Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 75
66 tíska Helgin 5.-7. desember 2014
Laugardagstilboð
– á völdum servéttum og kertum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Opið laugardaga kl. 10-16
Nýir o
g
fallegi
r haus
t- og
vetrar
litir í s
ervétt
um
og ker
tum
®
V ið Reykvíkingar elskum að klæða okkur fínt upp yfir hátíðarnar og við erum nú ekki í vandræðum með að hjálpa fólki við það hér í
versluninni. Við sérhæfum okkur í skyrtum þannig
að við erum með ótrúlega mikið úrval, allt frá hvers-
dagslegum skyrtum yfir í skyrtur sem henta við há-
tíðleg tilefni, eins og jól og áramót,“ segir Sigurður
Waage, hjá Skyrta Reykjavík.
„Ein af mínum uppáhaldsskyrtum þessa dagana,
og sú sem ég ætla sjálfur að klæðast um jólin, er
smóking skyrtan. Hún er dásamlega falleg með fell-
ingum að framan. Svo erum við með eina klassíska
„club-collar“ skyrtu, sem er í 1920 stíl með boga-
dregnu hálsmáli. Það snið hefur verið mjög vinsælt
þetta árið og verður örugglega áfram. Þetta eru allt
skyrtur sem henta bæði við jakkaföt, fínar buxur
eða bara gallabuxur. Það bara veltur á herranum
sem henni klæðist.“
„Við mælum alls ekki með neinum sérstökum lit
eða sniði hér hjá Reykjavík skyrta því við fögnum
fjölbreytileikanum og viljum að hver einstakling-
ur fái að njóta sín. Það væri hundleiðinlegt ef einn
litur væri í tísku og allir Reykvíkingar væru bara í
honum. Við viljum það auðvitað ekki.“
„Við förum bráðlega að hætta að taka við pönt-
unum fyrir sérsniðnar skyrtur fyrir jólin, en hér í
versluninni er auðvitað nóg úrval af skyrtum fyrir
alla,“ segir Sigurður en Skyrta Reykjavík sérhæfir
sig í að sérsníða skyrtur. En það fer líka hver að
verða síðastur til að versla í búinni við Skólavörðu-
stíg því í janúar missir verslunin húsnæðið. „Við
vorum svo ánægð með að finna þetta húsnæði því
það hentar okkur fullkomlega en það var verið að
kaupa húsið svo við þurfum að fara annað. Svo við
erum að leita að einhverju svipuðu og það lítur allt út
fyrir að við fáum að kaupa gömlu fallegu innrétting-
arnar og nýta þær í næstu búð, svo við erum ánægð
með það.“ -hh
Jólaskyrtan getur verið í
hvaða lit eða sniði sem er
Sigurður Waage elskar, líkt og aðrir Reykvíkingar, að dressa sig upp fyrir jólin. Hann vill þó alls ekki benda
á neina sérstaka liti eða snið fyrir jólaskyrtuna, það eigi bara að velta á þeim sem skyrtunni klæðist.
tíska sérsniðnar skyrtur
Sigurður Waage hjá Skyrta Reykjavík, Skólavörðustíg 21., segir verslunina missa húsnæðið í janúar. „Það lítur allt út fyrir að við
fáum að kaupa gömlu fallegu innréttingarnar og nýta þær í næstu búð, svo við erum ánægð með það.“
Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 10-16
Laugavegi 178 l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar
Verð 19.900 kr.
Einn litur
Stærð 36 - 41.
"Kryddaðu fataskápinn”
Leðurskór
Verð 19.900 kr.
(kýrskinn)
Einn litur
Stærð 36 - 41.
NÝ SENDING
AF KJÓLUM
Pantaðu á www.curvy.is
eða komdu við í Fákafen 9
Afgreiðslutímar
Mán-Fös frá kl. 11-18
Laug. frá kl. 11-16
STÆRÐIR 42-56
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Síðumúli 34 · 108 RVK · S. 551 4884 · www.stillfashion.is
20%
afsláttur
af yrhöfnum
Jólin nálgast