Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2005, Side 45

Læknablaðið - 15.10.2005, Side 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ Evrópusamtök bama- og unglingageðlækna funduðu í Reykjavík Staðan á íslandi vakti athygli fundargesta Evrópusamtök sérfræðilækna í barna- og ung- lingageðlækningum héldu ársfund sinn í Reykjavík 10. september síðastliðinn og daginn áður var mál- þing þar sem fundarmönnum var kynnt staða og framtíðarhorfur barna- og unglingageðlækninga á íslandi. Þar voru flutt þrjú erindi þar sem stöðunni var lýst en auk þess sagði Jorma Piha prófessor í barnageðlækningum við Háskólann í Turku í Finnlandi frá stöðu greinarinnar þar í landi og í Evrópu. Erindin voru hin fróðlegustu þar sem Olafur Ó. Guðmundsson yfirlæknir á BUGL rakti sögu barna- og unglingageðlækninga hér á landi frá 1970 og Vilhelmína Haraldsdóttir sviðsstjóri lækninga lýsti starfsemi og fjárhagsgrundvelli Landspítala með tilliti til stöðu BUGL. Loks greindi Stefán Sigurðsson forseti læknadeildar Háskóla Islands frá skipulagi kennslu í deildinni með sérstöku tilliti til þeirrar kröfu barna- og unglingageðlækna að sett verði á fót prófessorsstaða í greininni. Framgangskerfið gæti hjálpað Staða barna- og unglingageðlækninga hefur oft verið til umfjöllunar hér og í öðrum fjölmiðlum svo óþarfi er að rekja það sem fram kom um það efni. Hins vegar vakti þessi staða greinilega at- hygli fundarmanna sem spurðu ýmissa spurninga. Einkum vakti forvitni erindi Stefáns þar sem hann lýsti því hvernig framgangskerfi háskólakennara verkar á þarfir deildanna fyrir kennslukrafta. Eins og kunnugt er heyra barna- og unglinga- geðlækningar undir almennar geðlækningar, bæði í læknadeild og á Landspítala sem merkir að full- orðinsgeðlækningar eru ríkjandi og þeir sem starfa að barna- og unglingageðlækningum þurfa að sækja allt sitt til stjórnenda sem eru sérfræðingar í geðlækningum fullorðinna. Stefán sagði að nú væri staðan þannig í geðlækningum að þar væri prófess- or í hálfri stöðu, tveir aðstoðarprófessorar og tveir aðjúnktar og heyrðu barna- og unglingageðlækn- ingar undir annan þeirra síðastnefndu. Stefán sagði að besta leiðin til þess að auka hlut barna- og unglingageðlækninga í deildinni væri að nota framgangskerfið. Það merkir að aðjúnktinn getur sótt um að verða aðstoðarprófessor og síðan prófessor með tímanum. Framgangskerfið tryggir kennurum ákveðin réttindi og deildir skólans geta í raun ekki hamlað gegn því að menn fái stöðu- hækkun jafnvel þótt viðkomandi deild telji sig ekki hafa þörf fyrir kennara í hærri stöðunni. Aðrar leiðir væru til, svo sem að herja á stjórn- völd og tryggja skólanum meira fé sem væri þá eyrnamerkt þessari stöðu. Einnig væri til í dæminu að semja við fyrirtæki um að kosta prófessorstöðu í barna- og geðlækningum og loks væri hægt að fá gestaprófessora frá útlöndum til starfa við deild- ina. Samanburður við Evrópu Jorma Piha frá Turku skýrði frá því hver staðan er í barna- og unglingageðlækningum í Finnlandi og Evrópu. Fyrstu barna- og unglingageðdeildirnar voru stofnaðar um miðja síðustu öld og um 1970 voru þær orðnar til í flestum löndum Evrópu. Þróunin hefur verið nokkuð ör innan greinarinnar á síðustu árum enda hlaut hún viðurkenningu sem undirsérgrein árið 1993. Þróunin sést vel á því að árið 1990 voru sérfræðingar í barna- og unglinga- geðlækningum fimm á hverja 100.000 íbúa Evrópu undir tvítugsaldri en árið 2000 voru þeir orðnir 8,8 að jafnaði. Barna- og unglingageðlækningar eru kenndar sem sjálfstæð grein í 187 háskóladeildum í Evrópu en í þeim starfa 150 prófessorar. Af gömlu EES- ríkjunum eru ísland, Lúxemborg og Portúgal einu löndin sem ekki hafa skipað prófessor í greininni. í Finnlandi eru menn komnir skrefinu lengra og hafa skipt greininni í tvennt. Þar eru barnageð- lækningar sjálfstæð grein og einnig unglingageð- lækningar. I máli Vilhelmínu Haraldsdóttur kom fram að nú eru starfandi 11 barna- og unglingageðlæknar hjá Landspítala en stöðugildin eru sex talsins. Miðað við mannfjölda og áðurnefnt meðaltal í Evrópu hefðu átt að vera starfandi hér á landi árið 2000 tæplega átta sérfræðingar á þessu sviði en ef- Þröstur laust hefur sú tala hækkað síðan. Haraldsson Viðbygging undirbúin við Dalbraut Eins og fram hefur komið í fréttum stendur til að byggja við hús barna- og unglingageðdeildarinnar við Dalbraut. Að sögn Aðalsteins Pálssonar á byggingasviði Landspítala er þess að vænta að hönnun geti hafist fljótlega þannig að hægt verði að bjóða bygginguna út strax á nýju ári. Hins vegar á enn eftir að fá heimild til framkvæmda frá fjármálaráðuneytinu. Til eru í sjóði um 150 milljónir króna, mestmegnis gjafafé, en alls kostar 1. áfangi viðbyggingarinnar 220-225 milljónir króna. Búið er að sækja um að fá það sem upp á vantar á fjárlögum næsta árs en svars er tæpast að vænta fyrr en í byrjun október þegar fjárlagafrumvarpið lítur dagsins ljós. Læknablaðið mun fjalla nánar um þetta byggingarátak í næsta blaði. Læknablaðið 2005/91 761

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.