknum sem svöruðu listanum sögðust 17% alltaf/oft
spyrja sjúklinga sína hvort þeir neyti náttúrurefna,
62% stundum/sjaldan og 19% aldrei. Um 55% lækn-
anna sögðu þó að þeim fyndist skipta mjög miklu/
miklu máli að sjúklingar nefni neyslu sína á áður-
nefndum efnum.
Ályktanir: Auka- og milliverkanir vegna náttúru-
efna virðast vera vanskráðar hérlendis. Nauðsynlegt
er að auka fræðslu um aukaverkanir og milliverkanir
náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna og hvetja
til virkrar skráningar og tilkynningar auka- og milli-
verkana sem hljótast af neyslu þessara efna.
Inngangur
Notkun náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna
til sjálfslækninga, forvarna gegn sjúkdómum og til að
bæta útlit nýtur aukinna vinsælda hérlendis. Með
aukinni neyslu þessara efna er talið að tilfellum fjölgi
þar sem rekja megi aukaverkanir og milliverkanir við
ENGLISH SUMMARY
Þórhallsdóttir Ó, Ingólfsdóttir K, Jóhannsson M
Herbal medicine - Adverse effects and drug-
interactions
Læknablaðið 2002; 88: 289-97
Objective: The aim of the study was to estimate the
frequency of adverse effects and drug-interactions
attributable to the use of herbal medicine and dietary
supplements in lceland. A further objective was to assess
the perception and attitudes of lcelandic physicians
towards these products.
Material and methods: A questionnaire was sent to all
physicians registered in lceland, a total of 1083. Physicians
were questioned as to whether they had become aware of
adverse effects or drug interactions that could be related
to the use of herbal medicines or dietary supplements.
Several questions concerned education and attitudes
towards these products. A search was made using the
computer system of the University Hospital in order to find
cases of hospitalization resulting from consumption of
herbal medicine. Details on admissions to the Emergency
Department of the hospital were studied daily for one
month. Enquiries made to the lcelandic Poison Center
from 1997-2000 and formal reports submitted to the
lcelandic Medicines Control Agency and the Surgeon
General were examined.
Results: Of the 410 physicians that responded, 134 had
become aware of adverse effects and 25 had become
aware of herbal/drug interactions. Details on 253 adverse
effects and 13 interactions were presented. Hospitalization
was estimated to have been the consequence of 38 cases,
14 of which had been considered life-threatening. Of those
who responded, 17% reported asking their patients
always/frequently if they used herbal medicines or dietary
supplements, whilst 62% reported asking occasionally/
seldom and 19% never asking. Approximately 55% of the
respondents regard it as being very important/important
that patients consult a physician before using herbal
products or dietary supplements.
Conclusions: Adverse effects and interactions between
herbal medicines/dietary supplements and prescribed
drugs appear to be under-reported in lceland. It is impor-
tant to increase awareness and education in this field
amongst physicians and other health-care professionals in
lceland.
Key words: adverse effects, herbal/drug interactions,
herbal medicine, dietary supplements.
Correspondance: Ólöf Þórhallsdóttir, olof@omega.is
lyfseðilsskyld lyf til þeirra. Skipta má náttúruefnum í
tvo flokka: Náttúrulyf annars vegar en náttúruvörur
Læknablaðið 2002/88 289