Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 8
Kringlan | 588 2300
Vi
nn
us
to
fa
n.
is
/
/
12
14
XL bolli
2.295 kr.
Sinkbox
3.495 kr.
Skál á fæti
5.495 kr.
Fílabaukur
2.795 kr.
Kökudiskur
5.495 kr.
Bollar, baukar og box
DORMA Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
Full verslun af nýjum og spennandi vörum á jólatilboði!
BREYTT OG STÓRGLÆSILEG
DORMA
NATURES REST – heilsurúm
JÓLATILBOÐ
69.900
120X200 CM
Stærð: 120x200 cm
Dýna, botn og lappir. Fullt verð 79.900
ÞÚ SPARAR 10.000 kr.
NATURES COMFORT – heilsurúm
JÓLATILBOÐ
111.120
140X200 CM
Stærð: 140x200 cm
Dýna, botn og lappir. Fullt verð 138.900
ÞÚ SPARAR 27.780 kr.
NATURES LUXURY – heilsurúm
JÓLATILBOÐ
135.920
160X200 CM
Stærð: 160x200 cm
Dýna, botn og lappir. Fullt verð 169.900
ÞÚ SPARAR 33.980 kr.
NATURES HEILSURÚM Á JÓLATILBOÐI
Ó löf Nordal, fyrrverandi varafor-maður Sjálfstæðisflokksins, tók við embætti innanríkisráðherra
á ríkisráðsfundi í gær. Samhliða skipun
Ólafar færast dómsmálin í innanríkis-
ráðuneytið að nýju en Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur
farið með þau að undanförnu. Ólöf
tekur við embættinu af Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur sem sagði af sér vegna
lekamálsins svokallaða, þar sem að-
stoðarmaður hennar varð uppvís að leka
á gögnum úr ráðuneytinu. Hanna Birna
tilkynnti við afsögn sína að hún tæki sér
frí fram að áramótum en héldi áfram á
þingi. Hún er varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Óhætt er að segja að ákvörðun Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, hafi komið á óvart, því gengið
hafði verið út frá því sem vísu að arftaki
Hönnu Birnu kæmi úr þingflokki sjálf-
stæðismanna. Einar K. Guðfinnsson,
forseti alþingis og fyrrum ráðherra,
þótti líklegastur en hann afþakkaði
embættið eftir tilboð formannsins,
sáttur í starfi þingforseta. Aðrir sem til
greina komu eða sóttust eftir embætt-
inu voru Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
formaður þingflokksins, Pétur Blöndal,
Birgir Ármannsson, Brynjar Níelsson
og Unnur Brá Konráðsdóttir.
Bjarni Benediktsson sagðist í gær
gríðarlega ánægður með þessa niður-
stöðu, ríkisstjórnin fengi aukinn styrk
við komu Ólafar, hún hefði setið á þingi
fyrir flokkinn fram á síðasta ár, hefði
reynslu úr ráðuneytinu og væri lög-
fræðimenntuð. Spurður að því hvers
vegna hann hefði leitað út fyrir þing-
flokkinn, hvort hann treysti ekki þing-
mönnum sjálfstæðismanna, sagði Bjarni
að ákvörðunin hefði verið vandasöm.
Fyrst og fremst hefði hann viljað fá ein-
stakling sem nyti óskoraðs trausts sjálf-
stæðismanna. Margir af þingmönnun-
um hefðu komið til greina en að teknu
tilliti til allra sjónarmiða væri hann
ánægður með niðurstöðuna og hefði
fengið svigrúm hjá þingflokknum til að
fylgja henni eftir.
Ólöf Nordal er 48 ára gömul. Hún
sagðist í gær þakklát fyrir það traust
sem sér væri sýnt. Hún var varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins 2010–2013 og
sat á alþingi fyrir Norðausturkjördæmi
2007–2009 og Reykjavíkurkjördæmi
suður 2009–2013. Eiginmaður hennar
er Tómas Már Sigurðsson og eiga þau
fjögur börn. Ólöf hætti stjórnmálastarfi
í fyrra og flutti með eiginmanni sínum
til Genfar. Hann fékk síðan nýtt starf í
New York og til stóð að þau hjón flyttu
þangað. Þá „tóku æðri máttarvöld í
taumana“ eins og Ólöf orðaði það sjálf
á vefsíðu sinni á liðnu sumri, en hún
greindist með illkynja æxli. Hún fór í
kjölfar þess í skurðaðgerð, síðan lyfja-
meðferð og hefur náð heilsu að nýju.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
StjÓrnmál Ólöf nordal arftaki Hönnu Birnu í ríkiSStjÓrn
Óvænt skipun Ólafar
í ráðherraembætti
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, afþakkaði innanríkisráðherrastólinn. Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, leitaði því út fyrir þingflokkinn og valdi Ólöfu Nordal, fyrrverandi
varaformann flokksins, í ráðherraembættið.
Ólöf Nordal, fyrrum alþingismaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tók við embætti innanríkisráðherra á ríkisráðsfundi
í gær. Ljósmynd/Hari
Óhætt er
að segja að
ákvörðun
Bjarna Bene-
diktssonar,
formanns
Sjálfstæðis-
flokksins,
hafi komið
á óvart, því
gengið hafði
verið út frá
því sem vísu
að arftaki
Hönnu Birnu
kæmi úr þing-
flokki sjálf-
stæðismanna
8 fréttir Helgin 5.-7. desember 2014