Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 27
F ækkað hefur í sérfræði-stéttum á Landspítalanum og veldur það læknum
áhyggjum. Mest hefur fækkað á
rannsóknarsviði eða um 5 stöðu-
gildi. Sérfræðingum á Land-
spítala hefur þó fjölgað um 3 í
heildina á 7 árum eða frá 2007
til ársbyrjunar 2014 og hangir
það saman við fjölgun verkefna
sem spítalinn þarf að sinna.
Læknar sjá það þó sem stöðnun
en ekki framþróun. Mikil þörf
er fyrir nýliðun sérfræðilækna
LSH á Íslandi þar sem 66% sér-
fræðilækna eru 50 ára eða eldri
og 81% yfirlækna eru 50 ára eða
eldri.
Að mati Elísabetar Benedikz,
yfirlæknis gæða- og sýkinga-
varnardeildar Landspítalans,
er ástandið verst á deildum lyf-
lækningasviðs. „Þær eru alltaf
yfirfullar og ástandið er líka
slæmt á bráðadeild þar sem
krónískur fráflæðivandi sjúk-
linga sem þurfa að leggjast inn
er orðinn viðvarandi og leiðir
til örtraðar, lengds biðtíma og
álags á starfsfólk. Það endur-
speglar líka ástandið á yfir-
fullum legudeildunum. Þá hefur
líka verið krísa um langt skeið
á myndgreiningardeild vegna
manneklu þar. Fleira mætti ef-
laust telja,“ segir hún.
66% sérfræðilækna 50 ára
eða eldri
Vandinn sem blasir við er alvar-
legur; 35% þeirra sérfræðilækna
sem eru á spítalanum núna geta
farið á eftirlaun innan 10 ára,
þar af 20% innan 5 ára. Það þarf
því að taka á vandanum strax
og laga aðstæður þannig að ís-
lenska lækna langi að koma
heim að námi loknu.
Kandídatar á aldrinum 20-29
ára eru 33 og einn á aldrinum
30-34 ára. Læknar með almennt
lækningaleyfi eru 59 á aldrinum
25-29 ára, 58 á aldrinum 30-34
ára og 16 á aldrinum 35-39 ára.
Gat er í aldursstig sérfræði-
lækna á aldrinum 30-40 ára en
á þeim aldri eru margir læknar
erlendis í sérfræðinámi.
Sérfæðilæknar eru flestir á
aldursbilinu 50-54 ára eða 78
og 61 á aldrinum 45-50 ára. Sér-
fræðilæknar á aldrinum 40-44
ára eru 56. Nú eru 66% sérfræði-
lækna 50 ára eða eldri, einungis
18 sérfræðilæknar eru á aldr-
inum 30-39 ára. Sérfræðilæknar
á aldrinum 55-64 ára eru 87 og
þeim fækkar eftir það. Mikil
þörf er á því að fá ungu læknana
heim og búa þeim það umhverfi
sem þeir þurfa til að framfleyta
sér og fjölskyldum sínum.
Stöðnun í uppsiglingu
Fréttatíminn ákvað að skoða
fjölda stöðugilda sérfræðinga
hjá spítalanum brotið niður á
sérfræðigreinar og þróun á
fjölda þeirra síðastliðin 5 ár. Allir
yfirlæknar eru með sérfræðirétt-
indi þeirra sérgreina sem þeir
eru yfirlæknar á. Svæfinga- og
gjörgæslulækningar og blóð-
banki eru taldar með skurð-
lækningasviði en tilheyra í dag
nýju aðgerðasviði.
„Í raun er þetta engin mark-
tæk fjölgun eða aðeins um 3,9
stöðugildi eða 1,2% frá árinu
2007 og 3,3% frá árinu 2010
þegar mönnun var í lágmarki
eftir kreppu. Miðað við þróun
í mannfjölda og aldurssam-
setningu þjóðarinnar endur-
spegla þessar tölur stöðnun en
ekki framþróun. Ef framþróun
í læknisfræði og aðstöðu væri
eðlileg hér á landi mætti ætla
að fjölgunin væri meiri. Skoða
þarf starfsemistölur á milli ára
en þær leiða í raun ljós stöðnun
eða lækkun á helstu framleiðni-
mælikvörðum nema hvað varðar
komur í dag- og göngudeildar-
þjónustu og á bráðamóttökur,“
segir Elísabet.
Rannsóknarsvið
Á rannsóknarsviði hefur fækkun
stöðugilda orðið mest en alls
hefur fækkað þar um 5,2 stöðu-
gildi, 3,6 í myndgreiningu og
1,7 í rannsóknarsérgreinum.
Þetta hefur þær afleiðingar að
verkefnin færast á færri hendur
og álag eykst. Rannsóknarsér-
greinar eru erfða- og sameinda-
líffræði, klínísk lífefnafræði,
ónæmisfræði, blóðmeinafræði,
meinafræði, réttarlæknisfræði,
sýklafræði, veirufræði, vefja-
rannsóknir og fleira.
Flæðissvið – geðsvið
„Á flæðissviði hefur heildar-
fjöldi lækna aukist innan bráða-
lækninga en það er ný sérgrein
sem hefur verið í vexti auk þess
sem verkefnum hefur fjölgað,
bæði vegna aukins fjölda koma
á bráðamóttökur en einnig eftir
tilfærslu verkefna þegar bráða-
móttökur á Hringbraut og í Foss-
vogi voru sameinaðar í Fossvogi
árið 2010,“ segir Elísabet. Aftur
á móti hefur stöðugildum fækk-
að í endurhæfingarlækningum
og á geðsviði.
Kvenna- og barnasvið
Á kvenna- og barnasviði hefur
stöðugildum fjölgað um 3,9 á
fimm árum. Þar hefur fjölgað
um 1 stöðugildi í barna- og
unglingageðlækningum og 1,2
stöðugildi í sérfræðilæknum
fæðingarteymis. 2,2 stöðugildi
hafa bæst við í sérfræðilækn-
ingum kvenlækninga. Fækkað
hefur um rúmlega tvö stöðugildi
í barnalækningum.
Lyflækningasvið
Á lyflækningasviði hefur heild-
arstöðugildum lækna fjölgað um
2,1. Fjölgunin er aðallega í líkn-
andi meðferð en þar hafa stöðu-
gildin farið úr 1,1 í 3. Fækkun
hefur aftur á móti orðið hjá
geislameðferðarlækningum eða
um 1,1 stöðugildi. Einnig hefur
stöðugildum í gigtarlækningum
fækkað um 0,6 og 0,4 í húð- og
kynsjúkrómalækningum. Stöðu-
gildum í lyflækningum krabba-
meina hefur fækkað um 1,8 sem
er alvarlegt mál, að mati Elísa-
betar.
Skurðlækningasvið
Á skurðlækningasviði hefur
stöðugildum í heildina fjölgað
um 0,4 á 5 árum. Fjölgun hefur
orðið í bæklunarskurðlækning-
um og blóðbanka ásamt háls-,
nef- og eyrnalækningum. Einn-
ig hefur sérfræðingum fjölgað
eilítið í svæfinga og gjörgæslu-
lækningum. Stöðugildum hefur
fækkað örlítið á öðrum sviðum.
Elísabet segir að lokum að
þessu til viðbótar komi minnk-
andi framlög til rannsóknar-
starfs fram núna með fækkun
birtra rannsóknargreina í
vísindatímaritum. Þessari þróun
þurfi að snúa við.
Eva Magnúsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Sár þörf fyrir nýliðun sérfræðilækna á Íslandi
66% sérfræðilækna og 81% yfirlækna eru 50 ára eða eldri. Fækkun sérfræðilækna á Landspítalanum veldur áhyggjum. Mikil þörf er fyrir nýliðun í hópi þeirra.
g Kandidatar g Læknar með lækningaleyfi g Sérfræðilæknar g Yfirlæknar
2
31
59
1
3
11
4
61
78
53 53
34
16
58
56
11
13
18
22
11
2
16
2 3 2 11
20-24 25-29 30-34 35-39 40-44 45-49 50-54 55-59 60-64 65-69 70-74 75-79
Aldursdreifing lækna eftir stöðu
Aþena, Ohio er í 1. sæti
á kiljulista Eymundsson
18 úttekt Helgin 5.-7. desember 2014