Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2005, Page 57

Læknablaðið - 15.02.2005, Page 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÁTTÚRUHAMFARIR í TÆLANDI íslenski hópurinn semfór til Tœlands. Fríðrik Sigur- bergsson er lengst til vinstri ífremstu röð. Friðrik leggur fólki lífsregl- urnar á leiðinni. Friðrik sagði að furðuvel hefði gengið að breyta Boe- ing 757farþegaflugvélinni í sjúkraflutningavél. Hér sést farþegarýmið klárt til að taka við sjúklingum. Hvernig farið þið að þessu? Friðrik ber lof á hópinn, hann hafi unnið sem einn maður og allt gengið eins vel og hugsast gat. Farkost- urinn var Boeing 757 vél sem Flugleiðir nota í Ame- ríkuflugið og þótt vinnuaðstaða sé aldrei góð um borð í flugvélum þá hafl tekist furðuvel að breyta henni í sjúkraflutningavél. „Þetta var ótrúlega þægilegt og allt annað en í þyrlunni,“ sagði hann og bætti því við að langflestir hefðu verið til í að fara aðra ferð. „Við sáum að við vorum að gera þessu fólki gott með því að flytja það heim. Það kom hins vegar í ljós að það þurfti ekki að flytja fleiri með þessum hætti.“ Friðrik stundaði framhaldsnám í Svíþjóð og bjó þar í átta ár en hann sagðist aldrei hafa séð Svía eins bjargarlausa og þarna. „Það kom mér verulega á óvart hversu lítið vald þeir voru komnir með á hlutunum eft- ir vikutíma. Þeir báru mikla virðingu fyrir því hversu snurðulaust þetta gekk hjá okkur. - Hvernig farið þið að þessu? spurðu þeir. - Þið virðist alltaf geta skipt um stefnu og tekið ákvarðanir eins og ekkert sé. Ég svaraði því til að við hefðum fullt umboð frá for- sætisráðuneytinu og Landspítaianum og við breyttum um áætlun hvenær sem þess gerðist þörf. Svo einfalt væri það. Það virðist vera lengri stjórnunarkeðja hjá Svíunum og þeir voru greinilega að fjarstýra hlutun- um dálítið að heiman." Friðrik segir að reynslan hafi skilað íslenska hópn- um áleiðis en þá vaknar sú spurning hvaðan sú reynsla er fengin. Sem betur fer hafa íslenskir heilbrigðis- starfsmenn ekki þurft að takast á við slíkar hamfarir sem þarna urðu. „Þarna var á ferð þrautreynt fólk með þetta ís- lenska viðhorf að ganga í málin og leysa þau, gera það sem þurfti að gera. Þeim peningum sem í þetta fóru var vel varið og sjúklingarnir fóru ánægðir frá borði,“ sagði Friðrik Sigurbergsson læknir. Læknabladid 2005/91 197

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.