Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 41
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
GÓÐIR, NÝLEGIR,
TRAUSTIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
VW Golf A6 Trendl. 1.4 TSI
Árgerð 2010, bensín
Ekinn 74.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 1.950.000
VW Golf A7 Highl. 1.4 TSI
DSG. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 21.000 km, sjálfskiptur
Komdu og
skoðaðu úrvalið!
Skoda Superb Combi
2.0 TDI 4x4. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 35.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.190.000
VW Tiguan Track&Style
2.0 TDI. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 31.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 4.790.000
Audi A4 Avant 2.0 TDI
143 hö. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 34.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 6.290.000
MM Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 46.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 7.590.000
Ásett verð: 3.640.000
VW Polo 1.4 Comfl. 85 hö.
Árgerð 2013, bensín
Ekinn 55.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 2.390.000
VW Caddy Maxi Trendl.
1.6 TDI. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 27.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 3.690.000
Skoda Rapid Amb. 1.2
TSI 105 hö. Árg. 2013, bensín
Ekinn 35.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 2.690.000
Skoda Octavia Combi
2.0 TDI 4x4. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 46.500 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 4.490.000
Hafdís Huld var gestur í Kastljósinu á
RÚV í byrjun ársins þar sem hún talaði
um einelti sem hún varð fyrir á netinu. Í
þættinum kom fram að niðrandi ummæli
voru skrifuð um Hafdísi á Bland.is og
fremst í flokki níðinganna fór Hildur
Lilliendahl. Fram að þessu hafði Hildur
getið sér gott orð fyrir baráttu sína fyrir
réttindum kvenna og meðal annars hlotið
viðurkenningu frá Stígamótum fyrir.
Málið vakti að vonum mikla athygli.
„Mér fannst bara sem móður og konu
að það yrði að koma þessu á framfæri.
Umræðan hafði ekki gefið sanna mynd af
því sem var og mér fannst heiðarlegasta
leiðin að ég kæmi í þetta viðtal. Þá fengju
allir að kynnast öllum hliðum málsins og
gætu tekið upplýsta afstöðu til þess. Síðan
hef ég ekkert tjáð mig um þetta mál. Það
er ekki mitt að díla við eftirmálin, gerand-
inn verður bara að ákveða hvernig hann
vill vinna úr þessu,“ segir Hafdís Huld.
Varð að tjá sig um níð á netinu
Það hentar kannski ekki fullkom-
lega að gefa plötur út á alþjóðlegum
markaði en gera út frá Íslandi.
„Plötufyrirtækið var ekki alveg
sátt að ég væri að flytja til Íslands í
miðri markaðsherferð fyrir síðustu
plötu. En ég held að ég verði samt
alltaf með samastað hérna þó ég
skjótist út af og til.“
Hafdís sendi frá sér þriðju sóló-
plötu sína síðasta sumar. Hún kall-
ast Home. Áður hafði Hafdís gefið
út plöturnar Dirty Paper Cup árið
2006 og Syncronised Swimmers
árið 2009 auk tveggja barnaplatna;
Englar í ullarsokkum árið 2007 og
Vögguvísur árið 2012.
Á Home eru ellefu frumsamin
lög og textar eftir Hafdísi og eigin-
mann hennar, Alisdair Wright,
og samstarfsmenn á borð við Nik
Kershaw og Ed Harcourt. Platan
var öll tekin upp á heimili þeirra
hjóna í Mosfellsdal.
„Ætli hún sé ekki rólegri og
persónulegri en fyrri plötur mínar,“
segir Hafdís um Home. „Ég samdi
hana þegar ég var ólétt og með
lítið barn hjá mér. Hún var tekin
upp á efri hæðinni heima og þetta
setur svolítið tóninn. Maður gat
farið út og kíkt á hænurnar eða
fengið sér tebolla. Þetta er samt
ekki heil plata um hvað það er kósí
í sveitinni, það væri of mikið. En
það spilar auðvitað inn í hvar maður
hefur verið og hvert maður stefnir.“
Home fékk „frábærar viðtökur“
gagnrýnenda úti eins og Hafdís
Huld orðar það. „Manni þykir enn
vænna um fjögurra stjörnu dóma
af því þetta er algerlega heimagerð
plata. Alger heimilisiðnaður. Það
kom enginn utanaðkomandi að
henni fyrr en hún fór í mix. Og fyrir
vikið vorum við ofsalega ánægð og
þakklát.“
Herjar á Asíumarkað
Í sumar fóru þau Hafdís og Al-
isdair á tónleikaferðalag um landið.
Tveggja ára dóttir þeirra var með
í för og þau heimsóttu ýmsa staði
sem ekki komast alltaf á kortið
þegar tónleikaferðir eru skipu-
lagðar. „Við gistum hjá ferðaþjón-
ustbændum og ferðalagið var mjög
afslappað. Við spiluðum til dæmis á
Kópaskeri þar sem fimmtíu prósent
íbúanna mættu á tónleikana. Þetta
ferðalag var frábær upplifun og við
fengum yndislega hlýjar móttökur.
Við ætlum pottþétt að gera þetta
aftur næsta sumar.“
Hafdís hefur líka fylgt plötunni
eftir úti í heimi. Hún fór með Boo
Hewerdine á tónleikaferðalag um
Bretland síðasta vor og um haustið
fór hún í eigið tónleikaferðalag um
Bretland. Eftir jól er svo stefnan
sett á ferðalag um Ítalíu og með
vorinu kveðst hún vonast til að fara
til Bandaríkjanna.
„Svo erum við að ganga frá út-
gáfusamningi í Asíu. Það er í fyrsta
skipti sem ég geri útgáfusamning
þar og ég væri alveg til í að fara
og halda tónleika í Asíu. Það gæti
reyndar orðið erfitt flug fyrir litluna
mína en það verður gaman að
tengjast nýjum markaði. Það er líka
gaman að þetta vex hjá mér með
hverri plötu. Fyrsta platan kom
bara út í Evrópu og önnur þar og í
Bandaríkjunum en nú bætist Asía
við.“
Jólatónleikar sendir út á netinu
úr eldhúsinu
Eins og áður segir vinnur Hafdís nú
að nýrri plötu sem sungin verður
á íslensku. Hún segir að það verði
áhugavert að spila lögin á tón-
leikum úti í heimi. „Þegar ég gerði
Vögguvísnaplötuna bjóst ég við því
að hún yrði alfarið fyrir íslenskan
markað en hún hefur selst vel úti,
jafnt og þétt. Það gefur mér von
varðandi næstu plötu og ég ætla
að láta á það reyna. Það verður
skemmtilegt að prófa þá nálgun.“
Næst á dagskrá eru þó óvenjuleg-
ir jólatónleikar. „Við gerðum þetta
fyrir fjórum árum þegar við vorum
nýflutt heim. Þá áttum við að spila á
tónleikum í London en fluginu var
frestað svo við ákváðum að halda
tónleikana úr eldhúsinu heima
og senda þá út á netinu í staðinn.
Maður hafði ekki hugmynd um
hver viðbrögðin yrðu... við sátum
bara þarna að búa til heitt kakó og
spila en það voru fimm þúsund tölv-
ur sem tengdust okkur á meðan.
Og síðan þá hefur verið reglulega
spurt hvort við ætlum ekki að gera
þetta aftur og okkur fannst það til-
valið núna. Tónleikarnir verða 21.
desember og það eru allir velkomn-
ir. Fólk getur haft okkur með sér í
piparkökubakstrinum.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Hafdís Huld nýtur lífsins uppi í Mosfellsdal þar sem hún býr ásamt eiginmanni og
tveggja ára dóttur. Þau eru meðal annars með hænur og hesta. Ljósmynd/Hari
Hver er
Hafdís Huld
Fædd 22. maí 1979.
Gekk 15 ára til liðs við
„fjöllistahópinn“ GusGus.
Foreldrar hennar þurftu að
skrifa undir plötusamning
fyrir hennar hönd vegna
ungs aldurs.
Rekin úr Gus Gus árið 1999.
Flutti í kjölfarið til London
og lauk námi í upptöku- og
tónsmíðum við LCCM-
skólann.
Gaf út fyrstu sólóplötu sína
sama ár og hún útskrifaðist,
2006.
Gift Alisdair Wright og
saman eiga þau tveggja ára
dóttur.
?
Helgin 5.-7. desember 2014