Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 45

Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 45
Fáðu þetta heyrnartæki lánað í 7 daga - án skuldbindinga Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu og fáðu Alta til prufu í vikutíma Sími 568 6880 Prófaðu ALTA frá Oticon Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880 | www.heyrnartækni.is | Að heyra vel er okkur öllum mikilvægt og ekki síst yfir hátíðirnar þegar fjölskylda, vinir og ættingjar hittast til að eiga góða stund saman. ALTA heyrnartækin gera þér kleift að heyra skýrt og áreynslulaust í öllum aðstæðum. ALTA eru fullkomnustu heyrnartækin frá Oticon, búin þráðlausri tækni og algjörlega sjálfvirk. sjúklingar einfaldlega deyi í flutningi milli sjúkrahúsa vegna tækjabilunar á öðrum hvorum staðnum,“ segir Þorgerður. „Hjartastuðtæki sem er notað til að end- urlífga fólk eru örugglega 15 ára gömul. Myndir þú vilja eiga 15 ára gamlan síma eða tölvu? En er allt í lagi að stuða afa þinn með 15 ára gömlu stuðtæki?“ spyr hún. Límbandið mikilvægast „Eitt mikilvægasta tæki svæfingalækna á Landspítalanum er límbandið. Við þurfum sífellt að nota það til að tryggja að tækin virki og treysta ýmsar tengingar við svæf- ingarvélina, millistykki, filtera og fleira, líma það saman með límbandi svo það detti ekki í sundur í miðri svæfingu. Það er allt margþvegið hjá okkur og endurnýtt þó að það eigi að heita einnota,“ segir Þorgerður. „Auðvitað viljum við gera allt fyrir fólk. Ég legg örugglega meira á mig hérna heima því þetta er fólkið mitt og þjóðin mín. Það er miklu auðveldara að tala um tilfinningar og sorg og dauða á sínu eigin tungumáli, þó að ég hafi búið í Svíþjóð og 16 ár og tali reiprennandi sænsku,“ segir hún. Erfitt fyrir lækna að vera í verkfalli Þorgerður segir að læknum þyki mjög erf- itt að vera í verkfalli – og enn erfiðara þyki henni að vera í verkfalli þegar stjórnvöld hlusti ekki. „Ef Bjarni Benediktsson og Sig- mundur Davíð fara ekki að gera eitthvað í þessum málum getum við lokað Landspítal- anum. Þetta eru ekki óraunhæfar launakröf- ur lækna, þetta snýst um hvað er nauðsyn- legt að gera til að snúa þessari óheillaþróun í nýliðun læknastéttarinnar við,“ segir hún. Hún segir að læknar hafi setið á hakanum í launaþróun síðastliðin tíu til fimmtán ár. „Við getum ekki snúið við núna, það væri bara ábyrgðarleysi. Maður snýr ekki við í miðri á. Þetta er samfélagslegt verkefni sem þarf að klára,“ segir Þorgerður. Hún spyr: „Er markmiðið hjá stjórnvöldum læknalaust Ísland 2015? Ef svo er eru þau ekkert sér- staklega langt frá því að ná því.“ „Ráðamenn þurfa að átta sig á því að þetta er heilbrigðiskerfi Íslendinga sem er í húfi. Þeir eiga börn, maka og foreldra sem geta lent í slysi eða veikst alvarlega – eða þeir sjálfir. En það er nú oft þannig að þegar einhver þekktur einstaklingur leggst inn, þá fær hann extra góða þjónustu. Hann fer fram fyrir röðina, hann þarf ekki að bíða eft- ir aðgerð. Hann er að öllum líkindum ekki látinn liggja fram á gangi, inn á klósetti eða inni á skoli eins og aðrir sjúklingar,“ bendir hún á. „Skilaboðin eru skýr: Ef ekki tekst að semja við okkur lækna, mun skapast svo mikið neyðarástand eftir áramót að öryggi sjúklinga verður ekki lengur tryggt. Það er alveg ljóst,“ segir Þorgerður. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Er mark- miðið hjá stjórnvöldum læknalaust Ísland 2015? Ef svo er eru þau ekkert sérstaklega langt frá því að ná því. Um daginn þegar ég kom inn á spítala var einn maður á heilaskurð- vakt. Svo eru menn að væla yfir Vaðlaheiðargöngum. Steingrímur J. og Kristján Möller fá ekki jólakort frá mér. Mér finnst þetta skrýtin for- gangsröðum. Ég hef ekki hitt lækni sem er sammála því að byggja nýjan spítala. Það er hægt að gera margt sniðugra fyrir 100 milljarða plús. Árna heitnum fannst sveltistefnan glórulaus Systkinin Þorgerður og Árni eru alin upp í Vesturbænum af hjónunum Sigurði Árnasyni krabbameinslækni og Helgu Erlendsdóttur, sem er klínískur prófessor í lífefnafræði. Systkinin eru alls fjögur. Árni var í viðtali í Frétta- tímanum í ágústlok 2012, rétt eftir að Þorgerður flytur heim. Hann lést í nóvember sama ár. Árni skilur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Árni hafði þetta að segja um ástandið í heilbrigðiskerfinu árið 2012: Honum finnst sveltistefnan í garð Land- spítalans vera glórulaus. „Oft er krón- unni kastað fyrir aurinn. Það er ekki boðlegt að tæki spítalans séu löguð með límbandi. Ég veit ekki hversu oft Björn Zoëga hefur sagt að heilbrigðis- kerfið sé komið að þolmörkum, en fyrir mitt leyti er kerfið löngu sprungið. Stjórnendur Landspítalans kalla úlfur, úlfur. Þeir verða að fara að læra að standa í fæturna gagnvart þessari vit- lausu forgangsröðun stjórnvalda,“ segir hann. „Því á sama tíma og einstaklingar á leikskólanum við Austurvöll reyna að reisa sér minnisvarða hrynja stoðir heil- brigðiskerfisins. Fólk hefur val um hvort það fer til Húsavíkur eða ekki, en fólk hefur ekki val um hvort það veikist.“ 36 viðtal Helgin 5.-7. desember 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.