Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 21

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 21
FRÆÐIGREINAR / AUKA- OG MILLIVERKANIR NÁTTÚRULYFJA Aukaverkanir og milliverkanir náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna Ólöf Þórhallsdóttir1 Kristín Ingólfsdóttir' Magnús Jóhannsson2 'Lyfjafræðideild Háskóla íslands, :Læknadeild Háskóla Islands. Bréfaskipti og fyrirspurnir: Ólöf Þórhallsdóttir, Skerja- braut 5a, 170 Seltjarnarnesi. Símar 551 1549,894 1004, olof@omega.is Lykilorð: aukaverkanir, milliverkanir, náttúruefni. fœðubótarefni. Ágrip Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna fjölda aukaverkana og milliverkana sem rekja má til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna hér á landi. Markmiðið var jafnframt að kanna við- horf lækna á íslandi til þessara efna. Aðferðin Spurningalisti var sendur til allra lækna á landinu, alls 1083. Spurt var hvort viðkomandi læknir hafi orðið/hugsanlega orðið var við auka- eða milliverkanir sem rekja mætti til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara eða fæðubótarefna hér á landi. Einnig var spurt um viðhorf til efnanna. Þar sem ekki finnast sérstök skráningarnúmer fyrir sjúkdómsgreiningar þar sem þátt eiga náttúrulyf, náttúruvörur eða fæðu- bótarefni í skráningarkerfum Landspítala-háskóla- sjúkrahúss, var leit gerð í tölvukerfum sjúkrahússins eftir skráningamúmerum sem þóttu líkleg til að sýna innlagnir vegna neyslu náttúruefna. Jafnframt var fylgst daglega með bráðamóttökum sjúkrahússins í einn mánuð, fyrirspurnir vegna náttúruefna til Eitrunarmiðstöðvar voru skoðaðar og að lokum at- hugað hvort tilkynningar hefðu borist Lyfjastofnun eða Landlæknisembættinu. Niðurstöður: Spurningalistanum svöruðu 410 læknar. Þar af höfðu 134 orðið varir/hugsanlega orð- ið varir við fyrrgreindar aukaverkanir og 25 við milli- verkanir. Upplýsingar komu fram um 253 aukaverk- anir og 13 milliverkanir. Innlögn á sjúkrahús var talin afleiðing 38 tilvika og í 14 tilvikum var talið að auka- verkun hafi stofnað lífi sjúklings í hættu. Af þeim læknum sem svöruðu listanum sögðust 17% alltaf/oft spyrja sjúklinga sína hvort þeir neyti náttúrurefna, 62% stundum/sjaldan og 19% aldrei. Um 55% lækn- anna sögðu þó að þeim fyndist skipta mjög miklu/ miklu máli að sjúklingar nefni neyslu sína á áður- nefndum efnum. Ályktanir: Auka- og milliverkanir vegna náttúru- efna virðast vera vanskráðar hérlendis. Nauðsynlegt er að auka fræðslu um aukaverkanir og milliverkanir náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna og hvetja til virkrar skráningar og tilkynningar auka- og milli- verkana sem hljótast af neyslu þessara efna. Inngangur Notkun náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna til sjálfslækninga, forvarna gegn sjúkdómum og til að bæta útlit nýtur aukinna vinsælda hérlendis. Með aukinni neyslu þessara efna er talið að tilfellum fjölgi þar sem rekja megi aukaverkanir og milliverkanir við ENGLISH SUMMARY Þórhallsdóttir Ó, Ingólfsdóttir K, Jóhannsson M Herbal medicine - Adverse effects and drug- interactions Læknablaðið 2002; 88: 289-97 Objective: The aim of the study was to estimate the frequency of adverse effects and drug-interactions attributable to the use of herbal medicine and dietary supplements in lceland. A further objective was to assess the perception and attitudes of lcelandic physicians towards these products. Material and methods: A questionnaire was sent to all physicians registered in lceland, a total of 1083. Physicians were questioned as to whether they had become aware of adverse effects or drug interactions that could be related to the use of herbal medicines or dietary supplements. Several questions concerned education and attitudes towards these products. A search was made using the computer system of the University Hospital in order to find cases of hospitalization resulting from consumption of herbal medicine. Details on admissions to the Emergency Department of the hospital were studied daily for one month. Enquiries made to the lcelandic Poison Center from 1997-2000 and formal reports submitted to the lcelandic Medicines Control Agency and the Surgeon General were examined. Results: Of the 410 physicians that responded, 134 had become aware of adverse effects and 25 had become aware of herbal/drug interactions. Details on 253 adverse effects and 13 interactions were presented. Hospitalization was estimated to have been the consequence of 38 cases, 14 of which had been considered life-threatening. Of those who responded, 17% reported asking their patients always/frequently if they used herbal medicines or dietary supplements, whilst 62% reported asking occasionally/ seldom and 19% never asking. Approximately 55% of the respondents regard it as being very important/important that patients consult a physician before using herbal products or dietary supplements. Conclusions: Adverse effects and interactions between herbal medicines/dietary supplements and prescribed drugs appear to be under-reported in lceland. It is impor- tant to increase awareness and education in this field amongst physicians and other health-care professionals in lceland. Key words: adverse effects, herbal/drug interactions, herbal medicine, dietary supplements. Correspondance: Ólöf Þórhallsdóttir, olof@omega.is lyfseðilsskyld lyf til þeirra. Skipta má náttúruefnum í tvo flokka: Náttúrulyf annars vegar en náttúruvörur Læknablaðið 2002/88 289
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.