Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2002, Qupperneq 24

Læknablaðið - 15.09.2002, Qupperneq 24
FRÆÐIGREINAR / BIÐLISTAR, KYN, ALDUR háls-, nef- og eyrnadeild (33 vikur á móti 29 vikum, p<0,05). Alyktun: Rannsóknin leiddi í ljós að á íslenskum sjúkrahúsum er í mörgum tilfellum verulegur og marktækur munur á lengd biðtíma á biðlistum eftir aldri og kyni sjúklinga. Ýmsar tilgátur komu fram til að skýra þennan mun en frekari rannsókna er þörf til að kanna hvort hann er afleiðing þarfamiðaðrar niður- röðunar á biðlista eða raunverulegrar mismununar. Inngangur Lengd biðlista hefur á síðari árum verið meðal þeirra mælikvarða sem notaðir eru til að meta gæði heil- brigðisþjónustu (1-4). Til dæmis þykir stjórnvöldum í mörgum nágrannalanda okkar hæfilega langir bið- listar svo mikilvægt markmið að þar hafa verið sett lög um hámarksbiðtíma eftir rannsóknum og aðgerð- um. Hér á landi hefur engin slík löggjöf verið sett en engu að síður er fylgst grannt með þróun mála á þessu sviði, ekki síst hjá Landlæknisembættinu. Þrisvar á ári berast embættinu upplýsingar um stöðu biðlista í landinu. Þetta er gert til að fylgjast með heildarfjölda sjúklinga á hverjum lista, auk breytinga á meðalbiðtíma sjúklingahópsins. Skýringa er leitað á þeim breytingum sem vart verður við og heilbrigðis- kerfinu þannig veitt aðhald á þessu sviði. Slíkt aðhald hlýtur að teljast mikilvægt þar sem óhóflega langir biðlistar geta valdið sjúklingum og aðstandendum þeirra verulegum óþægindum, skertum lífsgæðum og jafnvel heilsutjóni. Mikilvægt er að jafnræðis sé gætt við innköllun sjúklinga af biðlistum. í flestum tilfellum þætti óeðli- legt að ákveðinn hópur fengi skjótari afgreiðslu en annar, til dæmis annað kynið umfram hitt eða yngra fólk umfram það eldra. Umræða um slíka mismunun hefur þó verið nokkur í þjóðfélaginu. Dæmi um þetta var orðrómur sem upp kom innan Félags eldri borg- ara þess efnis að aldraðir væru látnir sæta lengri bið en þeir sem yngri voru. Félagið fór þess vegna fram á, í desember árið 2000, að þetta yrði kannað formlega. Markmið þeirrar rannsóknar sem hér birtist var að kanna hvort kynbundið eða aldursbundið mis- ræmi væri í raun til staðar. Það var því ákveðið að gera samanburð á biðtíma fólks á biðlistum eftir kyni og aldri. Biðlistum hefur hingað til ekki verið skipt niður á þennan hátt heldur ávallt litið á sjúklingahóp- inn sem heild. Eina rannsóknin á biðlistum hérlendis sem fyrir liggur er könnun Aðalheiðar Sigursveinsdóttur heim- spekinema á starfsaðferðum sérfræðinga við niður- röðun á biðlista, auk viðhorfa sérfræðinganna og sjúklinganna sjálfra til listanna. Niðurstöður Aðalheiðar benda til að vinnureglur sérfræðinga séu ekki í föstum skorðum og nægi ef til vill ekki til að koma í veg fyrir mismunun. Þær undir- strika einnig þau óþægindi og óvissu sem margir sjúk- Tafla 1. Biölistar meö 400 sjúklingum eöa fleirum í maí 2001. Deild Fjöldi á biölista Almenn skurödeild LSH* Hringbraut 457 Augndeild LSH Hringbraut 679 Sameinuð bæklunarlækningadeild LSH 651 Reykjalundur (endurhæfing) 945 Háls-, nef- og eyrnadeild LSH Fossvogi 582 Lýtalækningadeild LSH Hringbraut 458 * LSH: Landspítali háskólasjúkrahús. linganna verða fyrir á biðtímanum og þar með mikil- vægi þess að fyllsta jafnræðis sé gætt við innköllun af biðlistum (5). Efniviöir og aöferöir Valdir voru þeir biðlistar sem komu inn til Landlækn- isembættisins í maí 2001 og voru með 400 sjúklinga eða fleiri. Á töflu 1 má sjá deildirnar sem höfðu nægi- lega langa biðlista, ásamt sjúklingafjölda á hverjum lista. Sú aðgerð/meðferð sem flestir biðu eftir var síðan valin úr til að hafa sjúklingahópinn sem líkastan inn- byrðis. Fyrir hvern biðlista (nema biðlista lýtalækn- ingadeildarinnar þar sem eingöngu voru konur) var sjúklingunum skipt niður á tvennan hátt: 1) I karla og konur. 2) í eldri hóp og yngri hóp (sem reynt var að hafa jafnstóra). Tafla II sýnir yfirlit yfir deildir, aðgerðir og fjölda sjúklinga í hverjum hópi, það er fjölda karla og kvenna, yngra fólks og eldra fólks. Þessir hópar voru svo bornir saman með tilliti til biðtíma, það er biðtími karla borinn saman við bið- tíma kvenna og biðtími eldra fólks borinn saman við biðtíma yngra fólks. Mann-Whitney próf (U-próf) var notað til að kanna hvort marktækur munur kæmi fram á biðtíma þeirra hópa sem bornir voru saman. Miðgildi biðtíma hvers hóps fyrir sig var einnig fundið. Niöurstöður Rannsóknin leiddi í ljós að á íslenskum sjúkrahúsum hefur aldur og kyn í mörgum tilfellum veruleg og marktæk áhrif á biðtíma á biðlistum. Ekki er þó full- komið samræmi í því hvort kynið eða hvaða aldurs- flokkur þarf að sæta lengri bið. Á almennri skurðdeild bíða karlar lengur en kon- ur á meðan konur bíða lengur en karlar á háls-, nef- og eyrnadeild og á Reykjalundi. Þegar munur á biðtíma aldurshópa er skoðaður sést að á þremur deildanna, það er augndeild, háls-, nef- og eyrnadeild og á Reykjalundi, bíður eldri hóp- urinn lengur en sá yngri. Niðurstöðurnar eru teknar saman í töflu III. 636 Læknablaðið 2002/88
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.