Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2005, Síða 59

Læknablaðið - 15.10.2005, Síða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR reynslu af umönnun fatlaðra og fleiri. Þetta reyn- dist heillaráð og síðan hafa menn slípað þetta kerfi til, enda ekki hægt að nota aðferð sem fundin var upp fyrir rúmri öld án þess að laga hana að nútíma læknisfræði. Þetta var að sjálfsögðu fráhvarf frá þeirri mis- ráðnu stefnu sem fylgismenn andgeðlækninga höfðu reynt að halda til streitu en hún fólst í því að taka geðsjúklinga út af stofnunum og láta þá lifa úti í samfélaginu án nokkurs stuðnings. í þessu nýja kerfi var þvert á móti reynt að búa til með- ferðarteymi þar sem allir þeir hópar sem koma nærri meðferð geðsjúkra eiga sína fulltrúa og veita sjúklingunum og fjölskyldunum stuðning. í fyrstu voru þeir sjúklingar sem komið var fyrir í fjölskyldum vandalausra valdir með tilliti til þess að þeir væru ekki mjög „erfiðir", að þeir væru ekki ofbeldishneigðir, ekki væri hætta á því að þeir reyndu að fyrirfara sér né heldur að þeir væru barnaníðingar. Með tímanum hefur þetta breyst og eftir því sem kerfið hefur þróast hafa menn hætt að velja þátttakendur út frá þessu sjónarmiði heldur reynt að meta það hverjir eru líklegir til þess að taka þessari meðferð vel.“ Árangursríkt og ódýrt Thomas bætir því við að meðferð í fjölskyldum vandalausra hafi þann ótvíræða kost að hún sé ódýrari en meðferð á sjúkrahúsum. „Að sjálfsögðu á kostnaðurinn ekki að ráða því hvaða meðferð er beitt en það er staðreynd sem mönnum er að verða ljós um allan heim að því eru takmörk sett hversu rniklu samfélagið getur varið til heilbrigðismála. Þess vegna er það jákvætt ef hægt að þróa aðferð sem verkar betur en sjúkra- hússinnlögn, bætir gæði meðferðarinnar og er í ofanálag ódýrari en sjúkrahússinnlögn. Það gerir okkur kleift að veita fleirum góða þjónustu. Þetta skilja bæði stjórnvöld og tryggingafélög. Árangurinn af þessari meðferð hefur verið það góður að hún hefur breiðst út um landið, meðal annars til héraða í austurhluta landsins þar sem atvinnuleysi er mikið og efnahagur bágur. Þar hefur hún haft mjög jákvæð áhrif á samfélagið og það samræmist reynslu Frakka af fjölskyldumeð- ferðinni. Við fyrstu sýn mætti ætla að þær fjöl- skyldur sem best eru fallnar til þess að taka að sér sjúklinga væru þær sem betur mega sín, þar sem fjárhagur er rúmur og aðstæður jákvæðar á allan hátt. Rannsóknir Frakka sýndu hins vegar að þessi meðferð gaf besta raun á svæðum sem glímdu við efnahagsörðugleika og atvinnuleysi. í Þýskalandi hefur reynslan sýnt að fjölskyldu- meðferð skilar mestum árangri þar sem fjölskyldan sem tekur að sér sjúkling þarf virkilega á pening- Pýski geðlœkniriim Thomas Miiller sem hélt erindi á norrœnu þingi um sögu lœknisfrœðinnar í sumar. unum að halda sem greiddir eru með honum. í stað þess að fjölskyldan stjórnisl af trúarlegum hug- myndum um að hún sé að gera góðverk eða því- líku gefur það besta raun að gera samning þar sem stendur skýrum stöfum að fjölskyldan sé að veita sjúklingnum þjónustu sem hún fær greitt fyrir. En það sem er spennandi við þessa meðferð er að fylgjast með því hvernig sjúklingarnir bregðast við henni. Þar sem best hefur tekist til hefur sjúk- lingurinn fengið ákveðið hlutverk í nýju fjölskyld- unni, jafnvel yfirtekið hlutverk einhvers sem hefur fallið frá eða horfið af heimilinu með öðrum hætti. Þar sem svo háttar til hefur batinn verið örastur. En að sjálfsögðu gerist það ekki alltaf og kerfið gerir ráð fyrir því að sjúklingurinn geti snúið aftur á sjúkrahúsið ef enginn árangur næst á reynslutím- anum. Meðferðin byggist á virku eftirliti og stuðn- ingi við fjölskylduna og sjúklinginn. Þetta hefur borið verulegan árangur í mörgum tilvikuin og gefið það góða raun að ég sé ekki fram á annað en að það haldi áfram að breiðast út,“ segir Thomas Muller geðlæknir frá Þýskalandi. í grein Jóns Þorsteinssonar urn heitar laugar á íslandi til forna, Læknablaðið 2005; 91: 617-21, víxluðust tvö númer í heimildaskrá, 21 og 32. Eru lesend- ur beðnir velvirðingar á þessu. Rétt er því 21. Bjarnason K. Saga Sauðárkróks. 1969-73. 32. Guðjónsson SV. Manneldi og heilsufar í fornöld. Reykjavík 1949. Læknablaðið 2005/91 775
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.