Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 35
Ert þú að rannsaka
orku og umhverfi?
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir
náms menn og rannsóknarverkefni á sviði
um hverfis- og orkumála.
Ísland er ríkt af endurnýjanlegum orkuauðlindum.
Þess vegna felast mikil verðmæti í því að nýta
íslenskt hugvit til þess að auka þekkingu á orku
og umhverfismálum.
Til úthlutunar úr Orkurannsóknasjóði árið 2015
eru 54 milljónir króna.
Styrkir til efnilegra nemenda í meistara- eða
doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orku -
mála, veittir til að mæta kostnaði vegna vinnu
sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema
og öðrum útgjöldum.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur eru á
landsvirkjun.is/orkurannsoknasjodur. Öllum umsóknum
verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2015.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Nú er vetur!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
S805-2Y 110cm
ál snjóskófla
1.990
S805-10D 135cm
ál snjóskófla
2.495
S805-4L 170CM
ál snjóskafa
1.990
Rúðuskafa
190
Hálkusalt 5 kg
590
Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar
745
Morna Fell hefur alltaf
elskað blóm og gæti ekki
hugsað sér tilveruna án
þeirra. Eftir að hafa starfað
við blómahönnun í Glasgow í
15 ár flutti hún til Íslands því
hér vill hún búa með börnin
sín. Nú raðar hún blómum
eftir kúnstarinnar reglum á
vinnustofu sinni í Kópavogi.
Uppáhaldsblóm
„Þetta er svo erfið spurning
því það er misjafnt eftir
dögum. Núna er það samt
Eucharus, eða Amazon lilja.
Liljan stendur á háum stilk og
er stjörnulaga. Hún hangir
niður því hún er ættuð úr
Amazon þar sem rignir
mikið. Hún hefur átta knúppa
sem allir blómstra á sitt-
hvorum tíma. Þegar fyrsta
blómið deyr þá klippir þú það
af og þá byrjar það næsta
að blómstra. Ég pantaði
dálítið af þeim til að nota
í jólaskreytingarnar og nú
hefur ein staðið í stofunni hjá
mér í þrjár vikur og er enn að
blómstra.“
É g elska blóm og hef alltaf gert. Mér finnst þau falleg á öllum stigum, ekki bara í full-um blóma heldur líka áður en þau blómstra
og þegar þau byrja að visna. Mamma mín ræktaði
fallegan garð við húsið okkar í Skotlandi og ég
var alltaf að tína þar blóm til að búa til kransa eða
ilmvötn. Svo fannst mér alltaf svo gaman að koma
í blómaverslanir þegar ég var yngri svo það lá ein-
hvernveginn beint við að vinna með blóm,“ segir
Morna Fell en hún vann við blómahönnun í 15 ár
í Glasgow áður en hún ákvað að flytja til Íslands
fyrir þremur árum.
Gott að búa á Íslandi
„Ég heillaðist af Íslandi þegar ég kom hingað fyrst
og ákvað að flytja hingað til að skipta aðeins um um-
hverfi. Ég var í rauninni ekki með neitt plan, bara að
vera hér svo lengi sem ég hefði vinnu. En eftir að hafa
kynnst því að ala upp börn hér get ég ekki snúið aft-
ur,“ segir Morna sem á tvo stráka á grunnskólaaldri.
„Ég féll algjörlega fyrir frelsinu sem íslensk börn lifa
við. Það er líka svo frábært hvernig börn leika sér hér
úti í öllum veðrum, þau eru bara dúðuð upp og þá eru
þau tilbúin í hvað sem er. Hér er allt líka svo öruggt
og þægilegt, fyrir utan hversu fallegt er hérna. Svo er
Íslandi líka mjög stutt frá Skotlandi svo það er auðvelt
að fljúga yfir.“
Blóm eru
nauðsynlegur
hluti af tilverunni
Morna Fell er skoskur blómahönnuður sem féll fyrir Íslandi. „Sumir kaupa sér gott rauðvín til að hafa það notalegt heima hjá sér en
mér finnst jafn mikilvægt að kaupa falleg blóm.“ Ljósmynd/Hari
26 viðtal Helgin 5.-7. desember 2014