Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / BULIMIA PRÓF
Almennt má segja að niðurstöður ROC grein-
ingar gefi til kynna að aðgreiningarhæfni BULIT-
R sé góð. Listinn greinir ágætlega á milli kvenna
með og án átröskunargreiningar.
Umræða
Megin markmið rannsóknarinnar var að kanna
próffræðilega eiginleika íslensku útgáfunnar af
BULIT-R spurningalistanum. í rannsókninni
var réttmæti BULIT-R metið hjá klínísku úrtaki
kvenna með og án átröskunargreiningar með því
að athuga hversu vel listinn greinir á milli þessara
tveggja hópa.
Þátttakendur í rannsókninni voru konur sem
höfðu leitað til göngudeildar geðsviðs LSH og
var þeim skipt í tvo hópa með tilliti til klínískrar
greiningar, það er átröskunargreiningar og ann-
arrar geðrænnar greiningar (ekki átröskunar-
greiningar). Ákjósanlegast hefði verið að hafa
„hreinan" lotugræðgihóp þar sem áreiðanleg
lotugræðgigreining hefði legið fyrir því BULIT-R
metur einkenni lotugræðgi fremur en einkenni
átraskana almennt. Því var ekki við komið í þess-
ari rannsókn. Þrátt fyrir það þótti réttlætanlegt að
kanna aðgreiningarhæfni BULIT-R með því að
bera saman átröskunarsjúklinga almennt og annan
klínískan hóp.
Meðalskor átröskunarhópsins á BULIT-R var
töluvert hærra en meðaltal samanburðarhópsins. í
samanburði við rannsóknir Thelen (2,5) var heild-
arskor íslenska átröskunarhópsins eilítið lægra en
heildarskor lotugræðgihópa þeirra. Það má líklega
rekja þennan mun meðal annars til samsetningar
hópanna en þátttakendur í átröskunarhópnum
í þessari rannsókn voru með blandaðar átrösk-
unargreiningar en hjá Thelen og félögum voru
þátttakendur eingöngu með staðfesta lotugræðgi-
greiningu.
Áreiðanleiki BULIT-R í rannsókninni var mjög
góður en hann var á bilinu 0,92 til 0,97. Réttmæti
BULIT-R var kannað með því að leggja EDDS
átröskunarlistann, BDI-II þunglyndiskvarðann
og OCI-R áráttu- og þráhyggjulistann fyrir þátt-
takendur í báðum hópunum. Reiknuð var fylgni
á milli listanna fjögurra og kannað hvort fylgni
mælikvarðanna fyrir einkenni átraskana sín í milli
væri hærri en fylgni BULIT-R við mælikvarða fyrir
þunglyndi og einkenni áráttu og þráhyggju innan
hvors hóps fyrir sig. í ljós kom í báðum hópunum
að átröskunarlistarnir tveir höfðu sterkari tengsl
sín á milli en fylgni BULIT-R var við þunglyndis-
kvarðann og við áráttu- og þráhyggjukvarðann.
Það má því segja að þessar niðurstöður gefi vís-
bendingu um samleitni- og aðgreiningarréttmæti
BULIT-R meðal klínísku hópanna tveggja.
Tafla IV. Dæmi um næmi og sértækni ólíkra skora á BULIT-R þegar flokkað er samkvæmt klínískri greiningu.
Skor Næmi Sértækni
77,5 0,781 0,647
79,0 0,781 0,676
82,0 0,750 0,676
85,0 0,719 0,706
87,0 0,688 0,706
88,5 0,688 0,735
Athugun á næmi og sértækni BULIT-R gaf til
kynna að aðgreiningarhæfni listans sé góð, það er
listinn greindi vel á milli þátttakenda með og án
átröskunar.
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna
að innri áreiðanleiki BULIT-R sé mjög góður og
að samleitni- og aðgreiningarréttmæti listans sé
gott. Listinn virðist hafa aðgreiningarhæfni meðal
kvenna sem leita á göngudeild geðsviðs því hann
greindi vel á milli átröskunarhóps og klínísks
samanburðarhóps. Það ber þó að hafa í huga að
BULIT-R er ekki greiningartæki fyrir átraskanir
heldur á að líta á það sem skimunartæki fyrir lotu-
græðgi. BULIT-R er hentug viðbót við klínískt
greiningarviðtal á göngudeildum og einnig má nota
listann til að meta árangur meðferðar. BULIT-
R mætti einnig nota í heilsugæslu og á öðrum
sjúkrastofnunum ef grunur leikur á lotugræðgi.
Við notkun á listanum er samt mikilvægt að hafa
í huga að sértækni og næmi mælitækis með tilliti
til tiltekinnar röskunar er háð tíðni (base rate)
hennar í því þýði sem tækið er notað í. Fyrir þann
sem notar tækið til dæmis í almennri heilsugæslu
er mikilvægt að hafa þetta í huga. Til bráðabirgða
mætti ef til vill við skimun styðjast við þau viðmið-
unargildi (cut-off) sem mælt er með við slíkar að-
stæður erlendis, það er skor á bilinu 98-104. Hafa
Mynd 1. ROC kúrfa
BULIT-R listansþegar
þátttakendur eru flokkaðir
samkvœmt klínískri
greiningu.
Læknablaðið 2005/91 927