Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 15
Í takt við tÍmann HólmfrÍður SamúelSdóttir
Vel góðan bröns fram yfir fínan veitingastað
Hólmfríður Samúelsdóttir er þrítugur kennari í Hörðuvallaskóla. Hún semur lög hljómsveitarinnar SamSam
sem hún skipar ásamt systur sinni, Gretu Mjöll, og fleirum en fyrsta plata þeirra kom út á dögunum. Hólm-
fríður fer aldrei eyrnalokkalaus út úr húsi og elskar sushi.
Staðalbúnaður
Ég geng mikið í síðum peysum við
leggings eða gallabuxur. Íþrótta-
fötin eru líka minn staðalbúnaður
og ég þarf að eiga bæði góða
hlaupaskó og hlaupaföt. Ég
fer ekki eyrnalokkalaus
úr húsi og finnst gaman
að skreyta mig með fal-
legum hálsmenum. Ég
er líka handalaus ef úrið
vantar á vinstri hönd-
ina. Svo passa ég alltaf
að klæða mig vel, mér
finnst ferlega leiðin-
legt að vera kalt.
Hugbúnaður
Mér líður alltaf
langbest heima.
Mér finnst oft
betra að vinna
vinnuna mína
heima og
heima
hjá
mér verður músíkin mín til. Ég fer
nánast aldrei í líkamsræktarstöðvar
en hleyp úti og á tæki og tól til líkams-
ræktar heima. Þar sem tónlist er mín
ástríða eru til nokkur hljóðfæri á
heimilinu sem mér finnst gaman að
glamra á. Ég kveiki aldrei á sjónvarpi
en horfi stundum á þætti með kærast-
anum og finnst það mjög notalegt. Su-
its, Modern Family og Friends klikka
aldrei. Ég þyki lítill djammari en finnst
mjög gaman að hitta vini og borða og
blaðra. Þá er alltaf gaman að kíkja í
bíó eða með vinkonum á kaffihús.
Vélbúnaður
Ég á iPhone 4s og kann nokkurn veg-
inn á hann. Ég hef alltaf átt Appletölv-
ur og fíla mjög vel. Facebook, Snapc-
hat, Instagram eru mínir miðlar. Mér
finnst mjög gaman að fá Snapchat frá
öðrum en ég gleymi yfirleitt að senda
sjálf. Ég er ennþá í því að njóta mó-
mentsins og er ekki alltaf með símann
á lofti. Ég nota útvarpsappið í síman-
um mikið og kaupi ennþá geisladiska,
ég er ekkert farin að nota Spotify.
Aukabúnaður
Mér finnst gaman að bjóða í mat eða
borða í heimahúsi með vinum og fjöl-
skyldu. Samt er sushi mitt uppáhald
og mér finnst æði að borða á góðum
sushistað. Við skötuhjú veljum bröns
á Vox fram yfir fínan veitingastað
að kvöldi til og erum miklir bröns-
unnendur. Fólkið í kringum mig er
meiriháttar kokkar – mamma, tengda-
mamma, systir mín og kærasti eru
ótrúlega fær í eldhúsinu og ég er alsæl
með það. Sjálf get ég eldað en það er
ekki áhugamál. Uppáhaldið er að láta
fólkið mitt stjana við bragðlaukana.
Tónlistin er mitt stærsta áhugamál
en hreyfing og góðir vinir, fótbolti
og ferðalög eru líka í uppáhaldi. Mér
finnst samt betra að hafa ferðalögin í
styttra lagi því mér finnst svo fínt að
vera heima og í kringum fólkið mitt.
Ég kýs að búa nálægt náttúrunni og
þrífst á því að komast út.
Ljósmynd/Hari
innra
Rökkurró
Hugljúft og
krefjandi
Lagasmíðarnar eru hugljúfar
og krefjandi í senn. Mjög vel
hefur tekst til og alltaf þakk-
látt að upplifa slíka tónlist.
Söngkona sveitarinnar,
Hildur Kristín Stefánsdóttir,
er í aðalhlutverki plötunnar
og hefur hún rödd sem sker
sig úr annars góðri flóru
söngkvenna á Íslandi. Ekki
er hægt að festa fingur beint
á uppruna þeirrar tónlistar
sem Rökkurró sendir frá
sér. Er það vel þó einstaka
sinnum finni maður fyrir
Kate Bush áhrifum og smá
Goldfrapp hér og þar, en
það er skemmtilegt. Af
einhverri ástæðu tengi ég
betur við íslensku textana á
plötunni, en kannski er það
sökum þess að þeir eru bara
tveir og skera sig svolítið
úr annars mjög heilsteyptri
plötu. Rökkurró er mögulega
næst í röð íslenskra sveita til
þess að fá breiðari markhóp,
eins og gerist oft hjá þeim
sveitum sem halda út og
gefast ekki upp. Innra ætti
allavega að opna eyrun hjá
mörgum fyrir þessi jól.
Bestu lögin eru Flugdrekar,
The Backbone, Blue Skies og
Weightless.
Í núinu
Mannakorn
Söknuður
Ég elska Mannakorn,
Magga Eiríks og Pálma
Gunnars. Hef gert það
síðan ég var smástrákur.
Nýjasta plata þessarar
sígildu sveitar nefnist Í
núinu. Mér finnst ýmsu
ábótavant á þessari
plötu, eiginlega of mörgu
hreinlega. Það er ekkert
lag sem fær mann til þess
að staldra við og leggja
við hlustir, heldur rennur
platan í gegn nánast án
þess að maður taki eftir
því. Textar Magga njóta sín
best þegar hann bregður
sér í hlutverk vonlauss
rómantíkers eins og í
laginu Eftir að ég hitti þig,
þá kemur fram einhver
tvíræðni sem enginn
kann betur en Maggi. Ekki
skal taka það af þeim að
allur hljóðfæraleikur er
til mikillar fyrirmyndar
og Pálmi er alltaf upp á
10 í söngvarahlutverkinu.
Í heildina sakna ég betri
laga. Ískalt mat.
Bestu lög eru Eftir að ég
hitti þig, Of seint að iðrast.
Bitter, resentful
Sindri Eldon
Hressandi mjög
Sindri Eldon sendir nú frá
sér sína fyrstu sólóplötu.
Platan kom mér svo á óvart
að ég er enn að hlæja að
fordómunum í sjálfum mér
áður en ég smellti henni
undir geislann. Platan er full
af hressilegu rokki sem oft
heyrir undir það að kallast
háskóla popprokk. Gítar,
tromma, bassi og söngvari
sem er að koma skilaboðum
á framfæri. Stungið í sam-
band og talið í. Er til eitt-
hvað betra form? Sindri er
ekki besti söngvari á Íslandi,
og er langt frá því. En hann
er sannfærandi og beittur,
sem er mikilvægt í góðu
rokki. Eiginlega mikilvægara
en „réttur“ söngstíll. Tónlist
Sindra er í skúffu með
sveitum eins og Ash, Weezer
og Pixies þó það sé aldrei
gaman að flokka sveitir í
skúffur, nema þá til þess að
gefa lesandanum einhverja
mynd af þessari plötu. Ég
fer í óhemju stuð við það að
hlusta á þessa plötu og hún
snertir alla 90́ s strengina
í mér með látum. Þetta er
ekkert rugl, bara rokk.
Bestu lögin eru Bitter
Resentful, Doer, 18 og Song
of frustration in the face of
resolute fidelity.
Plötuhorn HanneSar
Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka.
Einnig:
• Frjálst framlag á framlag.is
• Gjafabréf á gjofsemgefur.is
• Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.)
• Söfnunarreikningur:
0334–26–50886, kt. 450670-0499
Þinn stuðningur gerir kraftaverk
Skortur á drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu veldur banvænum sjúkdómum
en með aðgangi að hreinu vatni hefur allt líf möguleika á að vaxa og dafna.
Hjálparstarf kirkjunnar tryggir fólki aðgang að hreinu vatni í Úganda og Eþíópíu
– og þitt framlag skiptir sköpum.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
43
21
104 dægurmál Helgin 5.-7. desember 2014