Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 103
94 bækur
RitdómuR LitLu dauðaRniR
Yrsa náði toppsætinu
Ný spennusaga Yrsu Sigurðardóttur, DNA,
tyllti sér á topp metsölulista Eymundsson í
vikunni. Þar með sló hún við Kamp Knox eftir
Arnald Indriðason sem setið hafði í toppsætinu
frá því hún kom út 1. nóvember.
Vísindabók Villa 2 er komin í þriðja sæti listans
og bók Helgu Guðrúnar Johnson, Saga þeirra,
saga mín, stekkur úr níunda sæti upp í það
fimmta. Heklfélagið kemur ný inn í áttunda
sætið og Skálmöld Einars Kárasonar er í
tíunda sæti.
Mest selda kiljan er Aþena, Ohio eftir Karl
Ágúst Úlfsson.
Listinn er byggður á sölu í verslunum Pennans
Eymundsson um land allt dagana 26. nóvem-
ber til 2. desember.
BóksöLuListinn
RitdómuR Enginn dans við ufsakLEtt – Ástin Ein taugahRúga
Í ljóðabókinni Enginn dans við Ufsa-klett segir frá ástarsambandi sem fór út um þúfur. Ljóðmælandinn stendur
utan við atburðina og gaumgæfir þá í
þremur köflum, tilhugalífið, sambúðina
og skilnaðinn, og undrast öll viðvör-
unarmerkin (hann er ofbeldismaður og
þetta á aldrei eftir að ganga, skrifað með
blikkandi jólaseríu) sem voru markvisst
hunsuð, því konuna langaði svo skelfing
mikið að eignast kærasta.
Það er sérkennilega tær sársauki í text-
anum, en með fjarlægðinni verða sumir
atburðirnir sem lýst er kómískir. Enginn
dans við Ufsaklett er því bráðfyndin á
köflum, þessi sérstaka ísmeygilega kímni
sem Elísabet Jökulsdóttir hefur gert að
vörumerki sínu, er áberandi. Að segja
frá átakanlegum hlutum svo blátt áfram
og eðlilega að þeir verða eiginlega drep-
fyndnir. Sýlindermaðurinn kjarnar þetta
ágætlega:
Kvöldið áður en hann flytur inn
trúir hann mér fyrir því
að konur hafi oft skipt um sýlinder
til að varna honum inngöngu
og augu hans fyllast af tárum
og ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða
gráta
hann hafi dottið í það og þær haldið
að hann ætlaði að berja þær
og skipt um sýlinder með köldu blóði
hann komið að lokuðum dyrum
og tekur af mér loforð
að skipta aldrei um sýlinder, aldrei
ef allt hefði verið með felldu
hefði ég átt að rjúka heim og skipta um
sýlinder
en ég ætlaði að fá mína sambúð
hvað sem það kostaði
þótt ég yrði læst inni eða úti
bara einhvers staðar. (41)
Ljóðmælandi áttar sig á blindu sinni,
sýlinderinn er svo augljóst tákn um það
að maðurinn sé bad news (og þar að
auki hafa konur oft skipt um sýlinder,
ekki bara einu sinni!). Dyramyndin er
líka endurtekin í bókinni, konan hleypir
manninum inn um sínar dyr (og lofar að
skipta ekki um sýlinder) en lokast sjálf
inni. „Kannski vissi ég ekki hvar dyrnar
voru“ segir hún strax á fyrsta degi (13).
Dyr og lyklar koma oft við sögu, enda
býður ástfangna konan manninum að búa
hjá sér fljótlega eftir að hún opnar hjarta
sitt fyrir honum og megnar ekki að biðja
hann að skila lyklinum. Hún leitar ítrekað
að dyrum fyrir sjálfa sig, útgönguleiðinni,
en hana er erfitt að finna. Hamingjan er
stundum nálæg, villt og óhamin, en geð-
veikin líka alltaf skammt undan, með
algera örvæntingu og niðurbrot í far-
teskinu.
Teikningarnar eru gerðar af höfundi
sjálfum, naívar og sterkar. Þær ríma
einkar vel við ljóðin, en teprur munu vís-
ast hrökkva í kút, þar sem píkur eru þar í
öndvegi. Tenntar og gróteskar píkur sem
gleypa, bljúgar og sætar píkur sem gráta.
Ástin/sársaukinn eiga upptök sín og
endalok í píkunni og viðkvæmni hennar
og styrkur eru í brennidepli.
Þetta nýjasta verk Elísabetar Jökul-
sdóttur hefur X-faktorinn í risaskömmt-
um. Þetta „eitthvað“ sem gerir það að
verkum að sum bókmenntaverk heilla
frekar en önnur. Textinn er óstýrilátur og
ljóðin ófullkomin, eins og ástin sjálf, eða
kannski fullkomin einmitt vegna þess að
þau eru eins og þau eru. Enginn dans við
Ufsaklett er társtokkin og brimsölt bók,
en líka ofurlétt og hressandi. Lesið hana
og þið munuð heillast láta!
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Sjúk af ást og öðrum fjára
t ilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
voru kynntar í vikunni. Verð-
launin verða afhent á Bessa-
stöðum í byrjun næsta árs og
er þetta í 26. sinn sem þau
eru veitt. Þeir þrír höfundar
sem standa uppi sem sigur-
vegarar fá að launum eina
milljón króna.
Í flokki fagurbókmennta
eru tilnefndar bækurnar
Þrír snéru aftur eftir
Guðberg Bergsson,
Koparakur eftir Gyrði
Elíasson, Kok eftir
Kristínu Eiríksdóttur,
Öræfi eftir Ófeig Sig-
urðsson og Velúr eftir Þórdísi
Gísladóttur.
Í flokki fræðibóka og rita
almenns efnis eru tilnefndar
Hljóðin í nóttinni
eftir Björgu Guðrúnu Gísladótt-
ur, Sveitin í sálinni eftir Eggert
Þór Bernharðsson, Gunnlaugur
Halldórsson – Arkitekt sem
Pétur H. Ármannsson ritstýrir,
Lífríki Íslands eftir Snorra Bald-
ursson og Náttúra ljóðsins –
Umhverfi íslenskra skálda eftir
Svein Yngva Egilsson.
Í flokki barna- og ungmenna-
bóka er Ármann Jakobsson
tilnefndur fyrir Síðasta
galdrameistarann, Bryndís
Björgvinsdóttir fyrir Hafn-
firðingabrandarann, Eva
Þengilsdóttir fyrir Nálu
– riddarasögu, Þórarinn
Eldjárn og Sigrún Eldjárn
fyrir Fuglaþrugl og naflakrafl og
Þórarinn Leifsson fyrir Mann-
inn sem hataði börn.
Þá eru fimm tilnefnd til Ís-
lensku þýðingarverðlaunanna.
Þau eru Gyrðir Elíasson fyrir
Listina að vera einn eftir Shunt-
aro Tanikawa, Herdís Hreiðars-
dóttir fyrir Út í vitann eftir
Virginiu Woolf, Hermann Stef-
ánsson fyrir Uppfinningu Morles
eftir Adolfo Bioy Casares, Jón
St. Kristjánsson fyrir Náðar-
stund eftir Hönnuh Kent og Silja
Aðalsteinsdóttir fyrir Lífið að
leysa eftir Alice Munro.
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna kynntar
Stefán Máni hefur um árabil verið einn vinsælasti
spennusagnahöfundur landsins, þekktastur fyrir bók
sína Svartur á leik, sem einnig hefur verið kvikmynd-
uð. Litlu dauðarnir hefur yfirbragð spennusögu, en
færist að öðru leyti undan nákvæmari flokkunum.
Kristófer Sveinbjörnsson er viðskiptafræðingur
sem vinnur í banka en er sagt upp í efnahagshruninu.
Fyrir 2007 hefur hann stundað nám í bókmennta-
fræði og baslað við að klára B.A.-ritgerð um skáld-
skap Gyrðis Elíassonar. Hann er kvæntur Margréti
Elsu Benediktz, sem er af ríkum ættum, en faðir
hennar er hæstaréttarlögmaðurinn Mattías B. Bene-
diktz, sem ekki er aðeins „ráðríkur, tilætlunarsamur
og andlega kæfandi heldur einnig feðraveldið holdi
klætt“(30).
Í sögunni er flakkað fram og aftur í tíma. Eitthvað
slæmt gerðist í febrúar 2007 sem verður til þess að
lífið í lok árs 2008 er söguhetjunni Kristófer ekki sér-
lega auðvelt. Hann hefur komið sér í vandræði, fest
sjálfan sig í eðju svika og spillingar og þegar hann
missir vinnuna í bankanum, þá hefst baráttan við að
bjarga sjálfum sér og fjölskyldunni. Lokahluti bókar-
innar er síðan ein allsherjar upplausn. Sagan breytir
um svip, kynjaverur sýna sig og martraðakenndar
myndir verða áberandi.
Litlu dauðarnir er saga úr hruninu, ein af mörgum,
en hún er e.t.v. frábrugðin öðrum slíkum að því leyti
að hrunið er í mörgum lögum. Hrun fjármálakerfis-
ins, hrun ákveðinna „góðra“ gilda í samfélaginu og
persónulegt hrun einstaklingsins Kristófers Svein-
björnssonar, sem gengur fyrir kvíðastillandi lyfjum
og er í sífellu ásóttur af misskelfilegum fortíðar-
draugum. Hann er einstaklingur sem er að missa
tökin í öllum skilningi.
Að sumu leyti minnir Litlu dauðarnir á fyrstu bæk-
ur Stefáns Mána. Allt hverfist um aðalsöguhetjuna,
sem oftar en ekki er langt frá því að vera aðlaðandi,
en henni er fylgt fast eftir og allar hennar athafnir
tíundaðar og gaumgæfðar. Kristófer í Litlu dauð-
unum er fokkleiðinlegur síkvartandi smáborgari sem
fór í taugarnar á þeim lesanda sem hér skrifar frá
fyrstu blaðsíðu til þeirrar síðustu. Í sjálfu sér er það
mjög áhugaverð upplifun að fylgja eftir aðalpersónu
sem maður hefur ekki nokkra einustu samúð með
á neinum tímapunkti og eiginlega afrek út af fyrir
sig að maður nái að lesa bókina til enda. Það afrek
vinnur lesandinn þó nokkuð auðveldlega, bara vegna
þess að Stefán Máni kann að gróðursetja í honum
bæði spennu og hrylling. -þhs
Karlmaður að hruni kominn
Enginn dans við
ufsaklett – Ástin
ein taugahrúga
Elísabet Kristín Jökulsdóttir
Viti menn 2014, 88 s.
Litlu dauðarnir
Stefán Máni
Sögur útgáfa, 308 s.
Helgin 5.-7. desember 2014
Bryndís
Björgvins-
dóttir.
Ófeigur Sigurðsson.
Bókaútgáfan Hólar / Hagasel 14 / 109 Reykjavík / 587 26 19 / holar@holabok.is
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir og sagna-
meistari, fer hér á kostum
og enginn verður svikinn
af æviminningum hans
sem eru sneisafullar af
fróðleik og skemmtilegum
sögum.
Sagnameistari segir frá!