Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 62
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÆPITUNGULAUST Af heilsufasisma Medical Nemesis heimsótt á ný Árni Björnsson skrifar Ég fór í BorgarleikhÚsið snemma á liðnu vori. Ekki til að njóta leiklistar, heldur til að hlusta á unga konu sem er heimspekingur flytja fyrirlestur um sið- fræði klónunar. Petta var góður fyrirlestur og ungi heimspekingur- inn flutti hann vel og skilmerkilega. Efnið er mjög áhugavert, bæði frá vísindalegu og siðfræðilegu sjón- armiði, en það var ekki það sem varð til þess að ég hef aftur og aftur hugsað til þessa kvölds. Heldur var það orð sem annar heimspekingur og siðfræðingur lét falla, á fundinum, en það var orðið „heilsufasismi". Ég hrökk dálítið við, þegar ég heyrði orðið, ekki síst vegna þess að sá sem sleppti því útúr sér hefur verið settur í forsvar fyrir íslandshluta margþjóðlegrar nefndar sem fjalla á um siðfræði gagnagrunna á heil- brigðissviði. Prófessorinn skilgreindi hvað hann ætti við með orðinu, en það væri tilhneiging í þjóðfélaginu til að leggja allt undir til að viðhalda heilsu, en heilsa væri almennt illa skilgreint hugtak. í íslensku alfræðibókinni stendur. „Orðið fasismi er oft notað sem skammaryrði um öfgakenndar skoð- anir sem réttlæta beitingu ofbeldis í stjórnmálum og alræði" (1). Samkvæmt þessu ætti heilsufasismi að vera eins konar heilsufarsofbeldi, en hvernig getur heilsufar tengst ofbeldi? Er hægt að neyða menn til að vera heilbrigðir og þá komum við að skilgreiningu á heilsu og eða heilbrigði. Samkvæmt orðabókinni, en þar er vitnað í skilgreiningu Alþjóða heilbrigðis- stofnunarinnar, WHO, er heilbrigði „ástand sem ein- kennist af fullkominni vellíðan í líkamlegum, andleg- um og félagslegum skilningi en ekki aðeins það að vera laus við vanlíðan og sjúkdóma" (1). Rök má færa fyrir því, að þessi skilgreining WHO sé ærið metnaðarfull en heilbrigðisáætlun íslensku rikis- stjómarinnar fyrir ársins 2000 tók mið af henni en þar stendur að stefnt skuli að því að Islendingar verði heilbrigðir á því herrans ári (2). Þessi áætlun var, sem betur fer fyrir ríkissjóð landsins, ekki bundin í lög, því sennilega ættu margir hönk uppí bakið á ríkissjóði nú árið 2002. Nú hefur önnur heilbrigðisáætlun litið dagsins Ijós, til ársins 2010 (3). Skyldi hún tengjast áætlun um flutning Reykjavíkurflugvallar sama ár? Standist hún jafn vel og sú fyrri er betra að menn geri sér ekki of háar vonir. Gæti svona áætlanagerð flokk- ast undir heilsufasisma (einskonar heilsufræðilegt alræði)? Hvað sem öðru líður hlýtur hún að teljast útópía og þá má enn spyrja, hvort hægt sé að gera stjórnmálamenn ábyrga fyrir útópíum? Líklega ekki því þá væru bekkirnir í hinu háa Alþingi jafnvel þunnskipaðri en þeir eru stundum. Þegar svona áætl- anir eru gerðar er viturlegt að setja fyrirvara enda byrja flestar málsgreinar áætlunarinnar á orðunum „stefnt skal að“. Líklega hafa höfundarnir lært af eiturlyfjafyrirheitinu sællar minningar. Það var heimspekingurinn Ivan Ulich sem í bók sinni Medical Nemesis frá 1975 (Nemesis var hefnd- argyðja í grískri goðafræði sem refsaði Olympsgoð- um fyrir ofdramb) bar fram kenninguna um læknis- fræðivæðingu (medicalization) vestrænna þjóðfélaga, og benti á að læknavísindin hefðu með iðnvæðing- unni snúist í andhverfu sína og stuðluðu jafn mikið að vanheilsu sem heilsu, auk þess sem hún hefði stuðlað að enn meiri misskiptingu milli ríkra og fátækra. Kenningar hans þóttu þá öfgafullar og voru harðlega gagnrýndar af læknastéttinni og fleirum tengdum heilsu, af atvinnu- eða hugsjónaástæðum. Hér á landi var læknastéttin tómlát um bókina því það er íslensk læknastéll oftar en ekki um prinsíp- mál. Hörður Bergmann kennari og þjóðfélagsgagn- rýnandi vakti athygli á bókinni en mætti tómlæti bæði læknastéttarinnar og stjórnmálamanna, svo umræð- an kafnaði fljótt í dæmigerðri íslenskri meðal- mennsku. Þó er full ástæða til að skoða kenningar Illich aftur í ljósi þróunar síðustu áratuga síðustu ald- ar og fyrstu ára aldarinnar sem er að byrja. Hafði Illich réll fyrir sér í grundvallaratriöum þó hann gæti ekki spáð fyrir um tæknilega þróun í læknavísindum á síðustu árum sem er örari en nokkru sinni í sögu mannkynsins og hverju sú þróun í vísindum ásamt hnattvæðingunni hefur breytt? Ég ákvað að lesa rit Illichs Medical Nemesis að nýju og reyna að skoða niðurstöður hans í ljósi þess sem gerst hefur í vísindum á síðustu árum og áratug- um og skoða hvort kenningar hans og fullyrðingar hafa staðist, með tilliti til vísindaþróunarinnar og þeirra þjóðfélagsbreytinga sem markast mjög af frjálshyggju og alþjóðahyggju og lita viðhorf manna í mun meira mæli en þegar bókin var skrifuð. Hefur sú meginfullyrðing höfundar að læknisfræðivæðingin gerði meiri skaða en gagn staðist eða hafa vísinda- og tækniframfarir síðan bókin kom út ómerkt kenningar hans? En snúum okkur að kenningum Illich. Hann hélt því fram að framfarir í læknavísindum, tæknilegar og fræðilegar síðustu 15-20 ár, það er að segja fram að útkomu bókarinnar um miðjan áttunda áratuginn, hafi engu skilað í bættri almennri heilsu og að í stað ýmissa sjúkdóma sem tekist hafi að lækna eða jafnvel 674 Læknabladið 2002/88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.