Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2005, Síða 60

Læknablaðið - 15.10.2005, Síða 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR OG LYFJAFYRIRTÆKI Yfirlýsing fastanefndar evrópskra lækna og Samtaka lyfjaiðnaðarins í Evrópu 2005 Samstarf læknastéttarinnar og lyfjaiðnaðarins ■imgaaigui 1. Fastanefnd evrópskra lækna (CPME) fyrir hönd læknastéttarinnar og Samtök lyfjaiðnaðarins í Evrópu (EFPIA) fyrir hönd lyfjaframleiðenda gera sér ljósa ábyrgð sína gagnvart sjúklingum og samfélagi og telja nauðsynlegt að búa til ramma um tengsl læknastéttarinnar og lyfjaiðnaðarins, sem getur verið leiðbeinandi jafnt innan Evrópu sem í hverju landi fyrir sig. 2. Samstarf læknastéttarinnar og lyfjaiðnaðarins er mikilvægt og nauðsynlegt á öllum stigum þróunar og notkunar lyfja til að tryggja öryggi sjúklinga og virkni meðferðar. 3. Það er afar mikilvægt að samstarf læknastéttar- innar og lyfjaiðnaðarins byggi á almennum grunn- reglum sem tryggi gott siðferði, réttindi sjúklinga og að virtar séu væntingar samfélagsins, en tryggi um leið sjálfstæði beggja aðila í störfum þeirra. 4. Til að sjálfstæði og trúverðugleiki beggja sé tryggður þarf algert gegnsæi. Því verður að gera opinber öll tengsl sem leiða til eða gætu talist leiða til hagsmunaárekstra. 5. Til þess bær yfirvöld hafa sett lagaramma sem tekur til samstarfs á sumum sviðum. Til viðbótar lagaákvæðum telja CPME og EFPIA nauðsynlegt að hvorir tveggja leggi meira upp úr því að fara eftir siðareglum sínum. Grunnreglurnar í þessari sameiginlegu yfirlýs- ingu eru nteð fyrirvara um ákvæði ESB og reglu- gerðir og leiðbeiningar einstakra ríkja. Til dæmis gæti þess verið krafist í reglugerð eins lands að fastráðnir læknar skuli, þegar það á við, upplýsa um og/eða sækja um leyfi frá atvinnuveitanda áður en þeir gera nokkurn samning við fyrirtæki eða þiggja styrk frá fyrirtæki. Læknastéttin og lyfjaiðnaðurinn hafa hvort um sig tekið upp sínar eigin siðareglur um starfsemi sína. Þessi sameiginlega yfirlýsing tilgreinir sam- eiginlegar reglur fyrir báða aðila um mikilvægustu þættina sem fara skal eftir í öllu samstarfi. 6. Yfirlýsingin tekur til eftirfarandi sviða: 1) Upplýsinga um vörur og kynningu viður- kenndra lyfja. 2) Funda sem iðnaðurinn skipuleggur eða styrkir. 3) Klínískra rannsókna. 4) Ráðgjafar og tengsla. Upplýsingar um lyf/vörur og kynning viður- kenndra lyfja 7. Upplýsingar sem lyfjaiðnaðurinn veitir læknurn eru nauðsynlegar fyrir góða stjórnun meðferðar. Tryggja verður klínískt sjálfstæði lækna er þeir taka klínískar ákvarðanir. Inntak upplýsinga og kynningarefnis verður að vera nákvæmt og sann- leikanum samkvæmt. Því þurfa báðir aðilar að virða eftirfarandi grunnreglur: 8. Iðnaðurinn skal gangast undir að: a) leggja til tæmandi, nýjustu upplýsingar um vörur sínar sem lýsa rétt kostum þeirra og ókostum á grunni fyrirliggjandi vísinda- gagna, b) tryggja að sölumenn og annað starfsfólk lyfja- iðnaðarins sem veitir upplýsingar sé nægi- lega hæft og þjálfað, c) veita lækni aðgang að vísindalegum gögnum sem hafa klínískt gildi fyrir vörur sínar, komi slík beiðni fram, d) fara eftir vísindalegum og klínískum greinar- gerðum um vörur þeirra eftir að lyfið fer á markað og upplýsa lækna tafarlaust um mik- ilvægar athugasemdir, e) auglýsa ekki lyf áður en markaðsleyfi er fengið fyrir þau, f) bjóða ekki óréttlætanlega risnu; gjafir/ávinn- ingur ættu að vera ódýr og skulu tengjast læknisstörfum. Læknar mega ekki: a) biðja um gjafir/ávinning frá lyfjaiðnaðinum, b) þiggja óréttlætanlega risnu; gjafir/ávinningur ættu að vera ódýr og skulu tengjast læknis- störfum, c) tilkynna um aukaverkanir lyfja. Fundir sem iðnaðurinn skipuleggur eða styrkir 9. Lyfjafyrirtæki geta staðið fyrir eða styrkt lækna- fundi. Slíkir atburðir verða að hafa skýrt fræðsluinni- 776 Læknablaðið 2005/91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.