Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 4
Silfur 925, ykkar teikning.
Verð frá 19.800 kr.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Versnandi þegar líður á daginn, hVessir,
skafrenningur og snjókoma.
höfuðborgarsVæðið: Hægviðri, en tekur
að blása upp úr kl. 15.
sV-strekkingur og éljagangur Vestantil,
en rofar til eystra.
höfuðborgarsVæðið: Él meira og minna
og Hiti undir frostmarki.
snýst í fremur hæga n-átt og Víða
éljagangur, einkum framan af degi
höfuðborgarsVæðið: n og na-átt og
rofar til þegar líður á daginn.
Vetrarlegt næstu dagana
Nú er nýr snjór yfir um nánast allt land.
Seinna í dag föstudag og í nótt fara skil
hratt yfir landið. Seinni partinn verður
víða skafrenningur og ofankoma um landið
sunnan- og vestanvert. Það nær rétt svo að
hlána í byggð í skamma stund, en hríðarkóf
gæti hæglega torveldað ferðir á
milli landshluta. Á laugardag
snýst til SV-áttar með éljum
vestantil og kólnar ákveðið
fram á sunnnudag þegar
áttin verður N-læg og él sýna
sig þá einnig norðan- og
norðaustantil. Birtir þá upp
syðra.
-4
-3 -5
-6
-7
-1
-3 -5 -3
-2
-5
-3 -5
-5
-7
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
vikan sem var
trivial Pursuit heyrir sögunni til
Spurningaspilið Trivial Pursuit
kemur að öllum líkindum ekki
aftur út á Íslandi. Þetta kemur
fram á vef Kjarnans. Þar kemur
fram að það sé einfaldlega of
dýrt að gefa spilið út hér á landi
sökum fólksfæðar. Ný útgáfa
spilsins myndi ekki borga sig.
Trivial Pursuit hefur verið ófáanlegt hér á landi undanfarin ár. Kjarninn segir frá
því að bandaríski leikjarisinn Hasbro hafi eignast öll útgáfuréttindi að spilinu árið
2008. Síðan hefur það ekki komið út hér á landi.
Seltjarnarnesbær lækkar
fasteignaskatta og hækkar
tómstundastyrki
Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar
gerir ráð fyrir lækkun fasteignaskatta
úr 0,21% í 0,20%. Þá mun tómstunda-
styrkur hækka um 65% á milli ára, úr
30 þúsund krónum í 50 þúsund krónur.
Í tilkynningu kemur fram að styrkirnir
séu þeir hæstu á landinu.
365 semur við HBO
365 miðlar hafa gert fimm ára samning
við bandaríska kapalsjónvarpsfyrirtæk-
ið HBO. Þetta kemur fram í frétt Vísis
um málið en þar segir að samningurinn
muni tryggja Stöð 2 viðamikil réttindi
á efni HBO fyrir íslenskan sjónvarps-
markað. Efni frá HBO verður bæði sýnt
í dagskrá stöðvarinnar auk þess sem
að það verður aðgengilegt í gegnum
sérrásina Stöð 2 Maraþon.
818 milljónir
Langisjór ehf., sem á og rekur nokkur
fyrirtæki í matvælavinnslu, hagnaðist
um 818 milljónir króna á síðasta ári
samkvæmt ársreikningi. Hagnaðurinn
jókst um 115% frá á árinu 2012 en
þá nam hagnaður fyrirtækisins
380 milljónum króna. Samkvæmt
efnahagsreikningi námu eignir
félagsins 6,2 milljörðum króna um
áramótin samanborið við 5,5 milljarða
árið á undan. Skuldir námu tæpum 5
milljörðum en voru 4,7 milljarðar árið
2012. Eigið fé félagsins í lok síðasta
árs nam tæpum 1,3 milljörðum en var
rúmlega 800 milljónir árið á undan.
Eiginfjárhlutfall var 20,2%.
800 þúsund ár af tónlist
Virkir notendur Spotify eru orðnir um
50 milljónir og þeir hafa streymt um
sjö milljörðum klukkustunda af tónlist
það sem af er ári. Það þýðir að þeir
hlustuðu samtals á um 800 þúsund ár
af tónlist á árinu, sem er reyndar enn
ekki lokið.
Barbie í frost
Barbie er ekki lengur vinsælasta
dúkkan í leikfangabúðum vestanhafs,
að því er ný könnun America’s National
Retail Federation, leiðir í ljós. Dúkkur
byggðar á Disney-myndinni Frozen
eru nú orðnar vinsælli. Þetta ku vera
í fyrsta sinn í meira en áratug sem
Barbie vermir ekki fyrsta sætið, í
aðdraganda jólanna. Barbie-dúkkan
vermir nú annað sætið.
Á árunum 2000 til 2012 fór 87% fjár-magns Kvikmyndamiðstöðvar Ís-lands til karla og konur leikstýrðu
aðeins 15% íslenskra kvikmynda á árunum
2000 til 2009. Þetta kemur fram í rannsókn
Ívars Björnssonar á konum í íslenskri kvik-
myndagerð.
Dögg Mósesdóttir, formaður Wift á Ís-
landi, Félags kvenna í kvikmyndagerð, seg-
ir hluta vandans liggja í því að færri konur
en karlar sæki um styrki og að róttækar
breytingar þurfi til að breyta því. Stelpur
þurfi hvata til að fara í kvikmyndagerð og
því sé mikilvægt að merkja hluta styrkj-
anna konum, líkt og gert er í Svíþjóð.
Vantar jafnréttisáætlun
„Miðað við þær tölur sem hafa komið
fram þá lítur út fyrir að konur séu líklegri
til að fá styrk ef þær sækja um en það er
samt ekki yfirlýst stefna hjá Kvikmynda-
miðstöð og þar af leiðandi er engin pressa
á framleiðendur að veðja á konur. Það eru
fleiri karlframleiðendur á Íslandi en kven-
framleiðendur og þeir eru oft að vinna
með æskuvinum eða félögum sínum. Mín
kenning er sú að Kvikmyndamiðstöð geti
gert helling til að breyta þessu ójafnvægi
með því að vera með einhverskonar jafn-
réttisáætlun. Ef ákveðinn hluti styrkjanna
væri merktur konum þá myndi skapast eft-
irspurn eftir konum í bransann, þær væru
hvattar til að fara í kvikmyndanám og það
hefði rosaleg margfeldisáhrif,“ segir Dögg.
Dögg nefnir „sænsku leiðina“ í þessu
samhengi þar sem yfirlýst jafnréttisátak
hefur komið hlutfalli kvenna upp í 40%.
„Auðvitað tekur allt sinn tíma og það er
ekki hægt að gera ráð fyrir því að breyt-
ingarnar gerist á einu ári en eitthvað þarf
að gerast. Auðvitað mega konur taka sig
á og sækja meira um en það er ákveðinn
valdastrúktúr í gangi sem er erfitt að brjót-
ast í gegnum nema með róttækum leiðum.
Það hefur sýnt sig að það er ekki skortur
á sögum hjá konum því þegar við settum
handritasamkeppnina Doris á laggirnar
þá bárust okkur 102 umsóknir. Þetta voru
konur af öllum stigum samfélagsins sem
vildu segja sögur sem hafa aldrei heyrst
áður.“
Erfitt að framkvæma jafnrétt-
isáætlun
Laufey Guðjónsdóttir hefur starfað sem
forstöðumaður Kvikmyndmiðstöðvar Ís-
lands frá árinu 2003. Hún fagnar því að um-
ræðan sé komin upp á yfirborðið. Hún seg-
ir áberandi vöxt í handritaskrifum kvenna,
stuttmyndagerð og heimildamyndum en
að lítil ásókn kvenna í leiknar myndir í
fullir lengd sé margslungið vandamál
sem hún sjái ekki eina lausn á. Hún segir
Kvikmyndasjóð vera með jafnréttissýn en
erfitt sé að hrinda jafnréttisáætlun í fram-
kvæmd. „Þá þyrfti ráðuneytið að strúkt-
úrera þetta allt öðruvísi, fjárveitingar,
reglugerðir og úthlutanir úr sjóðnum. Við
erum með rosalega stífar reglugerðir sem
við þurfum að fara eftir svo það þyrfti að
breyta allri umgjörðinni.“
„Ég held að við séum með jafnréttissýn,
en sjóðurinn er hálfgerð endastöð. Það þarf
eitthvað annað að vera í boði líka, meðfram
KMÍ. Við höfum mun takmarkaðra starfs-
svið en til dæmis sænska kvikmyndamið-
stöðin. Við styrkjum bara fólk sem hefur
atvinnu af þessu, en erum ekki mennta-
stofnun.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
kvikmyndamiðstöð konur kreFjast róttækra breytinga
87% fjármagns Kvik-
myndasjóðs fer til karla
Á árunum 2000 til 2012 fór 87% fjármagns Kvikmyndasjóðs til karla. Dögg Mósesdóttir, for-
maður Wift, Félags kvenna í kvikmyndum á Íslandi, segir þurfa róttækar breytingar til að komast
upp úr gömlum valdastrúktúr. Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar, telur
Kvikmyndamiðstöð vera með jafnréttissýn.
„Það eru rosaleg tækifæri þarna fyrir framleiðendur sem vilja gefa nýja sýn á íslenskan raunveruleika. Það er hellingur af
kvikmyndagerðarkonum í startholunum, tilbúnar að takast á við tækifærin um leið og þau bjóðast.“ Dögg Mósesdóttir, formaður
Wift; Félags kvenna í kvikmyndum. Ljósmynd/Hari
Árið 2012 var
39 styrkjum
úthlutað
til leikinna
kvikmynda í
fullri lengd úr
Kvikmynda
sjóði og 2
þeirra runnu til
kvenleikstjóra.
Árið 2013 var
63 styrkjum
úthlutað og 11
þeirra runnu
til kvenleiks
tjóra. Á sama
tíma eru konur
líklegri til að
fá styrk til
stuttmynda
og heimilda
mynda.
4 fréttir Helgin 5.-7. desember 2014