Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 47

Læknablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SJÓNARHÓLL / HAGFRÆÐINGUR / HOUPE-RANNSÓKNIN marklýsingu Félags íslenskra heimilislækna um nám í heimilislækningum. Einnig eru að minnsta kosti sex í eða nýbúnir í námi í Svíþjóð og Noregi. Á íslandi eru nú 10 manns í námsstöðum í heimilislækningum og þar af eru tvær stöður á landsbyggðinni, á Húsavík og Akureyri. Pessu til viðbótar eru 25 manns, sum- ir komnir vel af stað í náminu og taka fullan þátt í námskipulagningu og aðrir að banka á dyr og vilja komast inn. Samtals eru þetta 55 nýútskrifaðir eða upprennandi heimilislæknar. Ástæður fyrir vaxandi áhuga á heimilislækningum eru væntanlega margar. Kjarabarátta og leiðrétting á kjörum heimilislækna hefur að öllum líkindum haft mjög mikið að segja. Breyting sem gerð var 1999 á reglugerð um kandí- datsár breytti einnig miklu. Nú er nám í heilsugæslu hluti af kandídatsárinu og unglæknar eru þrjá mán- uði á heilsugæslustöð og fá tækifæri til að kynnast heimilislækningum. Heimilislæknar hafa einnig borið gæfu til að byggja upp kröftugt framhaldsnám í heim- ilislækningum sem aðrar greinar líta til. Hugsanlega kemur fleira til. Þessi þróun er ánægjuleg svo vægt sé til orða tekið og algjör nauðsyn enda er góð mönnun forsenda þess að heimilislækningar á íslandi haldi velli og þróist á eðlilegan hátt. Það má kannski segja að boltinn hafi verið rakinn upp völlinn af heimilislæknum og nú sé það stjórnvalda að klára sóknina og skora. Markið hlýtur að vera að ljúka uppbyggingu heilsugæslunnar enda þúsundir manna á höfuðborgarsvæðinu sem ennþá eiga ekki kost á sínum persónulega heimilis- lækni. Ráðherra þarf einnig að efna loforð sitt um samning fyrir sjálfstætt starfandi heimilislækna. Kraf- an er skýlaus um að fjölga verulega stöðum heimilis- lækna utan og innan heilsugæslustöðva og koma unga fólkinu sem nú er í farvatninu til vinnu við heimilis- lækningar í þágu þjóðarinnar. Hagfræðingur tekinn til starfa hjá læknafélögunum Læknablaðið hefur áður tilkynnt um komu hagfræðings til starfa á skrif- stofu læknafélaganna en þá reyndist það mýrarljós. Nú er hins vegar kom- inn til starfa Guðbjartur Ellert Jóns- son og þegar farinn að sýsla við hag- rænar hliðar heilbrigðiskerfisins. Bjartur er 41 árs að aldri, fædd- ur og uppalinn Akureyringur. Hann lauk stúdentsprófi frá Verkmennta- skólanum á Akureyri 1986 og B.Sc. prófi í viðskipta- og markaðsfræðum frá University of South Carolina í Bandaríkjunum árið 1990. Hann legg- ur nú stund á MPA nám - stjórnun í opinberum rekstri - við HÍ meðfram starfi. Að námi loknu starfaði Bjartur hjá Jötni hf. í Reykjavík, Samherja á Akureyri og Útvegssviði VMA á Dalvík. Árið 2000 sneri hann sér frá fiskinum að heilbrigðismálunum og hefur starfað á skrifstofu fjármála og upplýsinga á Landspítalanum undan- farin fjögur ár. Þar var helsta verkefni hans að þróa og innleiða DRG-kerf- ið en hann stjórnaði vinnu við kostn- aðargreiningu læknisverka. Bjartur hefur setið í verkefna- og sérfræðihópum, bæði innanlands og erlendis og haldið fyrirlestra um rekstur heilbrigðiskerfa víða. Hann á þrjú börn, Töru Björt 18 ára, Elís Orra 13 ára og Gauta Frey 9 ára. Við bjóðum Bjart velkominn til starfa. The HOUPE study Svörun í HOUPE læknarannsókninni lýkur 15. febrúar 2005 AlLIR LÆKNAR M EÐ LÆKNINGALEYFI Á ÍSLANDI p ANN 30. JÚNÍ SÍÐAS1UÐINN OG ÍÖGHEIM IU HÉRÁ LANDI FENGU BOÐ UM PÁTTTÖKU í HOUPE IÆKNARANNSÓKNINNI OG GÁTU SVARAÐ Á VEFSETRI RANNSÓKNARINNAR WWW.houpc.tlO eða á pappír. Undirtektir hafa verið góðar og þökkum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn. Vefsvörun er nú lokið en þeir sem enn hafa ekki svarað og kjósa að gera það geta póstlagt listann allt fram til 15. febrúar. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Læknafélagsins í síma 5644100. Kærar þakkir fyrir góðar viðtökur, rannsóknarhópurinn Læknabl aöiö 2005/91 187
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.