Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2005, Page 42

Læknablaðið - 15.10.2005, Page 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÍFEYRISMÁL Frá stjórn Lífeyrissjóðs lækna: Tillaga um sameiningu Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins Þorkell Bjarnason Stjórn Lífeyrissjóðs lækna leggur til að lífeyris- sjóðurinn sameinist Almenna lífeyrissjóðnum frá og með 1. janúar 2006. Tillaga þess efnis verður lögð fyrir sjóðfélaga í póstkosningum í október. Markmiðið með sameiningunni er að tryggja lækn- um hærri lífeyri í framtíðinni með því að lækka kostnað og auka áhættudreifingu. Sjóðfélagar í Lífeyrissjóði lækna munu kjósa um sameininguna í póstkosningum sem efnt verð- ur til í framhaldi af sjóðfélagafundi sem verður haldinn í október. Allir sjóðfélagar munu fá senda atkvæðaseðla sem þeir geta sent til baka innan ákveðins frests. Póstkosningin tekur þrjár til fjórar vikur. Sjóðfélagar í Almenna lífeyrissjóðnum kjósa um sameininguna á sjóðfélagafundi sem verður í nóvember þegar niðurstaða póstkosningar hjá læknunt liggur fyrir. Rökin með sameiningu sjóðanna eru eftirfar- andi: • Kostnaður lækkar. Áhættudreifing eykst. Líkur á hækkun lífeyrisgreiðslna aukast. • Stærri sjóður getur veitt betri þjónustu. • Fjárfestingaráhætta sjóðfélaga og lífeyris- þega verður aðskilin. Öryggi lífeyrisþega eykst. Rökin gegn sameiningu sjóðanna eru fyrst og fremst þau að áhrif lækna í stjórn minnka. Til að byrja með fá læknar þrjá fulltrúa af níu í stjórn en í framtíðinni verður stjórnin kosin af sjóðfélögum. Samsetning sameinaðs sjóðs verður þannig að læknar hafa alla burði til að tryggja ítök í stjórn. Önnur rök eru að lagt er til að ávinnsla makalíf- eyrisréttinda breytist í framtíðinni. Samkvæmt samþykktum sameinaðs lífeyrissjóðs er gert ráð fyrir að við fráfall verði greiddur tímabundinn makalífeyrir til maka en ekki ævilangur eins og í Lífeyrissjóði lækna. Stjórn Lífeyrissjóðs lækna telur að rökin með sameiningu sjóðanna séu mikilvægari en mótrökin og leggur til að læknar samþykki tillöguna. Við hvetjum lækna eindregið til að kynna sér vel þetta mikla hagsmunamál og taka upplýsta ákvörðun. Á heimasíðu sjóðsins, www.llaekna.is eru nánari upplýsingar. verður sameinaður lífeyrissjóður Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins fimmti stærsti lífeyrissjóðurinn með um 24 þúsund sjóðfélaga og heildareignir um 60 milljarða. Sé miðað við árleg iðgjöld er sjóðurinn sá fjórði stærsti hér á landi. Við sameininguna verður til samtryggingarsjóð- ur með um 5000 virka greiðendur. Virkir greið- endur í Lífeyrissjóð lækna í dag eru tæplega 1000 sem tryggingafræðingar telja vera of fámennan hóp til þess að tryggja viðunandi áhættudreifingu til lengdar. Sameining sjóðanna leiðir til mikils hagræðis og benda útreikningar til þess að rekstrarkostnaður geti lækkað verulega í samanburði við núverandi kostnað. Með stærri sjóði eykst áhættudreifing og sjóðurinn er betur í stakk búinn að standa við skuldbindingar sínar. Öryggi sjóðfélaga eykst. Nafn sameinaðs sjóðs ákveðið með fyrirvara Tillögur um sameiningu sjóðanna byggja á sam- komulagi um eftirfarandi atriði. 1. Áunnin lífeyrisréttindi í Lífeyrissjóði lækna og samtryggingarsjóði Almenna lífeyrissjóðsins haldast óbreytt. 2. Nýr samtryggingarsjóður verður með nýju fyrir- komulagi sem gerir kleift að aðskilja fjárfest- ingaráhættu lífeyrisþega og sjóðfélaga. 3. Nafn sameinaðs lífeyrissjóðs verður Almenni lífeyrissjóðurinn. Til greina kemur að skipta um nafn ef góð tillaga kemur fram. 4. Aðild að sjóðnum verður opin en sjóðurinn er jafnframt starfsgreinasjóður arkitekta, leiðsögu- manna, lækna, tæknifræðinga og tónlistar- manna. 5. Sameinaður sjóður mun bjóða ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins. Stjórn sjóðsins mun skoða hvort ástæða sé til að bjóða fleiri ávöxt- unarleiðir. 6. Sjóðurinn mun endurskoða lánareglur sjóðfé- lagalána. Þessu er lokið og hafa stjórnir sjóð- anna samræmt lánareglur þeirra. Höfundur er formaöur stjórnar Lífeyrissjóðs lækna. Fimmti stærsti lífeyrissjóðurinn Verði tillaga um sameiningu sjóðanna samþykkt Fleiri lífeyrissjóðir stefna á sameiningu Lífeyrissjóðum á fslandi hefur á undanförnum árum fækkað verulega. Árið 1980 voru starfandi 96 758 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.