Læknablaðið - 15.10.2005, Síða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR
Um fyrstu íslensku konurnar í læknastétt
I. Steinunn Jóhannesdóttir, 1870-1960, læknapróf 1902 í Los Angeles. Fyrst íslenskra
kvenna til þess að verða læknir og prestur
Margrét
Georgsdóttir
Höfundur er heimilislæknir
og formaður Félags kvenna í
læknastétt.
Greinin er unnin upp úr
fyrirlestri sem höfundur flutti
á þingi norrænna áhugamanna
um sögu læknisfræðinnar
11. ágúst síðastliðinn. 1
næstu tölublöðum munu
birtast greinar um tvo aðra
brautryðjendur úr hópi
kvenna í læknastétt.
Fyrsta íslenska konan sem tók læknapróf sam-
kvæmt Lœkmim á íslandi eftir Lárus H. Blöndal
og Vilmund Jónsson var Steinunn Jóhannesdóttir/
Steinunn Alice J. Hayes, fædd 19. janúar 1870,
dáin 14. mars 1960.
Uppruni og fjölskylda
Steinunn var fædd og uppalin á Eystra-Miðfelli
í Saurbæjarsókn á Hvalfjarðarströnd sem er rétt
fyrir innan Grundartanga, dóttir hjónanna Ellisifjar
Helgadóttur og Jóhannesar Jónssonar bónda,
1828-1879, frá Hrískoti í Brynjudal. Hún fór að
heiman 16 ára sem vinnukona í vist í Reykjavík.
Hún fluttist vestur um haf 1888, þá 18 ára, og vann
fyrir sér, fyrst í Winnipeg í Kanada, síðan N-Dakóta
og loks í Chicago. Þar komst hún á trúboðsskóla,
lauk námi 1895 og vígðist til kirkjuþjónustu og
kennimannlegrar stöðu fyrst íslenskra kvenna. Að
námi loknu starfaði séra Steinunn fyrst sem að-
stoðarprestur í Indíana, var um tíma trúboðsprestur
meðal Kínverja í Oregon og þjónaði síðan sem
aðstoðarprestur við baptistakirkju í Los Angeles
sem hún taldi sinn heimastað. Þar fór hún í lækna-
nám í University of Southern California, School of
Medicine í Los Angeles og lauk læknaprófi þann 11.
febrúar 1902 með hæstu einkunn, 96 stig, þá 32 ára
gömul. Hún tók upp nafnið Alice í Bandaríkjunum
þar sem Steinunn var fremur óþjált.
Steinunn kynntist Charles Arthur Hayes í Los
Angeles, skurðlækni og trúboða, en þau voru skóla-
systkin í læknaskólanum og þau giftu sig þegar að
loknu kandídatsprófi hennar 1902.
Charles var tveimur árum yngri en Steinunn,
fæddur í Illinois 5. júlí 1872, en flutti 15 ára
gamall með foreldrum sínum til LA. Hann var
af breskum ættum, en forfeður hans höfðu verið
í Bandaríkjunum í marga ættliði. Honum var
lýst sem hávöxnum manni, beinum í baki, höfð-
inglegum og ljúfmenni hinu mesta. Nákominn
ættingi hans í föðurætt var Rutherford Hayes
Bandaríkjaforseti 1877-1881. Eftir Charles var haft
að hans mesta gæfa í lífinu hefði verið að eignast
íslenska konu sem hefði verið hans stoð og stytta í
öllu ævistarfinu, og henni gæti hann einnig þakkað
hrífandi íslandsferð. Þau hjón eignuðust einn son,
Arthur Hayes, sem var fæddur í Suður-Kína 1905.
Hann varð prófessor í efnafræði og var kvæntur og
átti tvö kjörbörn þegar Skúli Bjarnason hitti þau
og tók viðtal við Steinunni fyrir blaðið Lögberg í
Winnipeg 1943.
Starfsferill
Steinunn og Charles fóru til Kína strax eftir út-
skrift hennar, eða í lok febrúar 1902, og störfuðu
þar í um 40 ár sem læknar og trúboðar. Þau fóru
fyrst í kínverskunám til eyjarinnar Macao sem
var þá undir Portúgölum. Síðan fóru þau til Hong
Kong og Canton sem er ekki langt frá Hong Kong
þar sem Bretar réðu. Tveimur árum áður hafði þar
verið ein af mörgum Boxara-uppreisnum í Kína
og átti að útrýma öllum útlendingum í landinu. í
henni var talið að um 200 kristniboðafjölskyldur
hefðu verið drepnar, auk þúsunda Kínverja og var
ástandið því fremur ótryggt og öryggi lítið.
Áður en þau settust endanlega að í Canton áttu
þau nokkur afar örðug byrjunarár norðvestar í
landinu, í Ying Tak í fimm ár og í Wuchow í átta
ár og þar var Arthur sonur þeirra fæddur. Það tók
langan tíma fyrir þau að ávinna sér traust fólksins
þar með lækningum, líknarstarfi og trúboði. Eitt
sinn var til dæmis kveikt í kytrunum sem þau
höfðu komið sér upp og þar sem þau bjuggu og
störfuðu. Hvítar konur voru fáar í landinu og voru
þær kallaðar hvítu djöflarnir. í Ying Tak þar sem
var um 40 þúsund manna byggð var almenningur
fátækur og þar var mikið pestarbæli.
1909 fóru Steinunn og Charles í eins árs hvíld-
arleyfi og fengu fararleyfi til íslands og Banda-
ríkjanna. Þau fóru sjóleiðis í vestur frá Hong Kong
til Evrópu. í greinaflokki séra Ágústs Sigurðssonar
í tímaritinu Heima er best 2004, sem efni þessarar
greinar styðst að verulega leyti við, telur hann að
grísk frásögn um íslenskan prest á grísku eyjunum
frá 1909 gæti átti við síra Steinunni sem þá var á
leið til íslands.
Frá 1910 voru Steinunn og Charles samfellt í
skattlandinu Kwong Sai í Kína og borginni Canton
að frátöldu einu ári, 1936-7, er þau dvöldu vestan-
hafs vegna veikinda Charles. Á þessu svæði bjuggu
um sjö milljónir manna og þar voru um 50 trúboð-
ar. Þarna höfðu þau sæmilegan starfsfrið og stund-
uðu trúboð og lækningar þar til Japanir gerðu
innrás 1938 og lögðu undir sig austurströnd Kína
í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar. Þá jókst
772 Læknablaðið 2005/91