Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2002, Side 49

Læknablaðið - 15.09.2002, Side 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TILLAGA TIL L AG A B R E YTI N G A Formaður, ritari, varaformaður og féhirðir skulu kosnir hver fyrir sig til (taka út 2ja) tveggja ára í senn. Annað árið skal kjósa formann og féhirði, en hitt árið ritara og varaformann. Séu fleiri en (taka út 2) tveir í framboði og falli atkvæði (taka út jafnt) að jöfnu, skal kjósa aftur milli þeirra, sem flest atkvæði hlutu. ('l'aka út Verði) Falli atkvæði aftur (taka út jöfn) að jöfnu, eða hafi (taka út 2) tveir verið í kjöri og atkvæði fallið (taka út jafnt) að jöfnu. skal hlut- kesti ráða. Tveir meðstjórnendur skulu kosnir til eins árs í senn. Verði atkvæði jöfn við kjör þeirra, skal hlutkesti ráða. Kjósa skal (taka út einn endurskoðanda) tvo skoð- unarmenn og (taka út annan) einn til vara úr hópi félagsmanna til eins árs í senn. 10. gr. Verksvið stjórnar, allsherjaratkvæðagreiðslur, vantraust á stjórn Stjórn félagsins fer með málefni þess milli aðalfunda. Stjórnin er ábyrg gagnvart aðalfundi. Verksvið stjórnar er að sjá um daglegar framkvæmd- ir, vera á verði um hag íslensku læknastéttarinnar, félaga hennar og einstaklinga og sjá um framkvæmd- ir á samþykktum aðalfundar. Hún kemur fram út á við sem fulltrúi félagsins, veitir umsagnir og tilnefnir í ráð og nefndir eftir því sem kveðið er á um í lögum og reglum. Hún semur árlega skýrslu um starf félags- ins og leggur fyrir aðalfund ásamt reikningum félags- ins endurskoðuðum af (taka út tveim mönnum, en annar þeirra skal vera löggiltur endurskoðandi) lög- giltum endurskoðanda, er stjórnin fær til þess starfs með kjörnum (taka út endurskoðanda) skoðunar- mönnuin úr hópi félagsmanna. Stjórnin gætir eigna félagsins og ber ábyrgð á vörslu þeirra. Hún skal gera áætlun um fjárhag og starf félagsins fyrir næsta ár á aðalfundi. Fundir stjórnar eru lögmætir þegar meirihluti er mættur á fundi. Fundargerðir stjórnar skulu samþykktur á stjórnar- fundi og undirritaðar af ritara. Stjórn félagsins ræður framkvæmdastjóra, sem veitir skrifstofu félagsins forstöðu. Framkvæmdastjóri ræð- ur aðra starfsmenn í samráði við stjórnina. Óski a.m.k. 100 félagsmenn eftir allsherjaratkvæða- greiðslu allra lækna í (taka út svæðafélögum) aðildar- félögum milli aðalfunda um málefni er varða félags- menn ber stjórn LI að láta slíka atkvæðagreiðslu/ara fram (flutt til)innan fjögurra vikna. Meirihlutasam- þykkt í slíkri atkvæðagreiðslu (taka út verði) er bind- andi fyrir stjórn LI svo fremi a.m.k. helmingur skráðra félagsmanna (taka út svæðafélaganna) aðild- arfélaganna hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslunni. Meirihluti aðalfundar getur á sama hátt skotið mál- um til slíkrar allsherjaratkvæðagreiðslu. Vantraust á stjórnina skal borið fram skriflega og undirritað af minnst helmingi kjörinna fulltrúa á næsta aðalfundi á undan. Stjórninni er skylt að boða til aukaaðalfundar um vantraustið innan tveggja vikna, og skal fundurinn boðaður með fjögurra vikna fyrirvara. Samþykki a.m.k. 2A kjörinna fulltrúa van- traustið, skal fundurinn kjósa bráðabirgðastjórn til næsta reglulegs aðalfundar. 11. gr. Formannafundur Stjórn LI skal halda fund með formönnum aðildar- félaganna eða fulltrúum þeirra, a.m.k. einu sinni milli aðalfunda. Á fundi þessum skal stjórnin gera grein fyrir af- greiðslu sinni á ályktunum síðasta aðalfundar, stöðu helstu mála og annarri starfsemi félagsins. Óski meirihluti formanna aðildarfélaga eftir slíkum fundi, skal hann haldinn innan fjögurra vikna þaðan í frá. Formannafund skal boða skriflega með a.m.k. (taka út 2ja) tveggja vikna fyrirvara. Á formannafund skal bjóða formönnum samninga- nefnda og annarra helstu starfsnefnda félagsins svo og formönnum annarra félaga lækna og gestum skv. nánari ákvörðun stjórnar hverju sinni. (Taka út Félags eldri lækna, Félags íslenskra heimilislækna, Félags ungra lækna, Félags yfirlækna og Sérfræðingafélags íslenskra lækna.) V. KAFLI. Um fjármál félagsins 12. gr. Árgjöld Félagsnienn í LI og aðildarfélögum greiða árgjald eftir ákvörðun aðalfundar félagsins, sem rennur í fé- lagssjóð LI og er ætlað að standa straum af rekstri félagsins. Aðalfundur LÍ ákveður árgjald til LÍ fyrir hvern gjaldskyldan félaga og annast LI innheimtu þess og skilar hluta (taka út svæðafélagsins) aðildar- félagsins í árgjaldinu til aðildarfélagsins. Árgjöld þeirra lækna sem eiga beina einstaklingsaðild að LI renna óskipt til félagsins. Læknablaðið 2002/88 661

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.