Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2005, Qupperneq 14

Læknablaðið - 15.10.2005, Qupperneq 14
FRÆÐIGREINAR / SUNDMANNAKLÁÐI Mynd 1. Egg Trichobil- sundmannakláða í Landmannalaugum. Sagt er frá harzia nasaögðu með fuglalífi og niðurstöðum rannsókna á stokköndum þroskaðri bifhœrðri lirfn. og sniglum sem safnað var á svæðinu en þessar tegundir leika aðalhlutverkið í lífsferli fuglaagða á svæðinu. Hugtakið sundmannakláði (enska swimmer’s itch; SI) er notað um kláðabólur sem sundlirf- ur fuglasníkjudýra af ættinni Schistosomatidae (Trematoda) valda eftir að hafa smogið í gegnum húðina á fólki. Útbrotin ganga einnig undir nafn- inu cercarial dermatitis. Lirfurnar eru ósérhæfðar í leit sinni að lokahýsli og gera ekki greinarmun á húð manna og sundfitum sem lirfurnar nota iðu- lega til að smjúga inn í líkama andfugla (1). Menn eru misnæmir fyrir sundlirfunum. Sumir fá kláðabólur, eina eftir hverja lirfu sem nær að srnjúga inn í húðina. Aðrir sýna engin ofnæmisvið- brögð. Pannig er það oft í fyrsta sinn sem menn verða fyrir barðinu á sundlirfum og ónæmiskerfið þekkir ekki sníkjudýrið. Endurtekið smit leiðir þó oftar til ónæmissvars. Sumir verða ofurnæmir við endurtekið áreiti. Komist sundlirfa óáreitt í gegn- um húðina klæðir hún sig í heilu lagi úr hjúp sem umlykur líkama hennar (glycocalyx) og myndar í hans stað tvöfalda himnu sem ónæmiskerfi hýsils- ins þekkir ekki. Þannig útbúin nær lirfan að ferðast óáreitt af ónæmiskerfi líkamans (1). Lítið er vitað um afdrif og möguleg sjúkdóms- áhrif lirfanna í þeim tilvikum sem ekki næst að hefta frekari för þeirra strax í húðinni. Tilraunir á músum hafa þó sýnt að lirfurnar þroskast óeðlilega og drepast eftir nokkra daga eða vikur en hafa þá þegar náð að flakka eitthvað um líkamann (2-6). Myndun kláðabólu er sönnun þess að för lirfu hafi verið stöðvuð. Fjöldi kláðabóla fer einkum eftir þéttleika lirfa í vatninu og tímanum sem viðkom- andi hélt sig þar. Sundmannakláði var fyrst staðfestur á íslandi haustið 1997 þegar í ljós kom að kláðabólur sem börn höfðu fengið eftir leik í vaðtjörn Fjöl- skyldugarðsins í Reykjavík síðsumars það ár voru raktar til Trichobilharzia sundlirfa (7). Rannsóknir sýndu að þar var á ferðinni óvenju stórvaxin, áður óþekkt tegund (8, 9). Endurteknar smittilraunir þar sem lirfum ögðunnar var gefinn kostur á því að smjúga í gegnum sundfit stokkanda báru árangur haustið 2001 en þá kom í ljós að umrædd tegund er í hópi svonefndra nasaagða (10). Nasaögður lifa fullorðnar í nefholi fugla. Öfugt við iðraögður, sem lifa inni í bláæðum við aftasta hluta meltingarvegar og eru taldar flakka þangað eftir blóðrás, ferðast lirfur nasaagða eftir taugum og tekur ferðalagið upp í nefhol tæpar þrjár vikur. Verði smit í gegnum sundfit hefst ferðalagið í út- taugum í fótum og flakka lirfurnar eftir þeim í átt að mænu og uppeftir henni í átt að heilanum, í gegnum heilann yfir í slímhimnu nefholsins. Að lokinni mökun ormanna sem þangað komnir eru orðnir langir en mjóvaxnir, þroskast í kvenormum stór, göddótt egg (mynd 1). Gaddarnir rjúfa egginu leið út í nefliolið þar sem eggið klekst og út skríður bifhærð lirfa (mynd 1). Bifhærða lirfan berst út í vatnið þegar fuglinn drekkur eða leitar sér nær- ingar. I vatninu leitar lirfan uppi vatnasnigil sem hún borar sig inn í og umbreytist í honum í lirfustig (sporocyst) sem tekur til við að framleiða sundlirf- ur við kynlausa æxlun (1, 2, 5). Eini þekkti millihýsill sundlirfa fuglablóðagða hér á landi er vatnasnigillinn Radix peregra en hann er algengur í tjömum og vötnum um land allt. Sundlirfur fuglablóðagða hafa fundist í vötn- um víða um land þar sem snigla- og andfuglalíf er auðugt (11). Strax og ljóst var að nasaögðu var að finna í íslensku lífríki var niðurstaðan kynnt (11) og fólk varað við því að útsetja sig fyrir sundlirfum fuglablóðagða því tilraunir hafa sýnt að sundlirfur nasagða lifa stundum dögum og jafnvel vikum saman í spendýrum og flakka þá eftir taugum rétt eins og í fuglunum (1, 2, 5, 6). Rannsóknir skortir á því hvort lirfurnar haga sér svipað í mönnum og músum en nagdýratilraunirnar eru það nýjar af nálinni að niðurstöður þeirra er enn sem komið er ekki að finna í handbókum eða kennsluritum. Níu nasaögðutegundir eru þekktar í heiminum í dag (1). Fimm þeirra hafa fundist í andfuglum, goðum og storkfuglum í Afríku, tvær hafa fundist í andfuglum og dúfum í Ástralíu en í Evrópu eru einungis tvær tegundir þekktar enn sem komið er þótt vísbendingar hafi komið fram um að teg- undirnar geti verið fleiri (1). Önnur er tegundin sem fundist hefur hér á landi (8, 9) en hin er Trichobilharzia regenti og var henni lýst í Tékk- landi árið 1998 (12, 13). Nokkur útlitsmunur er á Evróputegundunum tveimur. Til dæmis eru bæði lirfu- og fullorðinsstig T. regenti smávaxnari en hjá tegundinni sem fundist hefur hérlendis. Á íslandi hafa, auk nasaögðunnar í stokkönd, tvær iðrablóðögðutegundir fundist í álftum og 730 Læknablaðið 2005/91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.