Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 79
70 tíska Helgin 5.-7. desember 2014
metaldesignreykjavik
Stefán Bogi gull- og silfursmiður
Stefán Bogi gull- og silfursmiður
Metal design, Skólavörðustíg 2
metaldesignreykjavik.is
Skoðið laxdal.is/kjolar • facebook.com/bernhard laxdal
GLÆSIKJÓLAR
Tískuhönnun PoP-uP markaður í LisTasafni reykjavíkur
Íslensk hönnun
úr Skúmaskoti
Fatahönnuðurinn Heiða
Eiríksdóttir er ein af þrjátíu
íslenskum hönnuðum sem
taka þátt í pop-up markaði í
Listasafni Reykjavíkur um hel-
gina. Heiða selur sína hönnun
í versluninni Skúmaskoti við
Laugaveg 23.
f atahönnuðurinn Heiða Ei-ríksdóttir er ein af þrjátíu íslenskum hönnuðum sem
taka þátt í pop-up markaði í Lista-
safni Reykjavíkur um helgina.
Heiða selur sína hönnun í verslun-
inni Skúmaskoti við Laugaveg 23.
Heiða hefur verið að hanna föt í
mörg ár en segir sína nálgun á fata-
hönnun hafa tekið róttækum breyt-
ingum þegar hrunið skall á. „Í dag
nálgast ég hverja flík fyrir sig og
þær eru allar framleiddar af mér
sjálfri. Ég vinn mikið með textílinn,
lita efnin sjálf og er mikið í hekli.
Áður lét ég framleiða allt fyrir mig
erlendis en svo kom hrun og núna
er ég bara komin „back to basics“
og það fer algjörlega eftir því í
hvaða stuði ég er þegar ég vakna,
hvað ég fer að gera.“
„Ég leitaði til Móu, vinkonu
minnar, sem er listakona og ljós-
myndari, með myndatöku í huga,“
segir Heiða Eiríksdóttir fatahönn-
uður. „Fyrstu pælingar voru að fá
módel, og við fórum á flug með það.
En niðurstaðan, eftir skemmtilegt
kaffispjall, var að Móa yrði módel,
leikstjóri, „makeup artist“, hár-
greiðslukona og ljósmyndari. Þótt
ótrúlegt megi virðast er hún sér-
fræðingur í öllu þessu. Við völdum
flíkurnar í sameiningu og svo sá
Móa um rest, ein og sér, og mér
finnst útkoman stórglæsileg.“ -hh
Heiða Eiríksdóttir fatahönnuður.
Myndir og módel:
Móa Hjartardóttir.